Bæjarráð Grindavíkur - 1640. fundur
- 04.04.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1640
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Rafrænar undirritanir - Fundargerðir
Skjalastjóri mætir á fundinn og kynnir málið.
Óskað er eftir afstöðu til breytinga á samþykktum bæjarfélagsins til aðlögunar vegna fyrirhugaðra rafrænna undirritana fundargerða.
Skjalastjóri hefur kynnt málið fyrir sviðsstjórum sem sýna rafrænum undirritunum fundargerða áhuga.Skjalastjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir afstöðu til breytinga á samþykktum bæjarfélagsins til aðlögunar vegna fyrirhugaðra rafrænna undirritana fundargerða. Gera má ráð fyrir að árlegur þjónustukostnaður vegna þessa fyrirkomulags verði um 170.000 kr.
Bæjarráð felur skjalastjóra að gera tillögu að breytingum á samþykktunum og leggja að nýju fyrir bæjarráðsfund. Að því búnu verður málið lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.2. Úttekt á starfsemi slökkviliðsins ásamt stöðu brunavarnaáætlunar
Slökkviliðsstjóri mætir á fundinn og kynnir málið.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir nánari upplýsingum um hver fyrirhuguð áform Grindavíkurbæjar eru varðandi þau atriði sem þarfnast úrbóta á starfsemi slökkviliðsins.Slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem óskað er eftir nánari upplýsingum um hver fyrirhuguð áform Grindavíkurbæjar eru varðandi þau atriði sem þarfnast úrbóta á starfsemi slökkviliðsins.
Slökkviliðsstjóra, formanni bæjarráðs og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.3. Sérsóli - Beiðni um skólavist
Sótt er um viðauka vegna umsóknar um skólavist í sérskóla á höfuðborgarsvæðinu, auk aksturs og e.t.v. fylgdar.
Málinu er frestað til næsta fundar bæjarráðs.
4. Barnaverndarþjónusta - Tímabundið leyfi
Bæjarráð upplýst um að sveitarfélagið hefur fengið framlengda undanþágu til að reka eigin barnaverndarþjónustu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá mennta- og barnamálaráðuneytinu þar sem fram kemur að Grindavíkurbær hafi fengið framlengda undanþágu til að reka eigin barnaverndarþjónustu.5. Víkurbraut 62, 3 hæð - endurbætur
Húsfélagið við Víkurbraut 62 hefur undirritað verksamning við Grindina ehf. vegna þaks á byggingunni. Taka þarf til umræðu framtíðarnotkun á 3. hæð byggingarinnar sem er rými í eigu sveitarfélagsins. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni í framkvæmdir innanhúss á 3. hæð á árinu 2023.
Gögn sem fylgja málinu er þau sem lögð voru til grundavallar fyrirhuguðum framkvæmdum á árinu 2020, þegar bæta átti hljóðvist og starfsaðstæður á hæðinni fyrir félagsþjónustu og fræðslusvið.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Húsfélagið við Víkurbraut 62 hefur undirritað verksamning við Grindina ehf. vegna þaks á byggingunni. Tekin var til umræðu framtíðarnotkun á 3. hæð byggingarinnar sem er rými í eigu Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.6. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Verksamningur við Verkás vegna utanhússklæðningar á Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut 2 lagður fram til upplýsinga.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verksamningur við Verkás vegna utanhússklæðningar á Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut 2 lagður fram til upplýsinga.7. Fjárfestingaráætlun 2023 - leiktæki á grunnskólalóð, beiðni um viðauka.
