Bæjarráð Grindavíkur - 1576. fundur
- 23.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1576
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur
Fyrir liggur ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur 2021-2025. Áætlunin hefur þegar verið samþykkt af húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Elísabet Pálmadóttir frá Inspectionem-skoðunarstofu vann áætlunina fyrir Grindavíkurbæ og mun hún tengjast fundinum með Teams fjarfundarbúnaði.
Lögð fram ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur 2021-2025. Áætlunin hefur þegar verið samþykkt af húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Elísabet Pálmadóttir frá Inspectionem-skoðunarstofu vann áætlunina fyrir Grindavíkurbæ og var hún gestur fundarins í gegnum Teams.2. Sumarstörf 2021
Minnisblað vegna sumarstarfa 2021 lagt fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað vegna sumarstarfa 2021 lagt fram. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.3. Endurskoðuð jafnréttisáætlun 2020
Ályktun félagsmálanefndar um að flýta einni aðgerð í aðgerðaráætlun lögð fyrir bæjarráð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um jafnréttis- og aðgerðaráætlun UMFG.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarnefnd að vinna úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan sveitarfélagsins á árinu 2021.4. Neyðarheimili fyrir börn
Leitað eftir samþykki bæjarráðs til að ganga til samninga um aðgang að neyðarheimili í barnaverndarmálum.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga um aðgang að neyðarheimili í barnaverndarmálum.5. Heimsendur matur - Bakkar
Málið lagt fyrir bæjarráð á ný. Betri gögn lögð fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar erindinu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hækka verð á heimsendum mat úr Víðihlíð í 1.340 kr.6. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Þörf er á viðauka vegna leigu Víkurbrautar 27 en þar er leiga 300.000 kr. á mán. Samningur er í 6 mánuði með framlengingarmöguleika. Eins þarf viðauka vegna framkvæmdanna á þriðju hæð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 á rekstrareininguna 04011 Skólaskrifstofa kr. 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.7. Bensínverð á Suðurnesjum
Borist hefur erindi varðandi hvatningu til að lækka bensínverð á Suðurnesjum.
Lagt fram.
8. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu mála.
Bókun
Í ljósi ófremdarástands sem skapast hefur vegna umferðar akandi og gangandi vegfarenda við gossvæðið mun bæjarráð leggja fram yfirlýsingu varðandi aðgengi að gossvæðinu og ferðir til og frá Grindavík að stikuðum göngustíg frá Suðurstrandarvegi í síðasta lagi miðvikudaginn 24. mars 2021.