Bæjarstjórn Grindavíkur - 479. fundur
- 19.12.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 479
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. PálssonBæjarfulltrúi
- Kristín María Birgisdóttir1. varaforseti
- Marta SigurðardóttirBæjarfulltrúi
- Jóna Rut JónsdóttirBæjarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttir2. varaforseti
- Þórunn Svava Róbertsdóttirvaramaður
- Hjörtur Walterssonvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gatnagerð: Fiskasund
Opnun tilboða í verkið "Fiskasund: Gatnagerð og lagnir" fór fram þriðjudaginn 28. nóvember 2017 á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Tilboð bárust frá Jón og Margeir ehf, Ellert Skúlason ehf og GG Sigurðsson ehf.$line$Tæknideild leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ellert Skúlason ehf.$line$
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins.
Til máls tóku: Kristín María
Opnun tilboða í verkið "Fiskasund: Gatnagerð og lagnir" fór fram þriðjudaginn 28. nóvember 2017 á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Tilboð bárust frá Jón og Margeir ehf, Ellert Skúlason ehf og GG Sigurðsson ehf.
Tæknideild leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ellert Skúlason ehf. Tilboðið er 41.236.950 kr. og er það 61,2% af kostnaðaráætlun.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka tilboði lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Ellert Skúlason ehf.2. Gatnagerð: Víkurhóp
Opnun tilboða í verkið "Víkurhóp: Gatnagerð og lagnir" fór fram þriðjudaginn 28. nóvember 2017 á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Tilboð bárust frá Jón og Margeir ehf, Ellert Skúlason ehf og GG Sigurðsson ehf.$line$Tæknideild leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Jón og Margeir ehf.$line$
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins.
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Opnun tilboða í verkið "Víkurhóp: Gatnagerð og lagnir" fór fram þriðjudaginn 28. nóvember 2017 á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Tilboð bárust frá Jón og Margeir ehf, Ellert Skúlason ehf og GG Sigurðsson ehf.
Tæknideild leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Jón og Margeir ehf. Tilboðið er 87.234.000 kr. og er það 82,7% af kostnaðaráætlun.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka tilboði lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Jón og Margeir ehf.3. Norðurhóp 62: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Hannesi Sigurgeirssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar4. Norðurhóp 64: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Hannesi Sigurgeirssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins.
Til máls tóku: Kristín María
Erindi frá Hannesi Sigurgeirssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar5. Norðurhóp 66: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Rýma arkitektum. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins.
Til máls tóku: Kristín María
Erindi frá Rýma arkitektum. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar6. Verbraut 1: breyting á skipulagi
Hópsnes ehf. sækir um leyfi til breytingar á skipulagi á þann hátt að Verbraut 1 verði sameinuð við Verbraut 3 og lóðin verði skilgreind í deiliskipulagi hafnarsvæðis í staðinn fyrir gamla bæjarins. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaaðili fái heimild skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 1123/2010 til þess að hefja gerð breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis, gamla bæjarins og aðalskipulagi þannig að lóðin Verbraut 1 falli inn í deiliskipulag hafnarsvæðis undir atvinnustarfsemi. Samþykkt með 3 atkvæðum, fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar greiða atkvæði á móti.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Ásrún, Guðmundur, Marta og Jóna Rut
Hópsnes ehf. sækir um leyfi til breytingar á skipulagi á þann hátt að Verbraut 1 verði sameinuð við Verbraut 3 og lóðin verði skilgreind í deiliskipulagi hafnarsvæðis í staðinn fyrir gamla bæjarins. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaaðili fái heimild skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 1123/2010 til þess að hefja gerð breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis, gamla bæjarins og aðalskipulagi þannig að lóðin Verbraut 1 falli inn í deiliskipulag hafnarsvæðis undir atvinnustarfsemi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 4 atkvæðum, Ásrún og Marta greiða atkvæði á móti, Hjörtur situr hjá.7. Melhóll jarðvegslosun: Útboð
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir rekstur á jarðvegslosunarsvæðinu við Melhól. Ellert Skúlason ehf. og Jón og Margeir ehf. hafa óskað eftir útboðsgögnum eftir forval. Tæknideild leggur til við bæjarstjórn að þeim verði boðið að fá útboðsgögnin og bjóða í verkið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir rekstur á jarðvegslosunarsvæðinu við Melhól. Ellert Skúlason ehf. og Jón og Margeir ehf. hafa óskað eftir útboðsgögnum eftir forval. Tæknideild leggur til við bæjarstjórn að þeim verði boðið að fá útboðsgögnin og bjóða í verkið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu tæknideildar8. Íþróttahús 2018: útboð
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir nýju íþróttahúsi ásamt tengibyggingu við Austurveg 1. Gögnin eru unnin af Batteríinu arkitektum. Tæknideild leggur til við bæjarstjórn að verkið verði boðið út í opnu útboði.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Hjörtur, Marta, Guðmundur og Ásrún
Tekin fyrir útboðsgögn fyrir nýju íþróttahúsi ásamt tengibyggingu við Austurveg 1. Gögnin eru unnin af Batteríinu arkitektum. Tæknideild leggur til við bæjarstjórn að verkið verði boðið út í opnu útboði.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu tæknideildar.9. Lóðaúthlutanir: Reglur
Bæjarráð hefur samþykkt reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Krisín María
Bæjarráð hefur samþykkt reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.10. Reglur og gjaldskrá: Gatnagerðargjöld
