Bæjarráð Grindavíkur - 1621. fundur
- 13.09.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1621
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umdæmisráð barnaverndar - Samningur
Nú þarf að láta skeika að sköpuðu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu er frestað til næsta fundar.2. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Lagðar fram tillögur ...
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram teikningar af 2. hæð Hafnargötu 12a.
Bæjarstjóra, sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna málið áfram.3. Félagsþjónusta - Beiðni um viðauka
Lögð fram beiðni um viðauka.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 8.500.000 kr. vegna félags- og skólaþjónustu, skv. framlagðri sundurliðun og að viðaukin verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.4. Bókasafn í Hópsskóla
Óskað er eftir umræðu um starfsemi Bókasafns Grindavíkur í Hópsskóla.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, skólastjóri grunnskólans og forstöðumaður bókasafnsins sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í að innrétta bókasafn í Hópsskóla og kaupa inn bækur fyrir safnið. Fjárheimildir eru fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun 2022.5. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Helga Dís vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Drög að samstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.6. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.7. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.8. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023
Drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samningsdrögin fyrir sitt leyti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.10. Bílastæði, aðgengi og umferðaröryggismál við Hópskóla
Tillögur að breytingu að aðgengi að Hópskóla lagðar fram ásamt tillögu að bílsstæðum og aðkomu að nýbyggingu við Hópskóla.
Skipulagsnefnd líst best á að sett verði einstefna frá innkeyrslu að Suðurhópi 1 norður fyrir innkeyrslu að Hópskóla. Var þeirri tillögu vísað til bæjarráðs á fundi skipulagsnefndar þann 5. september sl.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillögur að breytingu að aðgengi að Hópskóla lagðar fram ásamt tillögu að bílsstæðum og aðkomu að nýbyggingu við Hópskóla.
Skipulagsnefnd líst best á að sett verði einstefna frá innkeyrslu að Suðurhópi 1 norður fyrir innkeyrslu að Hópskóla. Var þeirri tillögu vísað til bæjarráðs á fundi skipulagsnefndar þann 5. september sl.
Bæjarráð leggur til að málið verði skoðað heildrænt miðað við fullbyggðan Hópsskóla og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.11. Beiðni um Hraðahindrun
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa í Staðarhrauni 11-22 vegna áskorunar um hraðahindrun í götuna.
Erindið var tekið fyrir í skipulagsnefnd þann 5. september sl. þar sem eftirfarandi var bókað:
Skipulagsnefnd hefur ákveðið að taka umferðaröryggismálin fyrir heildstætt. Könnun verður lögð fyrir bæjarbúa um umferðarhraða í þéttbýlinu ásamt því að ljúka við stefnu í umferðaröryggismálum fyrir sveitarfélagið. Erindinu er frestað.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa í Staðarhrauni 11-22 vegna áskorunar um hraðahindrun í götuna.
Erindið var tekið fyrir í skipulagsnefnd þann 5. september sl. þar sem eftirfarandi var bókað:
Skipulagsnefnd hefur ákveðið að taka umferðaröryggismálin fyrir heildstætt. Könnun verður lögð fyrir bæjarbúa um umferðarhraða í þéttbýlinu ásamt því að ljúka við stefnu í umferðaröryggismálum fyrir sveitarfélagið. Erindinu er frestað.
Bæjarráð samþykkir að sett verði hraðahindrun á Staðarhrauni en samþykkir jafnframt að taka umferðaröryggismálin fyrir heildstætt.12. Ósk um heimild til ráðningar í Slökkvilið Grindavíkur
Ósk um heimild til ráðninga í Slökkvilið Grindavíkur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um ráðningar fjögurra slökkviliðsmanna og viðauka við fjárhagsáætlun 2022 til þjálfunar og búnað þeirra slökkviliðsmanna að fjárhæð 5.548.000 kr.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.13. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Launaáætlun 2023 lögð fram. Samþykkja þarf forsendur/heimildir vöru- og þjónustukaupa á árinu 2023.
Fyrstu drög launaáætlunar fyrir árið 2023 er lögð fram.