Bæjarráð Grindavíkur - 1659. fundur
- 05.12.2023
- Fundargerð
- Kl. 13:30 - 17:00
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 1659
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Bæjarráð Grindavíkur sendir Kvenfélagi Grindavíkur hamingjuóskir með 100 ára afmælið sem var 24. nóvember s.l.
1. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu mála.2. Sprungur vegna jarðskjálfta og landriss í Grindavík 2023
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir umræðu um þær sprungur og holur sem hafa myndast og eru enn að myndast í Grindavík.
Horfa þarf á verkefnið til framtíðar, þ.e. hvaða sprungur og holur vilji er til að halda í sem áfangastað ferðamanna.
Unnið er í nákvæmu sprungukorti af þéttbýlinu og verður það lagt fram á fundinum ef það verður klárt.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Horfa þarf á verkefnið til framtíðar, þ.e. hvaða sprungur og holur vilji er til að halda í sem áfangastað ferðamanna.3. Tjón á mannvirkjum vegna jarðskjálfta og landriss í Grindavik 2023
Minnisblað frá skipulags- og umhverfissviði lagt fram. Stefnt er að því að bjóða Huldu Ragnheiði frá NTÍ á fundinn undir dagskrárliðnum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og lögfræðingur tæknideildar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einnig mættu á fundinn Hulda Ragnheiður Árnadóttir og Jón Örvar Bjarnason frá NTÍ og kynntu aðkomu sjóðsins að bótum vegna tjónaðra húsa.
Minnisblað frá skipulags- og umhverfissviði lagt fram.4. Metan- og vetnisframleiðsla á Reykjanesi - kynning á umhverfismatsskýrslu
Óskað hefur verið eftir umsögn Grindavíkurbæjar við umhverfismatskýrslu vegna metan- og vetnisframleiðslu á Reykjanesi.
Í samræmi við umsögn skipulagsnefndar af fundi nr. 128 er er umsögn skipulagsnefndar um umhverfismatsskýrslu vegna metan- og vetnisframleiðslu á Reykjanesi lögð fram til kynningar hjá Bæjarráði.Málinu er frestað.
5. Beiðni um endurskoðun á samstarfssamningi Grindavíkurbæjar við UMFG
Drög að viðauka við samstarfssamning milli Grindavíkurbæjar og UMFG um eflingu íþróttastarfs í Grindavík 2020-2024 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Um leið er óskað eftir viðauka við deild 06801-9901 að upphæð 8.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir ekki að svo stöddu þann samning sem liggur fyrir en mun skoða málið þegar líður á árið 2024.
6. Styrkbeiðni vegna áranna 2020 og 2021
Slysavarnadeildin Þórkatla óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. vegna áranna 2020 og 2021.
Slysavarnadeildin Þórkatla óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. vegna áranna 2020 og 2021.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.7. Rekstraryfirlit janúar - september 2023
Lagt fram rekstaryfirlit janúar - september 2023 ásamt skýringum forstöðumanna.
Rekstraryfirlit janúar til september 2023 er lagt fram.
8. Fasteignagjöld 2024
Taka þarf ákvörðun um álagningarhlutfall fasteignaskatts 2024. Lagt er til að hlutfall vegna íbúðarhúsnæðis verði óbreytt í 0,3% en hlutfall vegna atvinnuhúsnæðis hækki úr 1,45% í 1,5%
Tillaga að álagningarreglum fasteigna fyrir árið 2024 er lagt fram.
Bæjarráð vísar reglunum til bæjarstjórnar til samþykktar.9. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir breytingar á rekstrarliðum 2024 frá fyrri umræðu og óskað afsöðu bæjarráðs vegna nokkurra rekstareininga.
Farið yfir breytingar á rekstrarliðum 2024 frá fyrri umræðu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fresti á skilum á fjárhagsáætlun 2024-2027.