Lagðar eru til breytingar á 7. grein sem snúa að heimildum til sérstaks greiðslufrests á greiðslu gatnagerðargjalda. Bæjarráð samþykkti breytingarnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María
Lagðar eru til breytingar á 7. grein sem snúa að heimildum til sérstaks greiðslufrests á greiðslu gatnagerðargjalda. Bæjarráð samþykkti breytingarnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða breytingarnar á 7. grein.11. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Óskað er eftir 4.350.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2017 vegna framkvæmda við gatnamót Ránargötu og Seljabótar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við fyrirtöku málsins og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut og Guðmundur, Jóna Rut
Tillögur að breytingum á gatnamótum Ránargötu og Seljabótar lagðar fram.12. Afrekssjóður: ósk um viðauka fyrir árið 2017
Óskað er eftir 130.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017.$line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 130.000 við fjárhagsáætlun ársins 2017 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Kristín María
Óskað er eftir 130.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna afrekssjóðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 130.000 við fjárhagsáætlun ársins 2017 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.13. Fjárhagsáætlun 2017: viðauki vegna Víðihlið
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 480.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Kristín María
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 480.000 kr. til lagfæringa á íbúðum í Víðihlíð sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.14. Tölvubúnaðarkaup 2017: Beiðni um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2017
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 vegna tölvubúnaðarkaupa.$line$$line$Farið er fram á viðauka að fjárhæði 13.626.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á tölvukaupalið tölvudeildar 21421-2856.$line$$line$Gjaldfærðar verða 4.733.000 kr á einstakar deildir og eignfærðar hjá Eignasjóði verða 8.893.000 kr. sbr. fyrirliggjandi minnisblað. $line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
Til máls tók: Kristín María
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæði 13.626.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á tölvukaupalið tölvudeildar 21421-2856.
Gjaldfærðar verða 4.733.000 kr á einstakar deildir og eignfærðar hjá Eignasjóði verða 8.893.000 kr. sbr. fyrirliggjandi minnisblað.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.15. Slökkvilið Grindavíkur: Beiðni um viðauka
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 480.000 kr. vegna reksturs slökkviliðsbifreiða.$line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 480.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Til máls tók: Kristín María
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 480.000 kr. vegna reksturs slökkviliðsbifreiða.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 480.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.16. Slökkvilið Grindavíkur: ósk um viðauka vegna biðfreiðar.
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún, Jóna Rut, Guðmundur og Marta
Slökkvilið Grindavíkur óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 4.300.000 kr. til kaupa á Hilux d/c 2,4 diesel.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka að fjárhæð 4.300.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.17. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 854. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María og Marta
Fundargerð 854. fundar, dags. 24. nóvember sl. er lögð fram til kynningar.18. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
Fundargerð 723. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri, Ásrún og Jóna Rut
Fundargerð 723. fundar, dags. 23. nóvember sl. er lögð fram til kynningar.19. Fundargerðir: Svæðisskipulag Suðurnesja 2017
Fundargerð 11. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María,Guðmundur, bæjarstjóri
Fundargerð 11. fundar, dags. 11. desember sl. er lögð fram til kynningar.20. Fundargerðir: Reykjanes Geopark 2017
Fundargerð 40. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María og bæjarstjóri
Fundargerð 41. fundar, dags. 8. desember sl. er lögð fram til kynningar.21. Fundargerðir: Heklan 2017
Fundargerð 61. fundar til kynningar
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri og Jóna Rut
Fundargerð 61. fundar, dags. 8. desember sl. er lögð fram til kynningar.22. Fundargerðir: Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja 2017
Fundargerð 265. fundar til kynningar
Til máls tók: Kristín María
Fundargerð 265. fundar, dags. 22. nóvember sl. er lögð fram til kynningar.23. Bæjarráð Grindavíkur - 1465
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún, Marta, bæjarstjóri, Jóna Rut, Guðmundur og Hjörtur
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.24. Bæjarráð Grindavíkur - 1466
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Hjörtur og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.25. Skipulagsnefnd - 36
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Guðmundur, Marta, Hjörtur og Þórunn
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.26. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 22
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún, Hjörtur, Jóna Rut og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.27. Fræðslunefnd - 70
Til máls tóku: Kristín María, Þórunn, Ásrún og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.28. Félagsmálanefnd - 85
Til máls tóku: Kristín María, Ásrún, Jóna Rut, Guðmundur, Marta, Hjörtur, Þórunn og bæjarstjóri
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.29. Frístunda- og menningarnefnd - 68
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Ásrún, Hjörtur, Guðmundur og Þórunn
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.30. Hafnarstjórn Grindavíkur - 454
Til máls tóku: Kristín María, Jóna Rut, Guðmundur, Ásrún, Hjörtur, Marta, Hjörtur og Þórunn
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.