Bæjarráð Grindavíkur - 1501. fundur
- 04.12.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1501
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Knattspyrnudeild UMFG - beiðni um styrk til fasteignakaupa
Málið var tekið fyrir á 1500. fundi bæjarráðs og þar óskað eftir að formaður knattspyrnudeildarinnar mæti á næsta fund bæjarráðs.
Til fundarins voru mættir frá knattspyrnudeild UMFG Gunnar Már Gunnarsson og Haukur Guðberg Einarsson.
Bæjarráð óskar eftir að knattspyrnudeildin ræði við aðalstjórn UMFG um erindið.2. Fjárhagsaðstoð - Grunnur 2019
Félagsmálanefnd samþykkir breytingu á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, þ.e. hækkun úr kr. 135.000 í 150.000. Ekki þörf á breytingum á fjárhagsáætlun 2019 gangi tillagan eftir. Þarf að fá samþykki bæjarstjórnar fyrir árslok.
Félagsmálanefnd samþykkir breytingu á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, þ.e. hækkun úr kr. 135.000 í 150.000. Ekki þörf á breytingum á fjárhagsáætlun 2019 gangi tillagan eftir.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu félagsmálanefndar.3. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi
Kristín María Birgisdóttir hefur verið ráðin upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar.
4. Túngata 15-17: Ósk um viðauka
Lögð fram ósk um viðauka vegna starfsemi Túngötu 15-17, að upphæð 3.280.823 sbr. minnisblöð.
Lögð fram ósk um viðauka vegna starfsemi Túngötu 15-17, að upphæð 3.280.823.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.5. Slökkvilið Grindavíkur - Samantekt og áætlun um eldvarnaeftirlit
Slökkviliðsstjóri óskar eftir 340.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að greiða fyrir aðkeypta þjónustu vegna eldvarnareftirlits sem ljúka á fyrir nk. áramót.
Slökkviliðsstjóri óskar eftir 340.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að greiða fyrir aðkeypta þjónustu vegna eldvarnareftirlits sem ljúka á fyrir nk. áramót.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.6. Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs um notkun á útikennslusvæðinu.
Jafnframt vísar bæjarráð málinu til umfjöllunar í umhverfis- og ferðamálanefnd.7. Frágangur við Hópið - sandfok af plani
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Erindið er lagt fyrir að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að skoða hvort hægt sé að malbika bílastæðið að hluta á árinu 2019.8. Computer Vision ehf - Myndavélakerfi
Félagið býður myndavélakerfi sem greinir umferð bifreiða.
Computer Vision ehf býður myndavélakerfi sem greinir umferð bifreiða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir kynningu á möguleikum kerfisins og kostnaði.