Bæjarstjórn Grindavíkur - 483. fundur
- 24.04.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 483
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttir2. varaforseti
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ársuppgjör 2017: Grindavíkurbær og stofnanir
Endurskoðendur bæjarins mæta á fundinn og fara yfir endurskoðunarskýrslu.$line$Fyrri umræða um ársreiknings Grindavíkur og stofnana fyrir árið 2017
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2017 er lagður fram til fyrri umræðu.
Lilja Karlsdóttir, endurskoðandi hjá KPMG, kom á fundinn og fór yfir endurskoðunarskýrslu vegna endurskoðunar ársins 2017 og svaraði fyrirspurnum.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu stærðir í ársreikningi 2017.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Kristín María
Bókun
Rekstrarniðurstaða A-hluta er afgangur að fjárhæð 248,2 milljónir króna. Áætlun gerði ráð fyrir 93,2 milljónum króna í rekstrarafgang. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A og B hluta, er 291,5 milljónir króna í afgang en áætlun gerði ráð fyrir 108,7 milljónum króna í rekstrarafgang.
Helstu frávik í rekstri samantekinna reikningsskila A og B hluta eru:
- Útsvar og fasteignaskattur eru 51,4 milljónum króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
- Framlög Jöfnunarsjóðs eru 115,6 milljónum króna hærri en áætlun.
- Aðrar tekjur eru 22,0 milljónum króna hærri en áætlun.
- Laun og launatengd gjöld í reglulegri starfsemi eru 14,3 milljónum króna lægri en áætlun.
- Laun og launatengd gjöld, gjaldfærðar eru 74,6 milljónir króna vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð, en ekki var gert ráð fyrir þessu í áætlun.
- Breyting lífeyrisskuldbindingar við B-deild LSR er 0,5 milljónum króna undir áætlun.
- Annar rekstrarkostnaður er 17,8 milljónum króna lægri en áætlun gerði ráð fyrir.
- Afskriftir eru 1,5 milljónum króna hærri en áætlun.
- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru 36,7 milljónum króna hagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir.
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A og B hluta eru 9.426,6 milljónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 1.758,6 milljónir króna. Lífeyrisskuldbinding er 599,4 milljónir króna og þar af er áætluð næsta árs greiðsla 27,6 milljónir króna. Langtímaskuldir við fjármálastofnanir eru 206,8 milljónir króna og þar af eru næsta árs afborganir 8,6 milljónir króna. Eigið fé í samanteknum reikningsskilum er 7.668 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 81,3%.
Skuldahlutfall A- og B-hluta skv. 2. tl. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nemur 57,1% af reglulegum tekjum. Ef undanskilin er skuld að fjárhæð 521,6 milljónir króna sem til er komin vegna kaupa á Orkubraut 3 af HS Orku hf. og er greidd með auðlindagjaldi og lóðarleigu frá HS Orku hf. , þá er skuldahlutfallið 40,1%.
Skuldaviðmið skv. 14. gr. reglugerðar nr. 502 frá 2012 er negatíft í bæði í A-hluta og A- og B-hluta þar sem hreint veltufé er hærra en heildarskuldir að teknu tilliti til frádráttar vegna lífeyrisskuldbindingar.
Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 575,3 milljónum króna í veltufé frá rekstri sem er 18,7% af heildartekjum en áætlun gerði ráð fyrir veltufé frá rekstri að fjárhæð 388,4 milljónum króna.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum í samanteknum reikningsskilum A og B hluta nam á árinu 2017, 244,6 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 605,8 milljónum króna.
Á árinu voru engin ný lán tekin en afborganir langtímalána voru 8,6 milljónir króna.
