Bæjarráð Grindavíkur - 1519. fundur
- 25.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1519
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 14. mál:
1906055 Leikskólinn Krókur Gólfhiti
Samþykkt samhljóða.
2. Málefni leikskólabarna
Lögð er fyrir bæjarráð til kynningar gróf kostnaðaráætlun á þeirri framkvæmd að setja útistofu við leikskólann Krók ásamt teikningu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram til kynningar gróf kostnaðaráætlun á þeirri framkvæmd að setja útistofu við leikskólann Krók ásamt teikningu.
Bæjarráð samþykkir að hefja undirbúning framkvæmda í samráði við Skóla ehf. með það að markmiði að aðstaðan verði tilbúin í haust.3. Stjórnun grunnskóla - Beiðni um auknar heimildir
Skólastjóri óskar eftir auknum stjórnunarheimildum frá og með næsta skólaári.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni skólastjóra grunnskólans sem snýr að auknum stjórnunarheimildum frá og með næsta skólaári.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fræðslunefnd.4. Skipulag sundlaugarsvæðis
Hugmyndir forstöðumanns íþróttamannvirkja að uppbyggingu sundlaugarmannvirkja lagaðar fram. Frístunda- og menningarnefnd beinir því til bæjarráðs að flýta vinnu við framtíðarskipulag sundlaugarsvæðisins og hefja vinnu við þarfagreiningu hið fyrsta. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hugmyndir forstöðumanns íþróttamannvirkja að uppbyggingu sundlaugarmannvirkja lagðar fram. Frístunda- og menningarnefnd beinir því til bæjarráðs að flýta vinnu við framtíðarskipulag sundlaugarsvæðisins og hefja vinnu við þarfagreiningu hið fyrsta.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja að vinna þarfagreiningu vegna framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðis. Hafa skal samráð við Grunnskóla Grindavíkur, sunddeild UMFG og ungmennaráð. Skila skal greinargerð til bæjarráðs eigi síðar en 1. október nk.5. Samstarfssamningur við Körfuknattleiksdeild UMFG
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Körfuknattleiksdeild UMFG. Frístunda- og menningarnefnd samþykkti samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til bæjarráðs.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Körfuknattleiksdeild UMFG. Frístunda- og menningarnefnd samþykkti samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir samninginn.6. Samstarfssamningur 2019-2021
Lögð fram drög að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Hestamannafélagsins Brimfaxa. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samstarfssamningi milli Grindavíkurbæjar og Hestamannafélagsins Brimfaxa.
Bæjarráð samþykkir samninginn með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum er lúta að nákvæmara orðalagi greinar 13.7. Vegagerðin - Undirgöng undir Víkurbraut
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna ganga undir Víkurbraut við gatnamótin að Suðurhópi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið.Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna ganga undir Víkurbraut við gatnamótin að Suðurhópi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.8. Umsókn um framkvæmdaleyfi - 43 Grindavíkurvegur 2+1, 2019
Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna áframhaldandi framkvæmda við Grindavíkurveg (43).
Skipulagsnefnd samþykktir framkvæmdaleyfið.Umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna áframhaldandi framkvæmda við Grindavíkurveg (43).
Skipulagsnefnd samþykktir framkvæmdaleyfið.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.9. Suðurnesjalína 2: beiðni um umsögn
Óskað er eftir umsögn Grindavíkurbæjar á frummatsskýrslu Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við frummatsskýrslu Suðurnesjalínu 2 en bendir á að umrædd framkvæmd sé háð framkvæmdarleyfi Grindavíkurbæjar.
Erindinu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Grindavikur á frummatsskýrslu Suðurnesjalínu 2. Framkvæmdin við Suðurnesjalínu 2 er matsskyld skv. tl. 3.08 í viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfiáhrifum.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar ásamt helstu valkostum sem komu til greina. Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við frummatskýrsluna.
Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdarleyfi hjá Grindavíkurbæ.10. Víkurhóp 16 - 22 - Breyting á deiliskipulagi
Mótmæli íbúa nærliggjandi lóða vegna grenndarkynningar á deiliskipulagsbreytingu vegna Víkurhóps 16 til 22.
Skipulagsnefnd hafnar deiliskipulagsbreytingunni að teknu tilliti til athugasemda nærliggjandi íbúa samkvæmt grenndarkynningu. Guðmundur greiðir atkvæði með breytingunni aðrir eru á móti.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu.Mótmæli íbúa nærliggjandi lóða vegna grenndarkynningar á deiliskipulagsbreytingu vegna Víkurhóps 16 til 22.
Skipulagsnefnd hafnar deiliskipulagsbreytingunni að teknu tilliti til athugasemda nærliggjandi íbúa samkvæmt grenndarkynningu. Guðmundur greiðir atkvæði með breytingunni aðrir eru á móti.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Meirihluti bæjarráðs hafnar deiliskipulagsbreytingunni, Hjálmar situr hjá.11. Tjaldsvæði: Gjaldskrá 2018
Umhverfis- og ferðamálanefnd leggur til við bæjarráð að gjaldskrá tjaldsvæðisins verði breytt þannig að eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt.
Umhverfis- og ferðamálanefnd leggur til við bæjarráð að gjaldskrá tjaldsvæðisins verði breytt þannig að eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt.
Bæjarráð samþykkir 30% afslátt til eldri borgara og öryrkja.12. Fisktækniskóli Íslands: Styrktarsamningur
Fyrir liggur samningur um styrk upp í húsaleigu skólans. Leitað er samþykkis bæjarráðs.
Lagður fram styrktarsamningur milli Fisktækniskóla Íslands og Grindavíkurbæjar til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn.13. Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun
Samkvæmt fjármálaáætlun er horfið frá áformum um frystingu framlaga til Jöfnunarsjóðs.
Samkvæmt fjármálaáætlun er horfið frá áformum um frystingu framlaga til Jöfnunarsjóðs.
Bæjarráð fagnar niðurstöðunni.14. Leikskólinn Krókur Gólfhiti
Viðaukabeiðni vegna gólfhita í leikskólanum Króki. Fjármögnun viðaukans er með tilfærslu frá öðrum eignfærðum verkefnum, sjá nánar í minnisblaði.
Lögð fram viðaukabeiðni umsjónarmanns fasteigna Grindavíkurbæjar vegna gólfhita í leikskólann Krók. Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 3,2 milljónir króna. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun annarra liða í eignfærðri fjárfestingu um sömu fjárhæð, þ.e. 900 þús kr. lækkun á verki "Leikskólinn Krókur, nýjar útihurðar" og 2,3 milljónir króna lækkun á verki "Íþróttavöllur: Malbikun göngustígs að sundlaug."
Bæjarráð samþykkir erindið.15. Skipulagsnefnd - 59
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
16. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 38
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 37
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. Frístunda- og menningarnefnd - 84
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19. Hafnarstjórn Grindavíkur - 467
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.