Bæjarráð Grindavíkur - 1540. fundur
- 18.02.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1540
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Varaformaður stýrði fundi í forföllum formanns.
Í upphafi fundar óskaði varaformaður heimildar til að taka á dagskrá með afbrigðum forkaupsrétt vegna sölu á fiskiskipinu Kletti GK-39, sem dagskrárlið nr. 10.
Jafnframt er þess óskað að málsnúmer 1501168, sem var 2. dagskrárliður í áður sendu fundarboði, verði fellt út, en þess í stað komi málsnúmer 1710061 - Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi.
Samþykkt samhljóða
1. Reglur um lyfjagjafir barna í skólum Grindavíkurbæjar
Fjallað um reglur vegna lyfjagjafa barna í skólum Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram breytingatillaga á reglum um lyfjagjafir barna sem samþykktar voru 6. des. 2018. Tillagan er viðbót við reglurnar:
Jafnframt skal starfsfólk tryggja eftir mætti lyfjagjafir í öðrum tilvikum ef mælt er fyrir um það í læknisvottorði að lyfjagjöf á skólatíma sé nauðsynleg fyrir heildstæða velferð og líðan barnsins.
Bæjarráð samþykkir breytinguna.2. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Beiðni um viðauka vegna framkvæmda við íþróttahús að upphæð 20 milljónum króna. Viðaukabeiðnin er sundurliðuð og rökstudd í greinagerð sviðsstjóra.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka á fjárfestingaáætlun 2020 vegna framkvæmda við nýtt íþróttahús að fjárhæð 20.000.000 kr.
Gert hafði verið ráð fyrir að framkvæmdinni yrði lokið árið 2019 og því var ekkert áætlað á árið 2020.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Samningur við Loftmyndir ehf. vegna kortasjár
Lagður er fram samningur við Loftmyndir ehf. vegna kortasjár.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samningi við Loftmyndir ehf vegna kortasjár.
Bæjarráð samþykkir samninginn.4. Eignarráð og nýting fasteigna
Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á drögum að frumvarpi sem forsætisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið frumvarpsins er að skapa stjórnvöldum betri yfirsýn og möguleika til að stýra þróun eignarráða og nýtingar fasteigna.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á drögum að frumvarpi sem forsætisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt. Markmið frumvarpsins er að skapa stjórnvöldum betri yfirsýn og möguleika til að stýra þróun eignarráða og nýtingar fasteigna.
5. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Fjárfestingar á árinu 2019
Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga lagt fram.
Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga lagt fram.
Greinargerð um fjárfestingar ársins 2019 þarf skv. bréfinu að liggja fyrir í apríl 2020.6. Lánasjóður sveitarfélaga: Framboð til stjórnar
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga vegna ársins 2020 verður haldinn fimmtudaginn 26. mars nk. Allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja fundinn.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga vegna ársins 2020 verður haldinn fimmtudaginn 26. mars nk. Gefinn er frestur til 2. mars að koma með tilnefningar eða framboð til stjórnar Lánasjóðsins.
7. Viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur sett viðmiðunarreglurnar.
Lagðar fram viðmiðunarreglur Sambands íslenskra sveitarfélaga um framlög til stjórnmálaflokka.
8. Tækifærisleyfi - Lionsklúbbur Grindavíkur
Sótt er um leyfi til að halda kútmagakvöld í íþróttahúsinu 6. mars nk.
Lögð fram beiðni um umsögn vegna leyfisumsóknar Lionsklúbbs Grindavíkur til að halda kútmagakvöld í íþróttahúsinu 6. mars nk.
Bæjarráð leggur til að leyfið verði samþykkt.9. Almannavarnanefndir á Suðurnesjum
Málið er á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Málið er á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Farið yfir stöðu mála.10. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Kletti GK-39
Lagt er fyrir erindi frá Vísi ehf um að falla frá forkaupsrétti.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.