Bæjarráð Grindavíkur - 1570. fundur
- 02.02.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1570
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ungbarnaleikskóli
Borist hefur erindi varandi ungbarnaleikskóla í Grindavík. Harpa Rakel og Helga Rut Hallgrímsdætur mæta á fundinn.
Harpa Rakel og Helga Rut Hallgrímsdætur mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar varðandi ungbarnaleikskóla í Grindavík.
2. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2021
Skipulag Vinnuskóla Grindavíkur 2021 kynnt.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að skipulagi vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2021 lögð fram.3. Fjárhagsstaða deilda UMFG vegna heimsfaraldurs
Ungmennafélag Grindavíkur óskar því eftir að hefja viðræður við Grindavíkurbæ vegna tekjufalls hjá deildum félagsins.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni frá Ungmennafélagi Grindavíkur þar sem óskað er eftir viðræðum við Grindavíkurbæ vegna tekjufalls hjá deildum félagsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.4. Gatnalýsing: Uppfærð stefna Grindavíkurbæjar
Lögð er fram til samþykktar tillaga að breytingu á stefnu Grindavíkurbæjar varðandi gatnalýsingu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram til samþykktar tillaga að breytingu á stefnu Grindavíkurbæjar varðandi gatnalýsingu.
Bæjarráð samþykkir framlagða stefnu og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.5. Fráveita Grindavíkurbæjar - útrás 1. áfangi
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna framkvæmdar við 1. áfanga endurbóta á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna framkvæmdar við 1. áfanga endurbóta á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.6. Gatnagerð Ufsasund: Framkvæmd 2020
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Ufsasundi á árinu 2020 lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Ufsasundi á árinu 2020 lögð fram.7. Gatnagerð Víðigerði: Framkvæmd 2020
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Víðigerði á árinu 2020 lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verkeftirlits vegna gatnagerðar í Víðigerði á árinu 2020 lögð fram.8. Tækjakaup Þjónustumiðstöð 2021
Í fjárfestingaráætlun ársins 2021 eru samþykkt kaup á skotbómulyftara og spjótlyftu. Niðurstöður verðfyrirspurna lagðar fram og heimildar óskað til að kaupa búnaðinn í samræmi við greinargerð sem fylgir erindinu. Óskað er heimildar til að fjármagna þann hluta kaupverðs tækjanna sem er umfram heimildir fjárfestingaráætlunar með sölu á öðru tæki þjónustumiðstöðvar og viðaukbeini hvað það varðar sett fram í greinagerð.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Í fjárfestingaráætlun ársins 2021 eru samþykkt kaup á skotbómulyftara og spjótlyftu. Niðurstöður verðfyrirspurna lagðar fram og heimildar óskað til að kaupa búnaðinn í samræmi við greinargerð sem fylgir erindinu. Óskað er heimildar til að fjármagna þann hluta kaupverðs tækjanna sem er umfram heimildir fjárfestingaráætlunar með sölu á öðru tæki þjónustumiðstöðvar.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 2.164.000 kr. sem fjármagnað verði með sölu á BobCat skotbómulyftara að fjárhæð 2.000.000. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 164.000 kr.9. Ósk um niðurfellingu leigu 2020
Borist hefur erindi frá Grindavík Experience.
Við þá ákvörðun að gefa eftir 20 prósent af leigu vegna heimsfaraldurs Covid-19 var haft að leiðarljósi að leigutaki hafði boðið í rekstur tjaldsvæðisins miðað við uppgefinn gestafjölda 2019 og árin þar á undan. Fyrir liggur að árið 2020 hafði gestakomum á tjaldsvæðið fækkað verulega. Ekki er um styrk að ræða heldur einungis niðurfellingu á hluta af leigu, eða kr. 867.955. Tjaldsvæðið er eini ferðaþjónustureksturinn sem leigður er út af hálfu Grindavíkurbæjar og því þessi ákvörðun engan veginn fordæmisgefandi fyrir önnur ferðaþjónustufyrirtæki í Grindavík.
Fulltrúar D og B-lista.10. Sjúkraflutningar í Grindavík
Bæjarráð hefur kallað eftir samningi um sjúkraflutningana. Brunavarnir Suðurnesja óska eftir svörum frá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð ítrekar beiðni um að fá að sjá samning um sjúkraflutninga í Grindavík.
Bæjarráð telur ekki rétt að fara í frekari viðræður við BS án þess að sjá umræddan samning.
Bókun
Áheyrnarfulltrúi S-lista leggur til við formann bæjarráðs og bæjarstjóra að hafa samband við stjórnarformann BS til að leysa þann hnút sem kominn er upp í samskiptum þessara aðila.
Áheyrnarfulltrúi S-lista.11. Fundargerðir ungmennaráðs 2020
Lagðar fram fundargerðir 38, 39 og 40.
Fundargerðir 38. fundar þann 6. mars 2020, 39. fundar þann 30. sept. 2020 og 40. fundar þann 5. nóv. 2020 eru lagðar fram til kynningar.