Bæjarráð Grindavíkur - 1609. fundur
- 19.04.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1609
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Siggeir Fannar Ævarssonvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Lagðar fram rýmistillögur frá hönnunarfyrirtækinu Gagarín vegna gestastofu Reykjanes jarðvangs í Kvikunni. Á fundinn mætir Hlín Helga Guðlaugsdóttir upplifunarhönnuður og verkefnastjóri hjá Gagarín.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinn mættu Hringur Hafsteinsson og Tobia Zambotti, sem var með gegnum Teams, frá hönnunarfyrirtækinu Gagarín.
Lagðar fram rýmistillögur frá Gagarín vegna gestastofu Reykjanes jarðvangs í Kvikunni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsvis að vinna málið áfram út frá tillögu A.2. Húsnæðsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Umfjöllun um húsnæðis- og starfsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til umfjöllunar voru húsnæðis- og starfsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjórum bæjarfélagsins, bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna málið áfram.3. Fyrirspurn um lóð við Suðurgarð
Fulltrúar Sæbýlis munu mæta á fundinn og kynna starfsemi sína við Ægisgötu 1 og áform um stækkun m.a. vegna fyrirspurnar um lóð við Suðurgarð. Undir dagskrárliðnum sitja aðilar í bæjarráði og skipulagsnefnd.
Fulltrúar Sæbýlis ehf. mættu á fundinn og kynntu starfsemi félagsins við Ægisgötu 1 og áform um stækkun m.a. vegna fyrirspurnar um lóð við Suðurgarð. Undir dagskrárliðnum sátu sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og nefndarmenn í skipulagsnefnd.
4. Samningur um mötuneyti Grunnskóla Grindavíkur
Taka þarf afstöðu til tilhögunar skólamáltíða í Grunnskóla Grindavíkur. Skólamatur ehf. hefur sagt upp samningi við sveitarfélagið og tekur uppsögnin gildi eftir lok líðandi skólaárs. Í fljótu bragði aðeins tveir kostir í stöðunni, þ.e. a) Semja við skólamat ehf. á ný eða b) Útboð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skólamatur ehf. hefur sagt upp samningi við Grindavíkurbæ og tekur uppsögnin gildi eftir lok líðandi skólaárs.
Bæjarráð samþykkir að semja við Skólamat ehf. til allt að þriggja ára með uppsagnarákvæði og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.5. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Staðan á hönnun félagsaðstöðu eldri borgar lögð fram. Vinnsluteikningar af innréttingum lagðar sérstaklega fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnun á félagsaðstöðu eldri borgara tekin til umræðu. Vinnsluteikningar af innréttingum lagðar fram.6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á samþykkt um gatnagerðargjöld.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á samþykkt um gatnagerðargjöld. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.7. Reglur um lóðarúthlutannir - tillaga að breytingu
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á reglum um lóðarúthlutanir.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd leggur til breytingar á reglum um lóðarúthlutanir. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.8. Flutningshús til Grindavíkur
Félagið Langeldur ehf. óskar eftir samráði við Grindavíkurbæ um fyrirhugaðar framkvæmdir við flutning og endurbyggingu Hendrikshúss sem í dag er við Strandgötu 17 í Hafnarfirði.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Félagið Langeldur ehf. óskar eftir samráði við Grindavíkurbæ um fyrirhugaðar framkvæmdir við flutning og endurbyggingu Hendrikshúss sem í dag er við Strandgötu 17 í Hafnarfirði.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja niðurstöðuna fyrir bæjarráð að nýju.9. Kvikmyndataka á Kleifarvatnsleið á Reykjanesi
Félagið Truenorth hefur tekið að sér kvikmyndatöku á Kleifarvatnsleið og óskar eftir að gerður verði samningur vegna verkefnisins.
Félagið Truenorth hefur tekið að sér kvikmyndatöku á Kleifarvatnsleið og óskar eftir að gerður verði samningur vegna verkefnisins.
Grindavíkurbær getur ekki skrifað undir samninginn sem leigusali þar sem landið er ekki í eigu bæjarfélagsins.10. Framtíð sundlaugarsvæðis
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um þróun hugmynda að framtíð sundlaugarsvæðis undanfarna tvo áratugi lagt fram ásamt bókun 114. fundar frístunda- og menningarnefndar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um þróun hugmynda að framtíð sundlaugarsvæðis undanfarna tvo áratugi lagt fram ásamt bókun 114. fundar frístunda- og menningarnefndar.
Sigurður Óli leggur til að ráðist verði í frumhönnun á sundlaugarsvæði á sama tíma og unnið verður að gerð deiliskipulags íþróttasvæðis. Tilgangurinn er sá að flýta mögulegri uppbyggingu á svæðinu. Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.11. Leiksvæði í Grindavík
Drög að framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur áður samþykkt framtíðarsýnina fyrir sitt leyti.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur áður samþykkt framtíðarsýnina fyrir sitt leyti. Bæjarráði líst vel á þær tillögur sem fram koma í skjalinu.12. Flöggun á vegum Grindavíkurbæjar
Minnisblað um flöggun á vegum Grindavíkurbæjar lagt fram. Frístunda- og menningarnefnd telur vanta fánastangir við innkomu í bæinn auk meira áberandi fánastangar miðsvæðis sem væri "aðalfánastöng" bæjarins sem hægt væri að nýta við ýmiskonar tilefni, t.d. á 17. júní.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað um flöggun á vegum Grindavíkurbæjar lagt fram. Frístunda- og menningarnefnd telur vanta fánastangir við innkomu í bæinn auk meira áberandi fánastangar miðsvæðis sem væri "aðalfánastöng" bæjarins sem hægt væri að nýta við ýmiss konar tilefni, t.d. á 17. júní.13. Sjómannadagsblað Grindavíkur
Borist hefur erindi frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur þar sem þess er farið á leit að Grindavíkurbær kosti dreifingu á sjómannadagsblaðinu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Borist hefur erindi frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur þar sem þess er farið á leit að Grindavíkurbær kosti dreifingu á sjómannadagsblaðinu.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.14. Jafnlaunakönnun 2022
Niðurstaða úttektarteymis iCert, að lokinni viðhaldsúttekt, er að rekstur og viðhald jafnlaunakerfis Grindavíkurbæjar hefur gengið vel og uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess samkvæmt IST-85.
Niðurstaða úttektarteymis iCert, að lokinni viðhaldsúttekt, er að rekstur og viðhald jafnlaunakerfis Grindavíkurbæjar hefur gengið vel og uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess samkvæmt IST-85.