Bæjarráð Grindavíkur - 1564. fundur
- 26.11.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1564
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Forkaupsréttur vegna sölu á skuttogaranum Gnúpi GK-11, sknr. 1579
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í togarann og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í togarann og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.2. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Sturlu GK-124, sknr. 1272
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í skipið og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í skipið og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.3. Rekstraryfirlit janúar - september 2020
Rekstraryfirlit janúar - september 2020 er lagt fram.
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar - september 2020. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2020 fyrir tímabilið janúar - september 2020.
4. Eignfærð fjárfesting jan-sept 2020
Farið yfir stöðuna á eignfærðri fjárfestingu á tímabilinu janúar - september 2020.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Fjárfestingaáætlun 2020 lögð fram ásamt yfirliti yfir framkvæmdir janúar - september 2020.
5. Grenndarstöðvar
Upplýsingar frá Kölku um grenndargáma lagðar fram. Taka þarf ákvörðun um hvort Grindavíkurbær verði með og gera þá ráð fyrir í fjárhagsáætlun næsta árs.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Upplýsingar frá Kölku um grenndargáma lagðar fram. Bæjarráð samþykkir að taka þátt í þessu verkefni.