Bæjarráð Grindavíkur - 1556. fundur
- 08.09.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1556
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skipaþjónustuklasi og uppbygging hafnarmannvirkja í Njarðvík
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um uppbyggingu hafnar- og upptökumannvirkja í Njarðvík. Verkefnið snýr að bættri aðstöðu í Njarðvíkurhöfn þannig að unnt sé að skapa tækifæri fyrirtækja til byggingar skipaþjónustuklasa. Hafnarstjóri Reykjaneshafnar og framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur mæta á fundinn til að kynna nánar þessar fyrirætlanir.
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur hf., Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um uppbyggingu hafnar- og upptökumannvirkja í Njarðvík. Verkefnið snýr að bættri aðstöðu í Njarðvíkurhöfn þannig að unnt sé að skapa tækifæri fyrirtækja til byggingar skipaþjónustuklasa.
Hafnarstjóri Reykjaneshafnar og ráðgjafi Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur mættu á fundinn til að kynntu nánar þessar fyrirætlanir.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir um skipaþjónustuklasa í Njarðvíkurhöfn og lýsir fullum stuðningi við verkefnið.2. Barnafjöldi í Laut 2020-2021
Leikskólastjóri og fræðslunefnd ná ekki saman um ákvörðun um fjölda barna í leikskólanum. Höggva þarf á hnútinn.
Ný greinargerð skólastjóra sett inn í dag 8.9.20. Þar leggur skólastjóri til 89 börn í stað 84 barna. Með því er öllum börnum fædd til og með mars 2019 tryggð skólavist.Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra leikskólans Lautar um að 89 börn fái skólavist í leikskólanum. Með því er öllum börnum fædd til og með mars 2019 tryggð skólavist.3. Starfsemi Kvikunnar 2020
Lögð fram samantekt verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar um starfsemina í húsinu það sem af er ári 2020.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram samantekt verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar um starfsemina í húsinu það sem af er ári 2020.4. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja í Grindavík
Ungmennafélag Grindavíkur óskar eftir því að hefja samstarf við Grindavíkurbæ við vinnu að nýrri framtíðarsýn íþróttasvæðisins í Grindavík.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipaður verði starfshópur til að leggja mat á kostnað og hugsanlegar sviðsmyndir vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja í Grindavík. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að erindisbréfi fyrir bæjarráð.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ungmennafélag Grindavíkur óskar eftir því að hefja samstarf við Grindavíkurbæ við vinnu að nýrri framtíðarsýn íþróttasvæðisins í Grindavík.
Bæjarráð kallar eftir þarfagreiningu og framtíðarsýn UMFG á íþróttasvæðinu.5. Beiðni um styrk vegna breytinga á klefum mfl. kvenna í knattspyrnu
Lagt fram erindi kvennaráðs Knattspyrnudeildar UMFG þar sem óskað er eftir styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi kvennaráðs Knattspyrnudeildar UMFG þar sem óskað er eftir styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Bæjarráð vísar erindinu til vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.6. Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram tillögur að breytingum á verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur.
Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar.7. Kvöldopnun í Þrumunni fyrir ungmenni 16 ára og eldri
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar leggur til að húsnæðið verði opið eitt kvöld í viku fyrir ungmenni, 16 ára og eldri.
Frístunda- og menningarnefnd tók jákvætt í hugmyndina og vísaði málinu til bæjarráðs.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar leggur til að húsnæðið verði opið eitt kvöld í viku fyrir ungmenni, 16 ára og eldri.
