Bæjarstjórn Grindavíkur - 466. fundur
- 25.10.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 466
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímsson1. varaforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttir2. varaforseti
- Ásrún Helga KristinsdóttirBæjarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Sigurður Guðjón Gíslasonvaramaður
Forseti leitar heimildar til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum.
Breyting á varafulltrúum S-lista: í hafnarstjórn og skipulagsnefnd.
Samþykkt samhljóða.
Áður en forseti setti fund bauð hann Sigurð Gíslason velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.
1. Túngata 10 : umsókn um byggingarleyfi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar
Anton Narvaéz óskar eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á þaki á húsi og bílskúr. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ ehf. dagsettar 16.09.2016 ásamt skriflegu samþykki eigenda við Túngötu 8, 12, Mánagötu 7.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um samþykki eigenda við Mánagötu 5.
Tillaga skipulagsnefndar er samþykkt samhljóða2. Skipulagsstofnun: HS Orka Matskyldufyrirspurn
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann.
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar á matsskyldufyrirspurn vegna aukinar nýtingu jarðvarma í orkuveri HS í Svartsengi. Fyrirhuguð framkvæmd gerir ráð fyrir nýjum lögnum sem tengja holur sva25 og sva26 við orkuverið. Holurnar voru boraðar á árunum 2015/2016. Með framkvæmdinni er áætlað að aflgeta virkjunarinnar aukist um 6 MW. Fylgt verður eldri lagnaleiðum og ekkert rask verður á óröskuðu landi. Framkvæmdin, eins og henni er lýst í fyrirspurninni, er í samræmi við deiliskipulag svæðisins og Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Skipulagsnefnd telur að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar gefi ekki tilefni til umhverfismats skv. lögum um umhverfismat framkvæmda nr. 106/2000. Skipulagsnefnd bendir á að sækja ber um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu lagnanna og ítrekar að mögulegur uppgröftur á jarðefni fari ekki inn á óraskað land.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara beiðni Skipulagsstofnunar í samræmi við ályktun skipulagsnefndar.3. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Fyrri umræða í bæjarstjórn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu atriðum áætlunarinnar.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Marta, Guðmundur og Páll Jóhann
Forseti leggur til að áætluninni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn 29. nóvember næstkomandi
Samþykkt samhljóða4. Fundargerðir: Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2016
Fundargerð 257. fundar til kynningar
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerð 257. fundar er lögð fram.5. Fundargerðir: Reykjanes Geopark
Fundargerð 30. fundar lögð fram
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Marta, Páll Jóhann og Dagbjartur
Fundargerð 30. fundar er lögð fram.6. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2016
Fundargerðir 707. og 708. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, Páll Jóhann, Ásrún, Marta og Dagbjartur
Fundargerðir 707. og 708. fundar eru lagðar fram.7. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2016
Til máls tóku: Hjálmar, Dagbjartur og Guðmundur
Fundargerð 473. fundar er lögð fram.8. Íþrótta- og afrekssjóður: Endurskoðun á reglugerð og vinnureglum
Sjá nánar í minnisblaði sem fylgir með málinu.
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Marta og Guðmundur.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til breytingar á reglum Íþrótta- og afrekssjóðs. Helsta breytingin er að lagt er til að upphæðir í 1. grein á vinnureglum Íþrótta- og afrekssjóðs verði tvöfaldaðar í ljósi þess að vinnureglurnar hafa verið óbreytt síðan 2012. Þá voru samþykktar minniháttar breytingar á reglugerð Íþrótta- og afrekssjóðs.
Tillaga að fresta málinu og vísa því til umræðu í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árin 2017-2020.
Samþykkt samhljóða9. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna launa í fjárhagsáætlun 2016
Viðaukabeiðni
Til máls tóku: Hjálmar og Marta
Beiðni frá skólastjóra Leikskólans um viðauka við fjárhagsáætlun 2016 að fjárhæð 1.364.000 kr. á launalið leikskólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.10. Ósk um aukafjárveitingu: Vatnsveita Grindavíkur.
Afgreiða viðauka
Til máls tóku: Hjálmar, Marta og Páll Jóhann
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun Vatnsveitu Grindavíkur fyrir árið 2016 að fjárhæð 11.000.000 kr. Beiðnin er tilkomin vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Víðihlíð, en þar þarf að færa stofnlagnir raf, síma, hita, fráveitu og neysluvatns þar sem núverandi lagnir eru fyrir nýbyggingunni og hæðarsetning leyfir ekki að hafa þær í grunninum. Með framkvæmdinni verða lögnum komið fyrir út fyrir byggingarreit fyrir framtíðarstækkun Víðihlíðar og eiga því ekki að vera fyrir þótt Víðihlíð verði stækkuð enn meira í framtíðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé ársins 2016.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.11. UMFG: Búnaður í íþróttahúsi
Afgreiða viðauka
Til máls tók: Hjálmar
Knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir UMFG óska eftir því að Grindavíkurbær kaupi parket á dansgólf í íþróttahúsinu.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 250.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.12. Viðauki við fjárhagsáætlun 2016: Áhrif kjarasamninga
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann og Marta
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna áhrifa kjarasamninga á laun. Áætluð áhrif á fjárhagsáætlun 2016 er 85.829.000 kr. og er fjármagnað með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur. Fjármögnun verði með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.13. Bæjarráð Grindavíkur - 1421
Til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.14. Bæjarráð Grindavíkur - 1422
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Ásrún, Guðmundur og bæjarstjóri, Sigurður og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram.15. Félagsmálanefnd - 71
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin er lögð fram.16. Fræðslunefnd - 57
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin er lögð fram.17. Skipulagsnefnd - 22
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Sigurður, Marta, Dagbjartur, bæjarstjóri og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.18. Hafnarstjórn Grindavíkur - 445
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Sigurður, Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram.19. Breyting á varafulltrúum S-lista: í hafnarstjórn og skipulagsnefnd
Til máls tóku: Hjálmar og Marta
Tillaga um breytingu á nefndarmönnum S-lista.
Páll Þorbjörnsson hefur beðist lausnar sem varamaður í Skipulagsnefnd og Hafnarstjórn.
Í hans stað kemur Ámundínus Örn Öfjörð í skipulagsnefnd og
Magnús Andri Hjaltason í Hafnarstjórn
Samþykkt samhljóða.