Handbært fé hækkaði um 349,6 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir lækkun að fjárhæð 259,9 milljónum króna. Handbært fé í árslok 2017 var 1.945 milljónir króna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn.2. Víkurbraut 20: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Víkurbraut 20. Breytingarnar fela í sér að þak við bílskúr verður hækkaður. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að stækkunin sé innan nýtingarhlutfalls og að grenndarkynnt verði fyrir eigendum Víkurbrautar 18.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Víkurbraut 20. Breytingarnar fela í sér að þak við bílskúr verður hækkaður. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að stækkunin sé innan nýtingarhlutfalls og að grenndarkynnt verði fyrir eigendum Víkurbrautar 18.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.3. Austurvegur 24a: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Austurvegi 24a. Breytingarnar fela í að bílskúr er innréttaður og útliti breytt. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að grenndarkynningu eigenda Austurvegar 22 og Mánagötu 29. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er heimilt að skrá bílskúr sem séreign.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Páll Jóhann
Erindi frá Þórkötlu ehf. kt. 440407-1290 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Austurvegi 24a. Breytingarnar fela í að bílskúr er innréttaður og útliti breytt. Erindinu fylgja teikningar unnar af tækniþjónustu SÁ.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að grenndarkynningu eigenda Austurvegar 22 og Mánagötu 29. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er heimilt að skrá bílskúr sem séreign.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.4. Miðgarður 2: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá NIS Development. í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Miðgarði 2. Breytingar fela í sér stækkun á veitingarstað, ásamt nýjum svölum og breytingum utanhús. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt og minnir á mikilvægi þess að aðgegni frá bílastæði að húsi sé innan lóðar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta og Jóna Rut
Erindi frá NIS Development lagt fram. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingum á Miðgarði 2. Breytingar fela í sér stækkun á veitingarstað, ásamt nýjum svölum og breytingum utanhús.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt og minnir á mikilvægi þess að aðgengi frá bílastæði að húsi sé innan lóðar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar en með þeim fyrirvara að gerð sé betur grein fyrir staðsetningu bílastæða innan lóðar ásamt samkomulagi um nýtingu bílastæða beggja lóðarhafa.5. Hafnargata 6: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Bergbúum kt. 680406-1620. Erindinu fylgj Í erindinu er óskað eftir breytingum á byggingarleyfi fyrir auknu gistirými, ásamt breytingu á innra skipulagi. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um jákvæðar umsagnir Hes, vinnueftirlits og slökkviliðs. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi gögn berast.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar
Erindi frá Bergbúum kt. 680406-1620 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir breytingum á byggingarleyfi fyrir auknu gistirými, ásamt breytingu á innra skipulagi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um jákvæðar umsagnir Hes, vinnueftirlits og slökkviliðs. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi gögn berast.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.6. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Fyrir liggur kauptilboð í fasteignina að Gerðavöllum 17. Tilboðið er gert með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Bæjarráð hefur haft til skoðunar möguleikana á því að stækka Krók með tveimur deildum eða nýjum leikskóla og stækkun á Hópsskóla með fjölgun á kennslustofum og stækkun starfsmannaaðstöðu. Á fjárhagsáætlun eru 25 mkr. fyrir hönnun stækkunar við Hópsskóla og hönnunar á nýjum leikskóla. Sú fjárhæð dugar fyrir hönnun á árinu 2018. Taka þarf afstöðu til næstu skrefa varðandi hönnun þ.e. hvort byrja eigi hönnun og rýmisþarfagreiningar fyrir stækkun á Krók og Hópsskóla. Fyrir liggja tilboð í aðalhönnun á báðum hugmyndum
Fundarhlé tekið 18:20 - 18:55
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu þeir málið og svöruðu fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Marta, Kristín María og Ásrún
Fyrir liggur kauptilboð í fasteignina að Gerðavöllum 17. Tilboðið er gert með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
Bæjarráð hefur haft til skoðunar möguleikana á því að stækka Krók með tveimur deildum eða nýjum leikskóla og stækkun á Hópsskóla með fjölgun á kennslustofum og stækkun starfsmannaaðstöðu.
Á fjárhagsáætlun eru 25 mkr. fyrir hönnun á stækkun við Hópsskóla og hönnunar á nýjum leikskóla. Sú fjárhæð dugar fyrir hönnun á árinu 2018 en fyrir liggja tilboð í aðalhönnun á báðum hugmyndum.
Bæjarstjórn staðfestir kauptilboðið samhljóða og felur bæjarstjóra að ganga frá kaupunum.
Bæjarstjórn samþykkir ennfremur að fela sviðstjórum félagsþjónustu- og fræðslusviðs og skipulags- og umhverfissviðs að halda áfram með vinnu við hönnun á viðbyggingu við Hópsskóla og vinnu við fjölgun á leikskólarýmum.7. Félagsleg heimaþjónusta: Breyting á reglum
Breyting á reglum um félagslega heimaþjónustu. Inn kemur nýr þjónustuþáttur, þ.e. heimsending matar. Einnig þarf að koma inn nýr liður í gjaldskrá, þ.e. gjald vegna heimsendingar matar að fjárhæð 1.200.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi breytingar á reglum um félagslega heimaþjónustu. Inn kemur nýr þjónustuþáttur, þ.e. heimsending matar. Einnig þarf að koma inn nýr liður í gjaldskrá, þ.e. gjald vegna heimsendingar matar að fjárhæð 200 kr. ofan á matargjaldið þannig að heimsendur matur kosti 1.200 kr. skammturinn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.8. Reykjanesbær: Umsókn um fjölgun hjúkrunarrýma
Bæjarráð Reykjanesbæjar vill að kannaður verði vilji annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum til að vera með í umsókn til Heilbrigðisráðuneytisins um fjölgun hjúkrunarrýma.