Frístunda- og menningarnefnd tók jákvætt í hugmyndina og vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir lengda opnun til áramóta og óskar eftir greinargerð um starfsemina sem lögð verði fram í vinnu við fjárhagsáætlun 2021.8. Viðhald á reiðvelli og reiðvegum
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir því að fjármagn sem fékkst til uppbyggingar reiðvallar verði skipt upp í annars vegar styrk til uppbyggingar reiðvallar og hins vegar reiðvegastyrk.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útbúa viðauka um málið og leggja fyrir bæjarráð.9. Leiksvæði í Selskógi
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að við gerð deiliskipulags fyrir Selskóg verði gert ráð fyrir leiksvæði sem fellur að umhverfinu, samanber önnur skógræktarsvæði á landinu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að við gerð deiliskipulags fyrir Selskóg verði gert ráð fyrir leiksvæði sem fellur að umhverfinu, samanber önnur skógræktarsvæði á landinu.10. Hjóla- og gönguvika í Grindavík
Hjóla- og göngudagar í Grindavík fóru fram 24.-27. júní sl. Lögð fram samantekt frá Hjólafærni á Íslandi um hvernig til tókst og hvað betur má fara í samgöngumálum í Grindavík.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hjóla- og göngudagar í Grindavík fóru fram 24.-27. júní sl. Lögð fram samantekt frá Hjólafærni á Íslandi um hvernig til tókst og hvað betur má fara í samgöngumálum í Grindavík.11. Viðburðir um jól og áramót 2020-2021
Lagt fram minnisblað um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar 2020-2021.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um viðburði á vegum Grindavíkurbæjar 2020-2021.12. Lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020
Lagðir fram lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðir fram lýðheilsuvísar fyrir Suðurnes 2020.13. Vöktun áhrifaþátta heilbrigðis í Grindavík 2019
Lagðar fram niðurstöður könnunar á áhrifaþáttum heilbrigðis sem framkvæmd var meðal Grindvíkinga árið 2019.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram niðurstöður könnunar á áhrifaþáttum heilbrigðis sem framkvæmd var meðal Grindvíkinga árið 2019.14. Ósk um niðurfellingu leigu 2020
Tjald ehf. óskar eftir niðurfellingu á leigu tjaldstæðisins fyrir árið 2020 vegna fordæmalausra aðstæðna.
Tjald ehf. óskar eftir niðurfellingu á leigu tjaldstæðisins fyrir árið 2020 vegna fordæmalausra aðstæðna.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari gögnum.15. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Óskað er viðauka að uppæð 23.000.000 kr. vegna göngu- og hjólastígs frá Grindavík að undirgöngum við golfvöll. Gert var ráð fyrir 12.000.000 kr. í verkefnið á þessu ári.
Verkefnið er unnið með Vegagerðinni.Óskað er viðauka að upphæð 23.000.000 kr. vegna göngu- og hjólastígs frá Grindavík að undirgöngum við golfvöll. Gert var ráð fyrir 12.000.000 kr. í verkefnið á þessu ári.
Verkefnið er unnið með Vegagerðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.16. Verkefni umhverfis- og skipulagssviðs
Óskað er viðauka að upphæð 900.000 kr. á lykil 09521-1110 vegna viðbótar 40% stöðugildis á skipulags- og umhverfissviði.
Óskað er viðauka að upphæð 900.000 kr. á lykil 09521-1110 vegna viðbótar 40% stöðugildis á skipulags- og umhverfissviði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.17. Mögulegt samstarf um rekstur hafna á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar leitar eftir viðræðum við Reykjaneshöfn og Grindavíkurbæ / -höfn um möguleika á samstarfi hafnanna um rekstur þeirra.
Lagt fram bréf frá Suðurnesjabæ, dags. 28. ágúst sl. með ósk um viðræður við Reykjaneshöfn og Grindavíkurbæ / -höfn um möguleika á samstarfi hafnanna um rekstur þeirra.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og hafnarstjóra að kanna með möguleika á samstarfi hafnanna.18. Lyktarmengun af völdum fiskþurrkunar
Borist hefur erindi frá íbúa um þessa mengun. Erindið er lagt fyrir að beiðni Helgu Dísar Jakobsdóttur bæjarfulltrúa.
Lagt fram erindi frá íbúa vegna lyktarmengunar af völdum fiskþurrkunar í Grindavík.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Helgu Dísar Jakobsdóttur bæjarfulltrúa.
Samkvæmt upplýsingum frá HES var hreinsibúnaður í ólagi tímabundið en er kominn í lag núna. Bæjarráð bendir á að kvartanir um lyktarmengun skulu beinast til HES.19. Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands 2020
Fundurinn fer fram 10. september 2020 kl. 16:00. Ákveða þarf hver fari með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum. Einnig þarf að tilnefna aðalmann og varamann í stjórn.
Aðalfundur Fisktækniskóla Íslands fer fram 10. september 2020 kl. 16:00.
Bæjarráð felur Hjálmari Hallgrímssyni að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.
Bæjarráð tilnefnir Ólaf Þór Jóhannsson sem aðalmann í stjórn og Fannar Jónasson til vara.20. Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid 19
Skýrsla starfshóps um fjárhagsleg áhrif Covid 19 á fjárhag sveitarfélaga lögð fram.
Skýrsla starfshóps um fjárhagsleg áhrif Covid 19 á fjárhag sveitarfélaga lögð fram.
21. Hertar sóttvarnir á landamærum
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi hafa sent frá sér ályktun.
Lögð fram ályktun frá stjórnarfundi Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi vegna hertra sóttvarna á landamærum.