Bæjarstjórn Grindavíkur - 433. fundur
- 24.09.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 433
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmforseti
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Guðmundur L. Pálssonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Dagbjartur Willardssonaðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Breyting á fulltrúa S-lista í fræðslunefnd
Til máls tók: Bryndís
S- listi leggur til eftirfarandi breytingu á fræðslunefnd.
Páll Valur Björnsson sem verið hefur fulltrúi S-lista í fræðslunefnd hættir og hans stað verður Stefanía Stefánsdóttir aðalmaður og Páll Þorbjörnsson til vara.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá.2. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Tilboð í framkvæmdina lögð fram eftir yfirferð.
Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta og Kristín María
Tilboð í verkið “Íþróttamiðstöð Grindavíkur-2. áfangi” lögð fram, en tilboð voru opnuð kl: 13:00 þriðjudaginn 17. september 2013.
Eftirfarandi tilboð bárust. Fjárhæðir eru eftir yfirferð.
1. Grindin ehf: 596.430.369.-
2. ÍAV hf: 607.583.714.-
3. HH. Smíði ehf: 637.059.631.-
4. JÁ-Verk ehf: 669.215.607.-
5. Kostnaðaráætlun: 630.332.331.-
Lægstbjóðandi var Grindin ehf. en tilboðið hljóðaði upp á kr. 596.430.369.- eða 94,6% af kostnaðaráætlun.
Breytingatillaga
Fulltrúi D-lista leggur til að hætt verði við að taka tilboði í þessa byggingu og gerð verði rafræn könnun meðal íbúa Grindavíkur hvort ráðast eigi í þessa framkvæmd.
Guðmundur Pálsson
Tillagan er felld með 6 atkvæðum.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda og leggja samning fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Guðmundur er á móti
Fundarhlé tekið kl. 18:15 - 18:25
Bókun
B-, G- og S-listi fagna þessu fyrsta skrefi í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Grindavík. Þessi uppbygging mun
stórbæta félagsaðstöðu UMFG, Kvenfélags Grindavíkur og almennings ásamt því að sameina þrjár starfsstöðvar í eina með tilheyrandi hagræðingu í starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.
Fulltrúar B-, G- og S-lista
Bókun
Forráðamenn allra deilda innan UMFG hafa sent bæjarstjórn undirritað bréf til að mótmæla þessum framkvæmdum.
Enn hefur ekki verið hlustað á athugasemdir íþróttahreyfingarinnar, heldur snúið út úr þeim.
Ekki hefur verið haldinn opinn kynningarfundur um lokaniðurstöðu verkefnisins um áætlaðan rekstrarkostnað, áætlaðan framkvæmdakostnað og um fyrirhuguð not.
Meirihluti bæjarstjórnar þorir ekki að framkvæma skoðanakönnun meðal bæjarbúa til að kanna vilja þeirra á þessari framkvæmd, frekar en þegar Festi var gefið.
Ráðast á í þessa byggingu, dýrustu framkvæmd sem bærinn hefur farið í, nú 8 mánuðum fyrir kosningar.
Kosnaður við þessa byggingu er í anda ársins 2007.
Kosnaður á fermetra verður að lágmarki kr 348.000 á fermetra meðan byggingin við grunnskólann kostar kr.215.000 á fermetra, þetta þýðir 60% hærri kostnaður. Einnig mun rekstrarkostnaður Grindavíkurbæjar aukast um ríflega 40 milljónir króna á ári.
Undirritaður telur rétt að bíða með jafn stóra framkvæmd og þessa fram yfir kosningar.
Fulltrúi D-lista
Fundarhlé tekið kl. 18:30 - 18:40
Bókun
Fulltrúar B-, G- og S-lista vilja benda á að umrætt bréf sem fulltrúi D-lista fjallar um var undirritað af einstaklingum úr deildum UMFG en ekki öllum forráðamönnum. Í framhaldinu hélt bæjarráð fund með öllum deildum þar sem forráðamenn gátu komið að athugasemdum við fyrirliggjandi tillögu og var reynt að koma til móts við þær eftir bestu getu.
Aldrei kom fram tillaga frá byggingarnefnd eða bæjarfulltrúum um að halda opin kynningarfund um lokaniðurstöðu verkefnisins og kom það því ekki til umræðu bæjarstjórnar enda ekki hefð fyrir því að halda slíka fundi um framkvæmdir á vegum bæjarins.
Varðandi skoðanakönnun þá er gott að rifja upp að fulltrúi D-lista í bæjarstjórn var á móti íbúakosningu um Festi þegar hann studdi sölu á fasteigninni en skipti síðan um skoðun þegar í ljós kom að hann var í minnihluta. Allar tillögur D-lista til aukins íbúalýðræðis koma aðeins fram við lokaniðustöðu verkefna er hann er á móti.
