Bæjarráð Grindavíkur - 1698. fundur
- 06.01.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:45 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1698
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Inga Fanney Rúnarsdóttir sat fundinn í Teams.
1. Upplýsingar um dvöl barna í Grindavík
Grindavíkurnefnd óskar eftir upplýsingum um hvernig sveitarfélagið hyggst tryggja öryggi barna sem dvelja í Grindavík.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram bréf frá Grindavíkurnefndinni, dags. 23. desember 2025 þar sem óskað er upplýsinga um hvað Grindavíkurbær hefur gert og mun gera til að tryggja öryggi barna í bænum. Jafnframt lagt fram minnisblað frá bæjarstjóra til bæjarráðs vegna málsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.2. Sviðsábyrgðarregla og mótvægisaðgerðir
Borist hefur erindi frá dómsmálaráðuneytinu varðandi sviðsábyrgðarreglu og mótvægisaðgerðir.
Lagt fram bréf frá dómsmálaráðuneyti, dags. 17. desember 2025.
3. Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026
í samráðsgátt er nú frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.
Í samráðsgátt stjórnvalda er nú frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við efni frumvarpsins.4. Ráðgjöf við almannatengsl
Lagt fram tilboð í ráðgjöf varðandi almannatengsl.
Lagt fram tilboð frá Fjalari Sigurðarsyni að fjárhæð 640.000 kr. á mánuði vegna ráðgjafar við almannatengsl.
Bæjarráð samþykkir samning út núverandi kjörtímabil.5. Heilsa og líðan Grindvíkinga
Lagt fram minnisblað frá Embætti landlæknis um heilsu og líðan Grindvíkinga.
Lagt fram minnisblað frá Embætti landlæknis, dags. 4. desember 2025, um heilsu og líðan Grindvíkinga.