Bæjarstjórn Grindavíkur - 460. fundur
- 23.02.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 460
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonforseti
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Magnús Andri Hjaltasonvaramaður
- Hjörtur Walterssonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Seljabót 3: Fyrirspurn um breytingu á skipulagi.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann og Guðmundur
Vélsmiðja Grindavíkur óskar eftir breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis Ránargata/Hafnargata. Breytingin felur í sér að byggingarreitur við Seljabót 3 verði stækkaður til norðurs að lóðamörkum Hafnargötu 24.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að láta vinna breytingu á deiliskipulagi á kostnað umsækjanda sbr. 2 mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd telur að grenndarkynna þurfi breytinguna fyrir eigendum Seljabótar 1 og gera þarf grein fyrir bílastæðum sem henta starfseminni í tillögu að breytingu á skipulagi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.2. Fiskeldi á stað: umsókn um graftrarleyfi
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Guðmundur, Magnús Andri og Páll Jóhann
Íslandsbleikja ehf. óska eftir framkvæmdaleyfi fyrir könnun á jarðveg á röskuðu svæði vestan megin við núverandi ker.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.3. Umsókn um framkvæmdaleyfi: Loftnet við dreifistöðvar.
Framhald frá fundi 459.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir serm til máls tóku: Hjálmar, Hjörtur, Jóna Rut, Kristín María, Guðmundur, Páll Jóhann og bæjarstjóri
Tillaga
Lagt er til að fresta fresta málinu þar til fram hefur farið grenndarkynning sem HS Veitur standi fyrir.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Páll Jóhann situr hjá.4. Brunavarnaráætlun: 2016-2021
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti tillögu að Brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árin 2016-2021 og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Kristín María
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að áætlunin verði samþykkt með áorðnum breytingum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða áætlunina, en fjármögnun verkefna og framkvæmda verður samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs.5. Brunavarnir suðurnesja: samstarfssamningur
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti samning um gagnkvæma aðstoð milli Slökkviliðs Grindavíkur og Brunavarna Suðurnesja, og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og bæjarstjóri
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samningurinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykktir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.6. Sala á Óla á Stað: boð um neyta forkaupsréttar skv. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Guðmundur og Kristín María
Bókun frá fulltrúum B-lista
Við undirritaðir fulltrúar framsóknarflokksins hörmum framgöngu bæjarráðs Grindavíkur og forystumanna bæjarstjórnar í meðferð þeirra varðandi forkaupsrétt Grindavíkurbæjar á fiskiskipinu Óla á Stað með þúsund tonnum af aflaheimildum.
Bæjarráð Grindavíkur hefur algerlega brugðist skyldum sínum um að gera allt sem í þeirra valdi stóð til að verja sameiginleg velferðarmál íbúa bæjarins og missa ekki aflaheimildir úr bænum.
Bæjarráð gaf tóninn strax þann 10. nóvember 2015, með bókun um að leggja til við bæjarstjórn að nota ekki lagalegan rétt sinn til að nýta forkaupsrétt á skipi og aflaheimildum þrátt fyrir að fyrirtæki í bænum hafi sýnt vilja til að ganga inn í kaupin og nægur tími til stefnu.
Það var mikið ábyrgðar- og dómgreindarleysi hjá forseta bæjarstjórnar að þrátt fyrir varnaðarorð lögmanns kaupanda og þess heimaaðila sem áhuga hafði á að ganga inn í kaupin var málið tekið út af dagskrá bæjarstjórnarfundar þann 15. desember 2015. Á þeim fundi átti að taka endanlega ákvörðun um hvort nýta ætti forkaupsrétt eða ekki enda er slíkt á forræði bæjarstjórnar og ljóst að mikið af upplýsingum voru komnar fram sem ekki voru til staðar á bæjarráðsfundi hinn 10. nóvember 2015. Ástæðan fyrir því að málið var tekið af dagskrá var bréf seljanda um afturköllun undirritaðs sölutilboð en ljóst var strax að kaupandi og seljandi deildu um gildi þeirrar afturköllunar.
Bókun bæjarráðs Grindavíkur þann 3. febrúar 2016 lýsir svo máttleysi forseta bæjarstjórnar og formanns bæjarráðs þar sem því er lýst að þann 1. febrúar 2016 hafi þeim verið tjáð á fundi með lögmönnum kaupanda og seljanda að kaupsamningur hafi verið undirritaður þann 27. janúar 2016. Orðrétt segir svo í fundargerð ”Bæjarstjórn Grindavíkur hefur aldrei fjallað efnislega um málið“. Nú er staðan sú að lagaleg óvissa er um hvort forkaupsrétturinn sé enn fyrir hendi og inngrip sveitarfélagsins gæti því haft í för með sér óvissu og tjón fyrir aðila málsins.
Forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs hefði verið nær að hafa áhyggjur af tjóni Grindavíkurbæjar því aðeins útsvarstekjur af þessum sjómannsstörfum sem tapast leika á milljónum ár hvert. Forkaupsréttur sveitarfélaga er mikilvægt tæki til að tryggja að störf í sjávarútvegi haldist í heimabyggð og ámælisvert að ekki hafa verið gert allt sem hægt var til að tryggja að Grindavíkurbær gæti nýtt sinn rétt án óvissu sem nú er komin upp.
Páll Jóhann Pálsson og Hjörtur Waltersson
Bókun frá G- og D-lista
Bæjarráð tók málið fyrst fyrir á fundi sínum um miðjan desember. Var það ákvörðun ráðsins að beina því til bæjarstjórnar að neyta ekki forkaupsréttarins í ljósi þess að fjölmögum spurningum var ósvarað. Þar á meðal lá ekki fyrir hvort fyrirtæki hér í sveitarfélaginu gæti keypt bátinn og aflaheimildirnar. Allan tímann voru heildarhagsmundir Grindavíkurbæjar í forgrunni. Á bæjarstjórnarfundi í desember þegar taka átti málið fyrir fengu bæjarfulltrúar formlega tilkynningu að seljandi hefði hætt við söluna. Þann 26. janúar sl. kemur í ljós að kominn er á samningur milli seljanda og kaupanda. Allan þennan tíma hafa forystumenn bæjarins reynt að fá sjávarútvegsfyrirtæki í bænum til að ganga inn í kaupin svo hægt sé að nýta forkaupsréttinn en það hefur enn ekki tekist.
Á fundi með Garðari, lögmanni Grindavíkurbæjar, upplýsti hann bæjarfulltrúa að fari bærinn í dómsmál og vinni forkaupsréttinn þá verður hann að kaupa bát ásamt aflaheimildum, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir kaupandi í sveitarfélaginu. Við teljum ekki skynsamlegt að fara þessa leið ef ekkert sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík getur gengið inn í kaupin. Þar sem um er að ræða rúmlega þriggja milljarða fjárfestingu finnst okkur áhættan verulega mikil fyrir sveitarfélagið.
Fulltrúar D og G lista7. Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm: lausn frá störfum sem bæjarfulltrúi
Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir lausn frá störfum með vísan til 3. mgr. 30. gr sveitarstjórnarlaga.
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Hjörtur, Kristín María og Páll Jóhann.
Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir lausn frá störfum með vísan til 3. mgr. 30. gr sveitarstjórnarlaga.
Ég, Bryndís Gunnlaugsdóttir óska eftir lausn frá störfum sbr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 en ég hef verið í leyfi frá störfum frá 1. júní 2015. Í ljósi breytta aðstæðna get ég ekki lengur sinnt bæjarstjórnarstörfum ásamt því að vera í 100% starfi á höfuðborgarsvæðinu og verð ég því miður að biðjast lausnar.
Bókun
Ég vil þakka bæjarbúum Grindavíkur fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér frá því að ég var fyrst kjörin í bæjarstjórn árið 2010, það hefur verið sönn ánægja að fá að starfa í þágu íbúa og bæjarfélagsins. Einnig vil ég þakka félagsmönnum í Framsóknarfélagi Grindavíkur sem og samstarfsfólki mínu í bæjarstjórn fyrir gott samstarf. Að lokum við ég sérstaklega þakka starfsfólki bæjarins fyrir gott samstarf enda er hlutverk Grindavíkurbæjar fyrst og fremst að veita þjónustu við íbúa bæjarins og þar gegnir starfsfólk bæjarins lykilhlutverki.
Bæjarstjórn óska ég velfarnaðar í sínum störfum.
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða beiðni Bryndísar og mun Páll Jóhann Pálsson taka sæti hennar í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.
Bæjarstjórn felur formanni kjörstjórnar að gefa út ný kjörbréf.
Bókun
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Framsóknar þökkum Bryndísi Gunnlaugsdóttur fyrir gott samstarf og það óeigingjarna starf sem hún hefur unnið fyrir bæjarfélagið og Framsóknarfélag Grindavíkur, og vekjum athygli á því að erfitt verður að fylla það skarð sem Grindavíkurbær hefur hlotið við að missa duglegan og vel menntaðan lögfræðing frá störfum.