Varðandi byggingarkostnað þá var ljóst frá upphafi að uppbygging við íþróttamannvirkin yrði dýrari en bygging bókasafns og tónlistarskóla enda um töluvert flóknara mannvirki að ræða. Varðandi aukinn rekstrarkostnað þá hefur verið tekið tillit til þess í fjögurra ára fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og er Grindavíkurbær fær til að taka hann á sig enda mun þetta þýða bætt aðstaða og þjónusta við almenning, íþróttahreyfinguna og Kvenfélag Grindavíkur.
Fulltrúar B-, G- og S-lista3. Úttekt á leikskólanum Laut
Tillaga að starfshóp til afgreiðslu$line$1.Fulltrúi skólaskrifstofu: Nökkvi Már Jónsson /Ragnhildur Birna Hauksdóttir$line$2.Fulltrúi fræðslunefndar: Ragnheiður Ólafsdóttir $line$3.Fulltrúi stjórnenda: Albína Unndórsdóttir, skólastjóri$line$4.Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri$line$5. Fulltrúi foreldra: Laufey Jóna Sveinsdóttir$line$6. Fulltr. starfsmanna: Kristín Pálsdóttir og Ásta Dóra Böðvarsdóttir$line$7. Bæjarfulltrúi:
Til máls tóku: Bryndís og Guðmundur
Úttekt Námsmatsstofnunar á Leikskólannum Laut, sem unnin var af Attentus - Mannauðsstjórnun og ráðgjöf lögð fram.
Tillaga að starfshóp til að vinna umbótaáætlun í framhaldi af úttektinni:
1. Fulltrúi skólaskrifstofu: Ragnhildur Birna Hauksdóttir
2. Fulltrúi fræðslunefndar: Ragnheiður Ólafsdóttir
3. Fulltrúi stjórnenda: Albína Unndórsdóttir
4. Bæjarstjóri: Róbert Ragnarsson
5. Fulltrúi foreldra: Laufey Jóna Sveinsdóttir
6. Fulltrúar starfsmanna: Kristín Pálsdóttir og Ásta Dóra Böðvarsdóttir
7. Fulltrúi bæjarstjórnar: Marta Sigurðardóttir
Samþykkt samhljóða4. Skipulagsbreytingar vegna búsetuþjónustu fullorðinna
Tillaga félagsmálanefndar um að skipaður verði starfshópur til að vinna tillögu um breytingar á búsetuþjónustu
Tillaga félagsmálanefndar um að skipaður verði starfshópur til að vinna tillögu um breytingar á búsetuþjónustu lögð fram.
Bæjarstjóri kynnti tillöguna og sat Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fyrir svörum.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Marta, Kristín María, bæjarstjóri og Páll Jóhann.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarráði að skipa starfshóp til að vinna tillögu um breytingu á búsetuþjónustu sem lögð skal fyrir bæjarráð 12. nóvember. Bæjarstjóra er einnig falið að tilkynna breytingar á störfum og starfsheitum starfsfólks á Túngötu 15-17 fyrir 1. október 2013.5. Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögu að Reglum um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Aðrir sem til máls tóku: Guðmundur og Bryndís
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.6. Skipulagsskrá Saltfiskseturs Íslands
Tillaga stjórnar Saltfiskseturs Íslands um breytingar á skipulagsskrá félagsins.
Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri og Guðmundur
Tillaga stjórnar Saltfiskseturs Íslands um breytingar á skipulagsskrá félagsins lögð fram. Breytingin er gerð í samræmi við 7. gr. gildandi skipulagsskrár og er stjórn einhuga um breytingarnar.7. Ársreikningur 2012 og aðalfundarboð Saltfiskseturs Íslands
Til máls tók: Bryndís
Ársreikningur Saltfiskseturs Íslands fyrir árið 2012 lagður fram, en hann hefur verið samþykktur af stjórn félagsins.
Jafnframt er fundarboð aðalfundar félagsins lagt fram, en aðalfundur Saltfiskseturs Íslands ses 2013 verður haldinn mánudaginn 7. október kl. 17 í Kvikunni Hafnargötu 12a.
Bæjarstjórn felur bæjarráði að tilnefna aðal- og varamenn í stjórn félagsins.8. 237.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.9. 662.fundur haldinn í stjórn S.S.S.
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.10. 663.fundur haldin í stjórn S.S.S Fundarboð og fundargerð
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.11. Fundarboð. Aðalfundur S.S.S
Til máls tók: Bryndís
Fundarboð aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum lagt fram, en fundurinn fer fram dagana 11. og 12. október í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja.12. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2013.
