Bæjarráð Grindavíkur - 1660. fundur
- 12.12.2023
- Fundargerð
- Kl. 13:30 - 15:15
- í ráðhúsi Reykjavíkurborgar
- Fundur nr. 1660
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Birgitta Rán Friðfinnsdóttirvaramaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023
Farið yfir stöðu mála.
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menninganefndar og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Leikskólamál.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti stöðu leikskólamála. Bæjarráð felur honum að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Samningur við Janus-heilsueflingu.
Samningi við Janus-heilsueflingu hefur verið sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarmála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.2. Íþróttafólk Grindavíkur 2023
Í ljósi aðstæðna er lagt til að víkja frá gildandi verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur 2023. Bæjarráð felur tveimur fulltrúum frá Grindavíkurbæ og tveimur fulltrúum aðalstjórnar UMFG að velja íþróttakarl, íþróttakonu, íþróttalið og þjálfara Grindavíkur 2023. Stefnt er að því að tilkynna um valið í janúar.
Sviðsstjóri frístunda- og menninganefndar og sviðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Í ljósi aðstæðna er lagt til að víkja frá gildandi verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur 2023. Bæjarráð felur tveimur fulltrúum frá Grindavíkurbæ og tveimur fulltrúum aðalstjórnar UMFG að velja íþróttakarl, íþróttakonu, íþróttalið og þjálfara Grindavíkur 2023. Stefnt er að því að tilkynna um valið í janúar.
Bæjarráð samþykkir erindið.3. Styrkbeiðni vegna áranna 2020 og 2021
Málinu var frestað á síðasta fundi.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Styrktarbeiðni vegna 2024 - Samtök um kvennaathvarf
Beiðni um styrk á árinu 2024
Lögð fram beiðni um rekstarstyrk á árinu 2024.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.5. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2024
Lagt er til að tekjuviðmið séu óbreytt frá árinu 2023.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tekjuviðmið verði óbreytt frá árinu 2023.
6. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir rekstaráætlun 2024.
Farið yfir stöðu á rekstaráætlun 2024.