Bæjarráð Grindavíkur - 1554. fundur
- 11.08.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1554
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Staðan á hönnun og útboðsgögnum fyrir áfanga 2 við Hópsskóla kynnt ásamt næstu skrefum.
Minnsiblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfssviðs lagt fram.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu á hönnun og útboðsgögnum fyrir áfanga 2 við Hópsskóla ásamt kynningu á næstu skrefum.2. Niðurrif á vatnstanki og húsagrunni við Efrahóp 20
Á 1535. fundi bæjarráðs var samþykkt að gamli vatnstankurinn yrði rifinn á þessu ári. Þá var samþykkt á 1553. fundi bæjarráðs að fjarlægja húsagrunn af Efrahópi 29.
Leitað var verða í framangreind verk frá tveimur aðilum. Sjá samanburð í fylgiskjali. Lægstbjóðandi var Ellert Skúlason ehf.
Óskað er eftir viðauka til að ganga í verkið.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hefur áður samþykkt að láta rífa gamla vatnstankinn sem og að fjarlægja húsgrunn að Efrahópi 29. Leitað var verða í framangreind verk frá tveimur aðilum. Lægstbjóðandi var Ellert Skúlason ehf.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram. Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 1.400.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.3. Gatnahönnun Eyjabakka - Ufsasund
Verðkönnun í gatnagerð og lagnir við Ufsasund hefur farið fram. Jón og Margeir ehf. var lægstbjóðandi. Sviðsstjóri óskar eftir heimild til að semja við lægstbjóðanda um verkið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verðkönnun í gatnagerð og lagnir við Ufsasund hefur farið fram. Jón og Margeir ehf. var lægstbjóðandi. Sviðsstjóri óskar eftir heimild til að semja við lægstbjóðanda um verkið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Jón og Margeir ehf.4. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús-hreystigarður
Lagðar eru til smávægilegar breytingar á frágangi á lóð í kringum íþróttahús.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar eru til smávægilegar breytingar á frágangi á lóð í kringum íþróttahús.
Bæjarráð samþykkir breytingarnar.5. Afnotaleyfi fyrir hjólreiðakeppni á Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi
Hjólreiðadeild UMFG, Víkings og hjólreiðafélagið Bjartur óska eftir afnotaleyfi á götum innan Grindavíkur laugardaginn 5. september fyrir Samskipamótið í hjólreiðum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hjólreiðadeild UMFG, Víkings og hjólreiðafélagið Bjartur óska eftir afnotaleyfi á götum innan Grindavíkur laugardaginn 5. september fyrir Samskipamótið í hjólreiðum.
Bæjarráð gerir athugasemd við að Vegagerðin loki Krýsuvíkurvegi við suðurenda Kleifarvatns, frá kl. 11:00 til 12:30 og einnig Suðurstrandarvegi til austurs við Grindavík frá kl. 9:00 - 13:00, laugardaginn 5. september 2020. Ótækt sé að vegum út frá Grindavík verði lokað af þessu tilefni. Að öðru leyti gerir bæjarráð ekki athugasemd við að keppnin verði haldin.6. Hjólreiðafélag Reykjavíkur óskar eftir að halda hjólreiðakeppnina Bláalónsþrautina
Hjólreiðafélag Reykjavíkur óskar hér með eftir að halda hjólreiðakeppnina Bláalónsþrautina þann 15. ágúst næstkomandi. Meðfylgjandi eru skjöl varðandi málið.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur óskar hér með eftir að halda hjólreiðakeppnina Bláalónsþrautina þann 15. ágúst næstkomandi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að keppnin verði haldin.7. Kórónuveiran COVID-19
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu mála.