Bæjarráð Grindavíkur - 1638. fundur
- 14.03.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1638
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Kynnt verður vinna sem fram hefur farið að undanförnu. Sviðsstjórar bæjarfélagsins mæta á fundinn. Engin undirgögn fylgja málinu.
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og hafnarstjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram hugmyndir að nýju skipuriti.2. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Málið tekið fyrir að nýju í framhaldi af síðasta bæjarráðsfundi.
Málið tekið fyrir að nýju í framhaldi af síðasta bæjarráðsfundi.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.
Fundarhlé tekið kl. 16:25 - 16:30
Bókun
Fisktækniskólinn sendi Grindavíkurbæ erindi og er að óska eftir að bærinn taki að sér að leita lausna og tryggja skólanum viðunandi aðstöðu þar til hið opinbera hefur tekið til endurskoðunar þá samninga sem gilda við skólann. En Fisktækniskólinn er að missa núverandi húsnæði og þurfa því að komast í aðra aðstöðu um áramótin næstu. Fisktækniskólinn er í eigu fjölda hluthafa og er Grindavíkurbær stærsti hluthafinn, með 31,6% hlutafjár. Við undrumst mjög vinnubrögð meirihlutans að ætla að gangast í ábyrgðir fyrir skólann sem er í eigu margra hluthafa án þess að leitast hafi verið eftir aðkomu annarra eigenda að málinu. Ábyrgðir sem um ræðir er húsaleigusamningur á Hafnargötu 8, oftast kallað Hælsvíkurhúsið og getur hlaupið á tugum ef ekki hundruðum milljóna. Meirihlutinn er þess fullviss um að hið opinbera komið að þessum málum með gerð nýs samnings við skólann þar sem styrkur verður greiddur af hendi hins opinbera fyrir húsaleigunni og það komi því aldrei til greiðslu frá Grindavíkurbæ. Ef og hefði eru aldrei góð blanda þegar verið er að gangast í miklar ábyrgðir og vert að benda á að við erum að sýsla með fjármuni Grindvíkinga og getum ekki réttlætt svona ákvarðanir.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir, bæjarfulltrúi M-listans
Fundarhlé tekið kl. 16:32 - 16:45
Bókun
Í máli þessu er meirihluti að fela bæjarstjóra að kanna möguleika á drögum að leigusamningi. Frekari umræða og eftir atvikum afgreiðsla málsins fer fram síðar í bæjarráði eftir fund bæjarstjóra með eigendum Hælsvíkurhússins. Innihald bókunar fulltrúa M ? listans á því ekki við á þessu stigi málsins.
Fulltrúar B-, D- og U-lista.3. Jafnlaunakönnun 2023
Launafulltrúi kemur á fundinn og kynnir niðurstöður.
Launafulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti niðurstöður launakönnunar sem unnin var í febrúar.
Niðurstöðuskýrsla jafnlaunagreiningar 2023, sem unnin var af PWC, vegna janúarlauna 2023 er lögð fram. Niðurstaðan er sú að ekki mælist kynbundinn launamunur heildarlauna að teknu tilliti til persónubundinna þátta.4. Samráðshópur vegna söfnunar úrgangs
Borist hefur erindi frá Kölku um að myndaður verði formlegur samráðshópur vegna breytinga á flokkun og sorphirðu heimilisúrgangs.
Lagt fram erindi frá Kölku, dags. 2. mars sl. þar sem óskað er eftir tilnefningu Grindavíkurbæjar á fulltrúa í samráðshóp vegna breytinga á söfnun úrgangs við heimili.
Bæjarráð tilnefnir Jón Þórisson, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í samráðshópinn.5. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Könukvöld kkd Grindavík
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar eftir tímabundnu áfengisleyfi vegna fyrirhugaðs konukvölds í Gjánni þann 10. mars 2023.
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Slökkvilið Grindavíkur gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.Bæjarráð staðfestir áður veitt leyfi.