Bæjarráð Grindavíkur - 1563. fundur
- 10.11.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1563
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Forhönnun á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar liggur fyrir ásamt tillögu að áfangaskiptingu til næstu 10 ára.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnuðir frá Eflu kynntu málið í gegnum Teams. Einnig voru byggingafulltrúi og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í fjarsambandi í gegnum Teams.
Forhönnun á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram ásamt tillögu að áfangaskiptingu til næstu 10 ára.
Bæjarráð samþykkir áfangaskiptinguna.2. Gatnalýsing Þjónustusamningur 2020
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Fara þarf yfir fyrirkomulag þjónustusamnings og innkaupaaðferð.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að útboðslýsingu vegna viðhalds gatnalýsingar.
Lagt er til að fara í opið útboð vegna viðhalds og ledvæðingar gatnalýsingar til fjögurra ára.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Innkomuvöktun við Grindavík
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Farið yfir samning við Lögreglustjórann á Suðurnesjum og Neyðarlínuna vegna innkomuvöktunar við allar þrjár innkomur í Grindavík.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.4. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Opnunarfundargerð útboðs vegna göngustígs frá Grindavík að golfvelli lögð fram til upplýsinga.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram opnunarfundargerð, dags 7. nóv. sl., vegna útboðs á göngustíg frá Grindavík að Húsatóftarvelli.
8 aðilar lögðu fram tilboð. Jón og Margeir ehf. eru með lægsta tilboðið, 60,8% af kostnaðaráætlun.5. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús-hreystigarður
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Minnisblað sviðsstjóra lagt fram. Óskað er eftir viðauka vegna hreystigarðs á lóð íþróttamiðstöðvar.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram. Óskað er eftir viðauka á eignfærða fjárfestingu ársins 2020 vegna hreystigarðs á lóð íþróttamiðstöðvar að fjárhæð 21.989.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á verkefninu 32-115110 Gatnagerð í Hlíðarhverfi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Staðan á hönnun á nýjum leikskóla í Hlíðarhverfi kynnt.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun á nýjum leikskóla í Hlíðarhverfi kynnt.7. Reglur um úthlutun íbúða í Víðihlíð
Félagsmálanefnd leggur til breytingar á reglum sveitarfélagsins um úthlutun íbúða í Víðihlíð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að breyttum reglum Grindavíkurbæjar um úthlutun íbúða í Víðihlíð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.8. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt er til að Grindavíkurbær óski eftir fresti til skila á fjárhagsáætlun.
Það er ýmislegt sem eftir er að taka ákvörðun um og gott á fá lengri tíma því margt getur skýrst fram til áramóta.
Fasteignagjöld:
Í mars 2020 beindi Sambandið því til sveitarfélaga að horfa til verðlagsbreytinga vegna fasteignaskatts a- og c-liðar, sjá c) lið í meðfylgjandi. Í ljósi ákvörðunar á síðasta vinnufundi með fasteignagjöldin þarf að skoða það hvort eigi að horfa til þessarar ábendingar eða hvort það séu önnur atriði sem ganga framar.Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um frest vegna skila á fjárhagsáætlun 2021-2024.
9. Ósk um viðauka á fjárhagsáætlun 2020
Ósk um formlegt samþykki bæjarráðs vegna viðauka á fjárhagsáætlun 2020.
Lögð fram beiðni um viðauka á rekstur Grindavíkurhafnar árið 2020 að fjárhæð 1.495.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.10. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Borist hefur fyrirspurn um það hvort bæjarfélagið hafi hug á að fara af stað með verkefnið barnvæn sveitarfélög á árinu 2021.
Grindavíkurbær hefur ekki tök á að taka þátt í verkefninu að svo stöddu.
11. Baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi
Hvatt er til þess að taka þátt í þessu baráttumáli með því að roðagylla byggingar með appelsínugulu ljósi.
Bæjarráð tekjur jákvætt í erindið og vísar því til forstöðumanns þjónustumiðstöðvar.