Til máls tók: Bryndís
Fundarboð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lagt fram, en fundurinn fer fram þann 2. október næstkomandi á Hilton Hótel Nordica kl. 16.13. Endurskoðun samnings GG og Grindavíkurbæjar vegna barna- og unglingastarfs GG fyrir árið 2013.
Undirritaður samningur við Golfklúbb Grindavíkur vegna barna- og unglingastarfs til staðfestingar í bæjarstjórn.
Til máls tók: Bryndís
Undirritaður samningur við Golfklúbb Grindavíkur vegna barna- og unglingastarfs lagður fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samningurinn er samþykktur samhljóða14. Samningur milli Grindavíkurbæjar og GG um rekstur golfvallar 2013 - 2015
Undirritaður samningur við GG um rekstur golfvallar til staðfestingar fyrir bæjarstjórn.
Til máls tók: Bryndís
Undirritaður samningur við Golfklúbb Grindavíkur um rekstur golfvallar lagður fram til staðfestingar fyrir bæjarstjórn.
Samningurinn er samþykktur samhljóða15. Aukið stöðugildi í heimaþjónustu/liðveislu
Tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2013, frá bæjarráðsfundi 1327, 1. mál.
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 865.000 kr. sem komi til hækkunar á launakostnaði félagslegrar heimaþjónustu og lækkunar á handbæru fé.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.16. Ágóðahlutagreiðsla EBÍ 2013.
Afgreiða viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013
Til máls tók: Bryndís
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 3.457.500 kr. sem komi til hækkunar á tekjum af eignarhlutum í félögum og til hækkunar á handbæru fé.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.17. Fundargerð 439. fundar stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.18. Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs ses
Fundargerð 7. fundar
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.19. Innri leiga 2013
Samþykkja þarf tillögu bæjarráð um viðauka við fjárhagsáætlun 2013
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 9.503.896 kr. Þeim útgjaldaauka verði mætt með hækkun tekna Eignasjóðs vegna innri leigu að fjárhæð 9.503.896 kr.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.20. Kaup á búnaði í íþróttahús
Samþykkja þarf tillögu bæjarráðs um viðauka við fjárhagsáætlun 2013
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 þar sem heimilt verði að nýta 4.500.000 kr. af fjárheimildum sem áætlaðar eru til uppbyggingar íþróttamannvirkja til kaupa á búnaði í íþróttamannvirki.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.21. Lengd viðvera fatlaðra grunnskólabarna í 5. - 10. bekk
Afgreiða viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013
Til máls tóku: Bryndís og Guðmundur
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð kr. 2.200.000 vegna lengdrar viðverðu fatlaðra grunnskólabarna, sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.22. Opnunartími íþróttamannvirkja veturinn 2013-2014
Afgreiða viðauka
Til máls tók: Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun íþróttamiðstöðvarinnar að fjárhæð kr. 650.000 sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða.23. Umsókn um breytingu á Miðhóp 1-9
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur og bæjarstjóri
Helgi V. Sæmundsson fyrir hönd H.H. Smíði ehf., sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu við vesturenda raðhúsalengjunnar við Miðhóp 1-9.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.24. Umsókn um byggingarleyfi Austurhóp 14
Til máls tók: Bryndís
Helgi V. Sæmundsson fyrir hönd H.H. Smíði ehf., sækir um leyfi til að byggja sólstofu við vesturenda núverandi húsnæðis við Austurhóp 14.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að byggingaráformin verði samþykkt og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn og grenndarkynning farið fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.25. Umsókn um byggingarleyfi Ægisgata 4
Til máls tók: Bryndís
Kjartan Örn Ólafsson fyrir hönd Lýsis hf., sækir um byggingarleyfi fyrir niðurrif á matshluta 01 og 05 við Ægisgötu 4.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að áformin verði samþykkti og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.26. Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám að Hópsheiði 2
leyfið varðar aðeins gáminn að framanverðu, ekki gistigámana.
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur og bæjarstjóri
Grétar Kristjónsson f/h Bjarmahús ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 20" gám til eins árs sem muni standa vestanmegin við veitingahúsið Bjarmahús.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að umsókn um stöðuleyfi fyrir einn 20" gám verði samþykkt og byggingarfulltrúa falið að gefa út stöðuleyfi þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.27. Bæjarráð Grindavíkur - 1326
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.28. Bæjarráð Grindavíkur - 1327
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.29. Bæjarráð Grindavíkur - 1328
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.30. Skipulags- og umhverfisnefnd - 30
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.31. Fræðslunefnd - 20
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.32. Frístunda- og menningarnefnd - 24
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.33. Félagsmálanefnd - 22
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.34. Félagsmálanefnd - 23
Allir tóku til máls.
Fundargerðin lögð fram.