Bæjarráð Grindavíkur - 1627. fundur
- 08.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1627
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skólar ehf - Yfirferð rekstrar og efnahags
Guðmundur Pétursson stjórnarformaður mætir á fundinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Guðmundur Pétursson stjórnarformaður mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann framtíðarsýn Skóla ehf.2. Slökkvilið Grindavíkur - Beiðni um viðauka
Beiðni um viðauka vegna launaliðar hjá slökkviliði Grindavíkur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og launafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka á launaliði hjá slökkviliði Grindavíkur vegna ársins 2022 að fjárhæð 7.475.000 kr. og lagt til að hann verði fjármagnaður með lækkun á liðnum 21611-1119.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.3. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Kvikan
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna fyrirhugaðs dansleik í Kvikunni þann 25.11.22.
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna fyrirhugaðs dansleik í Kvikunni þann 25.11.2022.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.4. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Gjáin
Sótt er um tækifærisleyfi vegna fyrirhugaðs Herrakvölds á vegum körfuknattleiksdeildar Grindavíkur þann 18.11.22.
Sótt er um tækifærisleyfi vegna fyrirhugaðs Herrakvölds á vegum körfuknattleiksdeildar Grindavíkur þann 18.11.2022 í Gjánni.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.5. Ósk um styrk á móti greiðslu fasteignagjalda
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að veita félaginu styrk á móti greiðslu fasteignagjalda á árinu 2023 með þeim fyrirvara að unnið verði að uppbyggingu hússins á því ári í samræmi við framlögð gögn.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist nýlega fasteignina Kreppu og óskar eftir styrk á móti greiðslu fasteignagjalda.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að veita félaginu styrk á móti greiðslu fasteignagjalda á árinu 2023 með þeim fyrirvara að unnið verði að uppbyggingu hússins á því ári í samræmi við framlögð gögn.
Bæjarráð samþykkir að veita félaginu styrk á móti fasteignagjöldum á árinu 2023 með sama fyrirvara og hjá frístunda- og menningarnefnd.6. Gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur
Uppfærð gjaldská Slökkvilið Grindavíkur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram uppfærð þjónustugjaldská Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.7. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2023
Tekjuviðmið fyrir árið 2023 eru lögð fram.
Bæjarráð þarf að vísa málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.Bæjqrráð leggur til að tekjuviðmið hækki um 8% fyrir árið 2023 og vísar því til bæjarstjórnar til samþykktar.
8. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Farið yfir úttektarskýrslu KPMG. Sviðsstjórar bæjarfélagsins mæta undir þessum dagskrárlið.
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einnig komu inn á fundinn sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, kl. 16:15 - 16:55.
Stjórnsýsluhópur vinnur málið áfram og sendir tillögur til KPMG.9. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir fjárfestingar og fleira.
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom inn á fundinn undir rekstri málaflokka 02 og 04.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kom inn á fundinn undir umræðum um fjárfestingar.