Ekki er víst að bæjarbúar geri sér grein fyrir því hve mikilvægt það er fyrir bæjarfélagið að hafa vel menntað og duglegt fólk við stjórn bæjarins.
Páll Jóhann Pálsson og Hjörtur Waltersson
Bókun
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri þakka Bryndísi Gunnlaugsdóttur Holm fyrir gott samstarf og góð störf í bæjarstjórn Grindavíkur og óska henni velfarnaðar á öðrum vettvangi.8. Frístunda- og menningarnefnd: Breyting á fulltrúa G-lista
Þórunn Alda Gylfadóttir verður formaður í stað Anítu Sveinsdóttur
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Tillaga
Þórunn Alda Gylfadóttir verði formaður í stað Anítu Sveinsdóttur.
Samþykkt samhljóða9. Fundargerðir: Reykjanes Geopark
27. fundur
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur, bæjarstjóri, Hjörtur, Magnús Andri, Jóna Rut, Kristín María og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram10. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
Fundargerðir 833. og 834. fundar til kynningar. Fylgigögn sem lögð voru fram á fundunum á vef sambandsins, www.samband.is
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðirnar eru lagðar fram11. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2015
Fundargerð 698. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Guðmundur, Páll Jóhann, Kristín María og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram12. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum: Fundargerðir 2016
Fundir 699 og 700
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Guðmundur, Páll Jóhann, Kristín María og bæjarstjóri
Fundargerðirnar eru lagðar fram13. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2016
Fundargerð 467. fundar til kynningar
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, Páll Jóhann, Magnús Andri og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram14. Málefni eldri borgara: umfjöllun á aðalfundi SSS 2015
Ályktun öldungaráðs Suðurnesja
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, bæjarstjóri og Guðmundur
Ályktun öldungaráðs Suðurnesja lögð fram.15. Samskipti skóla og trúfélaga
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Kristín María, Guðmundur og Jóna Rut
Reglur um samskipti leik-, grunn- og tónlistarskóla í Grindavík við trúar- og lífsskoðunarfélög lagðar fram. Fræðslunefnd leggur til að reglurnar verði samþykktar.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar með 4 atkvæðum, Páll Jóhann, Hjörtur og Magnús Andri sitja hjá.16. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks - Framhaldsmál 2015
Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Guðmundur, Kristín María og Páll Jóhann
Minnisblað bæjarstjóra Garðs, Grindavíkur, Reykjanesbæjar, Sandgerðis og Voga eftir fund með félagsmálaráðherra dags. 16. desember 2015 lagt fram.
Bæjarráð vísar tillögunum til umfjöllunar í bæjarstjórn.17. Þjónustumiðstöð: beiðni um viðauka vegna tímabundinnar ráðningar starfsmanns
Afgreiða viðauka
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur
Byggingafulltrúi óskar eftir viðauka að fjárhæð 5,5 milljónir kr. við fjárhagsáætlun ársins 2016 til að ráða starfsmann tímabundið til áramóta vegna forfalla.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða og að hann verði fjármagnaður af handbæru fé.18. Kaup á nýjum bíl: ósk um viðauka.
Viðauki til afgreiðslu
Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og bæjarstjóri
Byggingafulltrúi óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna kaupa á bíl fyrir skólaakstur og ferðaþjónustu fatlaðra og eldri borgara.
Að fengnum tilboðum er ljóst að fjárheimild í fjárhagsáætlun ársins dugar ekki, og er því óskað eftir aukinni heimild að fjárhæð 3.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til að viðaukinn verði samþykktur og fjármagnaður með lækkun á framkvæmdakostnaði við félagslegar íbúðir, sem voru ofmetnar í áætlun.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.19. Bæjarráð Grindavíkur - 1400
Til máls tók: Hjálmar
Fundargerðin er lögð fram20. Bæjarráð Grindavíkur - 1401
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Guðmundur og Hjörtur
Fundargerðin er lögð fram21. Bæjarráð Grindavíkur - 1402
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Hjörtur, Kristín María, bæjarstjóri, Magnús Andri og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram22. Félagsmálanefnd - 62
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram23. Skipulagsnefnd - 14
Til máls tóku: Hjálmar, Magnús Andri, Jóna Rut, bæjarstjóri og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram24. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 11
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram25. Fræðslunefnd - 49
Til máls tóku: Hjálmar, Jóna Rut, bæjarstjóri og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram26. Frístunda- og menningarnefnd - 50
Til máls tóku: Hjálmar, Kristín María, Jóna Rut, Guðmundur, Magnús Andri, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram