Bæjarráð Grindavíkur - 1575. fundur
- 16.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1575
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 7. mál: 2001074 - Jarðskjálftar og landris við Grindavík.
Samþykkt samhljóða.
1. Ósk um bætta aðstöðu vegna farnetssambands
Fulltrúar Mílu ehf. tengjast fundinum með fjarfundarbúnaði.
Fulltrúar Mílu ehf. komu á fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.
Míla leggur fram eftirfarandi beiðnir til að bæta fjarskiptasamband í Grindavík og til að tryggja rekstraröryggi ef rafmagn fer af bænum:
1. Míla ehf óskar eftir að reisa mastur á lóð félagsins við Víkurbraut 25. 18 m. háan járnstaur til að hýsa farsímaloftnet og þar með bæta farnetssamband í Grindavíkurbæ.
2. Míla ehf óskar eftir að setja farsímaloftnet í 15-18 m hæð við norður hluta bæjarins á hentugum stað.
3. Míla ehf óskar eftir að Grindavíkurbær setji í deiliskipulag aðstöðu fyrir farsímafélög við í austurhluta bæjarins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.2. Niðurgreiðslur vegna daggæslu dagforeldra
Samanburður liggur frammi og erindið ætti að vera afgreiðslutækt.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2022.3. Starfsmannastefna - breyting vegna jafnlaunastefnu
Breyting á jafnlaunastefnu, tilvísanir í lög breytt vegna nýrra laga. Lög 150/2020 koma í stað laga 10/2008.
Vísa þarf stefnunni til samþykktar í bæjarstjórn 30.03.2021.Breytingin felur í sér tilvísun í lög 150/2020 í stað brottfelldra laga nr. 10/2008.
Bæjarráð vísar stefnunni til staðfestingar í bæjarstjórn.4. Jafnlaunakönnun 2021
Skýrsla PwC um jafnlaunakönnun lögð fram.
Skýrsla PwC um jafnlaunakönnun lögð fram.
5. Áskorun vegna framtíðaruppbyggingar á Reykjanesi
Samtök atvinnurekenda Reykjanesi (SAR) beina þessari áskorun til allra bæjarstjórnanna í landshlutanum.
Samtök Atvinnurekenda Reykjanesi (SAR) vilja skora á allar bæjarstjórnir á Reykjanesi að sameinast um framtíðar uppbyggingu svæðisins og þar með að beita sér meðal annars fyrir því að raforkudreifing inn á svæðið verði tryggð með lagningu Suðurnesjalínu II, Reykjanesbraut verði kláruð og að verkefni finnist fyrir Helguvíkurvíkurhöfn sem standast kröfur og samræmast stefnu sveitarfélaganna og Kadeco um uppbyggingu svæðisins.
Bæjarráð tekur undir áskorun SAR.6. Sjúkraflutningar í Grindavík
Lagður fram samningur um sjúkraflutninga á svæði HSS ásamt samkomulagi um breytingar á samningnum.
Lagður fram samningur um sjúkraflutninga á svæði HSS ásamt samkomulagi um breytingar á samningnum.
7. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu mála.