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann og Kristín María
Bæjarráð Reykjanesbæjar vill að kannaður verði vilji annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum til að vera með í umsókn til Heilbrigðisráðuneytisins um fjölgun hjúkrunarrýma.
Bæjarstjórn samþykkir, með 6 atkvæðum að vísa málinu til SSS, Páll Jóhann situr hjá.9. Endurnýjun heimasíðu: Ósk um viðauka
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að fjárhæð 810.000 kr. til að klára heimasíðuna. Verkefnið hefur dregist og áður veittar fjárheimildir hafa fallið niður. Með þessum viðauka fer kostnaður ekki yfir áður samþykkta áætlun sem var 2.500.000 kr.$line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 810.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Hjálmar
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 810.000 kr. til að klára heimasíðuna. Verkefnið hefur dregist og áður veittar fjárheimildir hafa fallið niður. Með þessum viðauka fer kostnaður ekki yfir áður samþykkta áætlun sem var 2.500.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 810.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.10. Kosningar: Sveitarstjórnarkosningar 2018
Samþykkja þarf umboð til bæjarráðs og bæjarstjóra varðandi samningu og leiðréttingar á kjörskrá.
Til máls tók: Hjálmar
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að semja kjörskrá á grundvelli kjörskrárstofns frá Þjóðskrá Íslands. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí nk. í samræmi við III. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5 frá 1998.
Samþykkt samhljóða11. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 855. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Marta, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 855. fundar, dags. 15. desember 2017, lögð fram til kynningar.12. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 856. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Marta, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 856. fundar, dags. 26. janúar 2018, lögð fram til kynningar.13. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 857. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Marta, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 857. fundar, dags. 23. mars 2018, lögð fram til kynningar.14. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 858. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Marta, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 858. fundar, dags. 23. mars 2018, lögð fram til kynningar.15. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2018
Fundargerð 730. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Marta, Ásrún, Jóna Rut og Páll Jóhann
Fundargerð 730. fundar, dags. 11. apríl 2018, lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018
Fundargerð 491. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Kristín María og Páll Jóhann
Fundargerð 491. fundar, dags. 12. apríl 2018, lögð fram til kynningar.17. Fundargerðir: Þjónustuhópur aldraðra á Suðurnesjum - safnmál
Fundargerð 116. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Jóna Rut, Kristín María, Marta og bæjarstjóri
Fundargerð 116. fundar, dags. 9. apríl 2018, lögð fram til kynningar.18. Fundargerðir: Öldungaráð Grindavík 2018
Fundargerð 1. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Ásrún, Kristín María, Guðmundur, Marta, bæjarstjóri og Jóna Rut
Fundargerð 1. fundar, dags. 14. mars 2018, lögð fram til kynningar.19. Fundargerðir: Öldungaráð Grindavík 2018
Fundargerð 2. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Ásrún, Kristín María, Guðmundur, Marta, bæjarstjóri og Jóna Rut
Fundargerð 2. fundar, dags. 11. apríl 2018, lögð fram til kynningar.20. Bæjarráð Grindavíkur - 1476
Fundargerð nr 1476 lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Jóna Rut, Kristín María, Ásrún, Marta, bæjarstjóri og fjármálastjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.21. Bæjarráð Grindavíkur - 1477
Fundargerð 1477 lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.22. Félagsmálanefnd - 89
Fundargerð 89. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.23. Frístunda- og menningarnefnd - 72.
Fundargerð 72. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Jóna Rut, Kristín María, Páll Jóhann, Ásrún, bæjarstjóri og Marta
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Fræðslunefnd - 74
Fundargerð 74. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Ásrún, Jóna Rut, Marta og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Skipulagsnefnd - 40
Fundargerð 40. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Marta og Jóna Rut og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.26. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 28
Fundargerð 28. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Jóhann, Marta, Jóna Rut, Ásrún og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.27. Hafnarstjórn Grindavíkur - 457
Fundargerð 457. fundar lögð fram til kynningar.
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, bæjarstjóri og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.