Óskað er viðauka vegna leiktækja á lóð Hópskóla. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með tilfærslu á fjárheimildum innan fjárfestingaráætlunar fyrir árið 2023. Tölvupóstur frá umsjónarmanni fasteigna dagsettur 15. mars 2023 lagður fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá umsjónarmanni fasteigna dagsettur 15. mars sl. lagður fram. Sótt er um viðauka að fjárhæð 10.000.000 kr. vegna leiktækja á lóð Hópskóla. Viðaukinn verði fjármagnaður með tilfærslu á fjárheimildum innan fjárfestingaráætlunar fyrir árið 2023 af verkefninu Ásabraut 2 - leiktæki og lóð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.8. Framkvæmdir við Túngata 15-17 - beiðni um viðauka
Óskað er viðauka vegna framkvæmda við Túngötu 15-17. Tölvupóstur frá umsjónarmanni fasteigna lagður fram sem skýrir málið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá umsjónarmanni fasteigna dagsettur 15. mars sl. lagður fram. Sótt er um viðauka að fjárhæð 1.710.000 kr. vegna framkvæmda við Túngötu 15-17. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.9. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Frumdrög að sundlaugarsvæði lögð fram til samþykktar. Drög að tímalínu frá arkitekt lögð fram. Þá er óskað eftir samþykki fyrir því hefja vinnu við útboð á verkfræðihönnun verksins.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tímalína hönnunar og framkvæmda við sundlaug Grindavíkur frá Batteríið-arkitektar lögð fram. Jafnframt voru frumdrög að sundlaugarsvæði lögð fram til samþykktar. Þá er óskað eftir samþykki fyrir því hefja vinnu við útboð á verkfræðihönnun verksins.
Bæjarráð samþykkir frumdrögin og felur sviðsstjóra að hefja vinnu við útboð á verkfræðihönnun.10. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót
Framvinda framkvæmda við dælulögn frá Seljabót til umræðu og útfærsla á göngustíg meðfram Seljabót. Engin gögn verða lögð fyrir bæjarráð fyrir fundinn. Lokaskýrsla verður lögð fyrir bæjarráð á vormánuðum þegar verki lýkur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framvinda framkvæmda við dælulögn frá Seljabót var tekin til umræðu sem og útfærsla á göngustíg meðfram Seljabót.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.11. Lóðarleigusamningur vegna módúlbygginga
Erindi frá Laufás ehf. var lagt fyrir skipulagsnefnd þann 7. nóvember 2022 varðandi breytingar á reglum um hvenær lóðarleigusamningar eru gerðir vegna módúlbygginga. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu.
Fulltrúi Laufás hefur óskað eftir því að fá að bera erindið fyrir bæjarráð til að ræða erindið. Til upplýsinga þá hefur Ölfus samþykkt sambærilegar breytingar og hér um ræðir.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Laufás ehf. var lagt fyrir skipulagsnefnd þann 7. nóvember 2022 varðandi breytingar á reglum um hvenær lóðarleigusamningar eru gerðir vegna módúlbygginga.
Bæjarráð tekur vel í framangreindar breytingar og felur sviðsstjóra að útfæra þær nánar og leggja síðan tillögur að breytingum fyrir bæjarráðsfund.12. Jafnlaunakönnun 2023
Lögð fram skýrsla iCert, dags. 21. mars sl. vegna úttektar á jafnlaunakerfi Grindavíkurbæjar.
Auk þess lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu, dags. 29. mars 2023 þar sem Grindavíkurbæ er veitt heimild til að nota jafnlaunamerkið til 22. mars 2026.Lögð fram skýrsla iCert, dags. 21. mars sl. vegna úttektar á jafnlaunakerfi Grindavíkurbæjar. Auk þess lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu, dags. 29. mars sl. þar sem Grindavíkurbæ er veitt heimild til að nota jafnlaunamerkið til 22. mars 2026.
13. Innleiðing heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum
Borist hefur bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem þau sveitarfélög sem ekki hafa hafið markvissa innleiðingu markmiðanna að kynna sér þau og ávinning af innleiðingu.
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögunum.
14. Bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
Borist hefur sameiginlegt bréf innviðaráðherra og formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna tillagna verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.
Borist hefur sameiginlegt bréf frá innviðaráðherra og formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna tillagna verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.