Bæjarráð Grindavíkur - 1530. fundur
- 05.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1530
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Stamphólsvegur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mættir á fundinn til að fara yfir stöðu framkvæmda og áætluð verklok.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ný útistofa við leikskólann Krók mun verða tekin í gagnið í byrjun árs 2020.2. Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst sl. var lögð fyrir áskorun skipulagsnefndar um að skipuð verði umferðaröryggisnefnd. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka málið upp í haust. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir á fund bæjarráðs til að taka stöðuna.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst sl. var lögð fyrir áskorun skipulagsnefndar um að skipuð verði umferðaröryggisnefnd. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka málið upp í haust.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna umferðaröryggisáætlunina áfram.3. Framkvæmdanefnd Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að sett verði á laggirnar framkvæmdanefnd í sveitarfélaginu í stað einstakra byggingarnefnda.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni.4. Tjaldsvæði: útboðsgögn
Útboð vegna reksturs tjaldsvæðis í Grindavík var opnað 28. október sl. Alls bárust fimm tilboð í reksturinn.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
5 tilboð bárust í rekstur tjaldsvæðis.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við hæstbjóðanda, þ.e. fyrirtækið Tjald ehf. um rekstur tjaldsvæðisins.5. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Vangaveltur um fjölgun barna á leikskólaaldri í tengslum við framkvæmdir á nýjum leikskóla. Spá til 10 ára.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs lagt fram.
Fundarhlé tekið kl. 18:25 - 18:356. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Miðflokkurinn óskar eftir að fá áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd.
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram.
7. Öldungaráð - Nýjar samþykktir
Á 499. fundi bæjarstjórnar Grindavíkur voru samþykktar nýjar samþykktir fyrir öldungaráð Grindavíkurbæjar. Samkvæmt samþykktunum skal bæjarstjórn kjósa þrjá fulltrúa í öldungaráð og þrjá til vara. Bæjarstjórn kýs formann öldungaráðs en ráðið kýs varaformann, ritara og skiptir að öðru leyti með sér verkum.
Kjöri í öldungaráð er vísað til bæjarstjórnar.
8. Gjaldskrá fráveitu - breyting vegna ársins 2020
Lagt er til að Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði 0,09% í stað 0,075%.
Vísa þarf gjaldskránni til bæjarstjórnar til samþykktar og í kjölfarið birta í Stjórnartíðindum.Lögð fram tillaga um að a. liður 3. gr., í Gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Grindavíkurbæ nr. 1155/2018, verði 0,09% í stað 0,075% og að breytingin taki gildi 1. janúar 2020.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.9. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar
Tillaga sem lögð var fram á bæjarráðsfundi 22.10.2019:
Heildarfjárhæð verði 0,8% af launum og launatengdum gjöldum að frádreginni lífeyrisskuldbindingu.
Skipting á heildarfjárhæð verði sem hér segir:
A-liður var 70%, verður 80%
B-liður var 20%, verður 12%
C-liður var 10%, verður 8%Lögð fram tillaga að breytingu reglna um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. Heildarfjárhæð verði 0,8% af launum og launatengdum gjöldum að frádreginni lífeyrisskuldbindingu. Skipting á heildarfjárhæð verði sem hér segir: A-liður var 70%, verður 80% B-liður var 20%, verður 12% C-liður var 10%, verður 8%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.10. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar
Tillaga að breytingum á starfsmannastefnu sem lögð var fram á bæjarráðsfundi þann 22.10.2019.
Heilsustyrkur hækki í 30.000 úr 25.000 kr.
Starfsaldurstengdar viðbótargreiðslur hækki um 20%.Lögð er fram tillaga að breytingu á starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. heilsustyrkur verði að hámarki 30.000 kr. og að starfsaldurstengdar viðbótargreiðslur hækki um 20%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.11. Beiðni um styrk vegna breytinga á knattspyrnuklefum
Lögð fram beiðni frá leikmönnum meistaraflokka UMFG í knattspyrnu um styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Lögð fram beiðni frá leikmönnum meistaraflokka UMFG í knattspyrnu um styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.12. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing
Óskað er eftir styrk til að ljúka við smíði módels af skútunni Fríðu.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr.
13. Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020
Samtökin óska eftir rekstrarstyrk frá bæjarfélaginu.
Lögð fram beiðni Stígamóta um styrk á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Stígamót um 50.000 kr. á árinu 2020.14. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk
Fjáreigendafélag Grindavíkur óskar eftir styrk til áburðarkaupa til að viðhalda gróðri í beitarhólfi í Krísuvíkurlandi.
Lögð fram beiðni um styrk frá Fjáreigendafélaginu á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr. og felur sviðsstjóra að uppfæra fjárhagsáætlun 2020 til samræmis.15. Námskeið vegna skoteldasýninga
Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar óskar eftir leyfi fyrir lítilli flugeldasýningu. Sýningin tengist námskeiði í uppsetningu og framkvæmd slíkra sýninga.
Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar óskar eftir leyfi fyrir lítilli flugeldasýningu í samstarfi við Björgunarsveitina Þorbjörn 24. nóvember nk. Sýningin tengist námskeiði í uppsetningu og framkvæmd slíkra sýninga.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að gera grein fyrir málinu á heimasíðu bæjarins.