Bæjarráð Grindavíkur - 1696. fundur
- 02.12.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1696
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Mögulegt samstarf við Reykjanesbæ um hlutverk sem leiðandi sveitarfélag
Fyrir liggja drög Grindavíkurnefndar að bréfi vegna mögulegs samstarfs um að Reykjanesbær taki að sér hlutverk sem leiðandi sveitarfélag.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá FUMG: Árni Þór Sigurðsson (Teams) og Jóhanna Lilja Birgisdóttir (Teams).
Lögð fram drög að bréfi til Reykjanesbæjar um mögulegar viðræður um leiðandi sveitarfélag í félagsþjónustu og fræðslumálum.
Bæjarstjóra er heimilað að undirrita bréfið með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.2. Rekstur þjónustuúrræða í þágu fatlaðs fólks
Minnisblað unnið af Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Sv. Vogum vegna uppgjörs á samningi um sameiginleg úrræði í þágu fatlaðs fólks lagt fram til kynningar og efnislegrar afstöðu.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Minnisblað unnið af Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Sv. Vogum vegna uppgjörs á samningi um sameiginleg úrræði í þágu fatlaðs fólks er lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ganga til samninga í samræmi við umræður á fundinum.3. Undanþága frá skipulagslögum vegna ráðningar skipulagsfulltrúa, framhald
Veitt hefur verið áframhaldandi undanþága frá 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar fái áfram að gegna stöðunni. Undanþágan gildir til 27. maí 2026.
Veitt hefur verið áframhaldandi undanþága frá 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar fái áfram að gegna stöðunni. Undanþágan gildir til 27. maí 2026.
4. Ný vefsíða Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að veftré og stílbók fyrir miðla Grindavíkurbæjar. Farið yfir stöðuna á nýrri vefsíðu Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lögð fram drög að veftré og stílbók fyrir miðla Grindavíkurbæjar. Farið yfir stöðuna á nýrri vefsíðu Grindavíkurbæjar.5. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir stöðu mála
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.