Bæjarráð Grindavíkur - 1583. fundur
- 08.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1583
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umsókn um skólavist
Sótt er um heimild til að ljúka grunnskólanámi í grunnskóla í Reykjavík á komandi skólaári.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um heimild til að ljúka grunnskólanámi í grunnskóla í Reykjavík á komandi skólaári.
Bæjarráð samþykkir erindið og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Staðan á hönnun félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram til kynningar.3. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Greinargerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar á Reykjanesi lögð fram. Skipulagsnefnd samþykkir á fundi sínum þann 31. maí sl. að deiliskipulagstillagan verði send í auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Greinargerð og skipulagsuppdráttur deiliskipulagsbreytingar á Reykjanesi lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir á fundi sínum þann 31. maí sl. að deiliskipulagstillagan verði send í auglýsingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar.4. Hjólreiðafélag Reykjavíkur - óskað eftir leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge 2021
Hjólreiðafélag Reykjavíkur sækir um leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge sem ræst verður þann 12. júní kl. 19:00 frá Hafnarfirði.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur sækir um leyfi til að halda hjólreiðakeppnina Bluelagoon Challenge sem ræst verður þann 12. júní kl. 19:00 frá Hafnarfirði.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar bendir á að samkvæmt umferðarlögum nr 77/2019 ber þeim sem ætla að halda hjólreiðakeppni á vegum að fá leyfi hjá lögreglu, auk veghaldara.
Bæjarráð gerir athugasemd við það að óskað er eftir lokun á vegum vegna mótahaldins.5. Viðburður við Kleifarvatn
Ölgerðin sækir um leyfi fyrir viðburði við Kleifarvatn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ölgerðin sækir um leyfi fyrir minniháttar viðburði við Kleifarvatn þann 12. júní kl. 14:00-16:00.
Bæjarráð samþykkir erindið að því tilskyldu að svæðinu verði skilað í sama ástandi.6. Framkvæmdir við golfvöll
Hugmyndir um framkvæmdir við golfvöll lagðar fram til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hugmyndir um framkvæmdir við golfvöll lagðar fram.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.7. Hundagerði - Svæði innan Grindavíkurbæjar
Staðan á vinnu við hundagerði í Grindavík lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á vinnu við hundagerði í Grindavík lögð fram til kynningar.8. Hleðslustöðvar í Grindavík
Lagt fram til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staða málsins lögð fram til kynningar.9. Eignfærð fjárfesting jan-maí 2021
Farið yfir stöðuna á fjárfestingaráætlun 2021 eftir fyrstu fimm mánuði ársins.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram staða á fjárfestingaráætlun 2021 eftir fyrstu fimm mánuði ársins.10. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Framkvæmdum við göngu- og hjólastíg frá Bótinni að golfvelli er lokið. Lokaskýrsla lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdum við göngu- og hjólastíg frá Bótinni að golfvelli er lokið. Lokaskýrsla lögð fram.11. Landakaup - Vindheimar í Grindavík
Erindið lagt fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Lögð fram drög að kaupsamingi og afsali.
Bæjarráð samþykkir kaupin og felur bæjarstjóra undirritun.12. Gjaldfrjálsar tíðavörur í grunnskólanum
Málið er sett á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðssstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.13. Uppfærsla á fjárhagsbókhaldi
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.900.000 kr. vegna uppfærslu á fjárhagskerfum.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.900.000 kr. vegna uppfærslu á fjárhagskerfum.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.14. Launaþróun sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt fram minnisblað sviðsstjóra kjarasviðs sambandsins um launaþróun sveitarfélaga.
Minnisblað sviðsstjóra kjarasviðs Samband íslenskra sveitarfélaga um launaþróun sveitarfélaga er lagt fram til kynningar.
15. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 28. maí 2021, er lögð fram.
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 28. maí 2021, er lögð fram til kynningar.
16. Skipulagsnefnd - 86
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. Skipulagsnefnd - 87
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. Fræðslunefnd - 110
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19. Hafnarstjórn Grindavíkur - 477
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.