Bæjarráð Grindavíkur - 1529. fundur
- 22.10.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 20:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1529
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Samráðshópur um framtíð Kölku og sameiningarviðræður við Sorpu hefur sent bæjarráðum sveitarfélaganna á Suðurnesjum minnisblað.
Minnisblað frá samráðshópi um framtíð Kölku og sameiningarviðræður við Sorpu lagt fram.
Bæjarráð styður niðurstöðuna.2. Stækkun kirkjugarðsins á Stað í Grindavík
Sóknarnefnd Grindavíkursóknar er farin að huga að stækkun kirkjugarðsins og fer fram á að Grindavíkurbær taki á þeim þáttum sem snúa að bænum.
Minnisblað frá sóknarnefnd Grindavíkursóknar, dags. 11. mars 2019 og minnisblað bæjarstjóra, dags. 10.10.2019 lögð fram.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.3. Tré lífsins - minningargarðar
Óskað er eftir afstöðu til þess að opnaður verði minningargarður í sveitarfélaginu.
Bréf frá samtökunum Tré lífsins, dags. 20. september 2019, lagt fram.
4. Ráðstefnan Úr vörn í sókn
Ferðamálasamtök Reykjaness sendu frá sér greinargerð um helstu niðurstöður ráðstefnunnar.
Ályktun ráðstefnunnar "Úr vörn í sókn" sem haldin var á vegum Ferðamálasamtaka Reykjaness lögð fram.
5. Verkefnastjóri Kvikunnar
Fyrir liggur starfslýsing verkefnastjóra Kvikunnar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að auglýsingu fyrir verkefnisstjóra Kvikunnar.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir verkefnisstjóra eins fljótt og auðið er.6. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Umræðu um samstarfssamning við aðalstjórn UMFG haldið áfram frá síðasta fundi. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri kynnti stöðu málsins.7. Endurnýjun samstarfssamnings um skógræktarsvæðið við Selskóg
Lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd og umhverfis- og ferðamálanefnd hafa samþykkt samningana fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd og umhverfis- og ferðamálanefnd hafa samþykkt samningana fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn.8. Bílastæði við suðurhlið íþróttahúss
Teikningar og kostnaðaráætlun á bílastæði suður af íþróttahúsi kynnt. Framkvæmd er á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2019.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Teikningar og kostnaðaráætlun á bílastæði suður af íþróttahúsi lagðar fram. Framkvæmdin er á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2019.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.9. Félagsaðstaða eldri borgara
Eftir vettvangsferð á Selfoss þarf að ræða næstu skref.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.10. Knattspyrnudeild UMFG: Beiðni um styrk til kaupa á búnaði
Knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild UMFG fara fram á að keypt verði borð og stólar sem og annar búnaður til að unnt sé að halda stærri viðburði Grindvíkinga í íþróttamannvirkjum bæjarins.
Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir kaupum á borðum og stólum í íþróttahúsið í fjárhagsáætlun 2020 og felur sviðsstjóra að uppfæra áætlunina.
11. Fjárhagsáætlun 2020-2023 - Grindavíkurbær og stofnanir
Vísa þarf áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Birgitta Káradóttir og Irmý Þorsteinsdóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir 2020-2023 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.