Bæjarráð Grindavíkur - 1599. fundur
- 23.11.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1599
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, fulltrúi THG arkitekta og öldungaráð mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Farið verður yfir hönnun á félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, fulltrúi THG arkitekta og öldungaráð sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hönnunargögn á félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram.2. Aðgengismál í Grindavíkurbæ
Ráðinn var sumarstarfsmaður á skipulags- og umhverfssviði til að skoða aðgengismál Grindavíkurbæjar. Til skoðunar voru fasteignir í eigu sveitarfélagsins ásamt nokkrum útisvæðum. Til upplýsinga eru gögn frá vinnunni lögð fyrir bæjarráð.
Í drögum að fjárhagsáætlun, fyrir aðra umræðu, fyrir árið 2022 eru 6 milljónir eyrnamerktar aðgengismálum. Þá eru önnur verkefni á fjárfestingaráætlun sem munu bæta aðgengi fyrir alla.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ráðinn var sumarstarfsmaður á skipulags- og umhverfssvið til að skoða aðgengismál í fasteignum Grindavíkurbæjar og nokkrum útisvæðum.
Gögn frá þessari vinnu lögð fram til kynningar.
Í drögum að fjárhagsáætlun, fyrir síðari umræðu, fyrir árið 2022 eru 6 milljónir eyrnamerktar aðgengismálum. Þá eru önnur verkefni á fjárfestingaráætlun sem munu bæta aðgengi fyrir alla.3. Viðhald eignasjóðs - beiðni um viðauka
Viðaukabeiðni vegna viðhalds á eignum eignasjóðs lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Viðaukabeiðni vegna viðhalds á eignum eignasjóðs lögð fram.
Óskað er eftir hækkun á viðhaldi fasteigna bæjarins um kr. 8.500.000 kr. skv. meðfylgjandi greinargerð.
Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á verkefninu "Víkurbraut 62, Breytingar á 3. hæð" um 8.500.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.4. Húsnæðisúrræði v. Víkurbraut 62, 3. hæð
Frestað frá síðasta fundi. Tekið fyrir að nýju.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sigurður Óli vék af fundi við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Bæjarráð samþykkir að taka á leigu viðbótarhúsnæði fyrir félags- og skólaþjónustu
og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra fjárhagsáætlun 2022 til samræmis.5. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Málið er sett á dagskrá að beiðni Birgittu H. Ramsay Káradóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og frestar málinu til næsta fundar bæjarráðs.
6. Breyting á barnaverndarlögum - Barnaverndarþjónusta
Lagt til við bæjarráð að sótt verði um undanþágu frá íbúafjöldaviðmiði.
Lögð fram eftirfarandi tillaga frá félagsmálanefnd:
Lagt er til að Grindavíkurbær hefji viðræður við sveitarfélögin á Suðurnesjum um samstarf um umdæmisráð barnaverndar. Jafnframt er lagt til að Grindavíkurbær sæki um undanþágu frá reglum um lágmarksíbúafjölda að baki barnaverndarþjónustu á grundvelli fagþekkingar.
Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.7. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Málið tekið upp að nýju í framhaldi af síðasta fundi bæjarráðs.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið tekið upp að nýju í framhaldi af síðasta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að komið verði á fót sýningu og fræðslusetri um náttúru og jarðfræði með áherslu á eldgosið í Fagradalsfjalli. Mikill fjöldi ferðamanna hefur komið á gosstöðvarnar og gert er ráð fyrir að svo verði áfram næstu árin jafnvel þótt eldvirkni verði ekki til staðar. Grindavíkurbær leggur fram aðstöðu í menningarhúsinu Kvikunni sem er sérstaklega hentugt og vel staðsett húsnæði til þessarar starfsemi. Í ljósi aðstæðna og þess aðdráttarafls sem gosstöðvarnar hafa fer bæjarráð Grindavíkur fram á að öllu því fjármagni sem ætlað er til gestastofa og sýninga á vegum Reykjanes Geopark til ársloka 2022 verði ráðstafað til uppbyggingar í Kvikunni.8. Samningur mennta- og menningarmálaráðuneytis við Fisktækniskóla Íslands
Samninginn undirrituðu ráðherra og skólameistari þann 19. nóvember sl. í Grindavík.
Lagður fram til kynningar samningur milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Fisktækniskóla Íslands sem undirritaður var 19. nóvember sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma af stað vinnu við að greina framtíðarmöguleika Kvikunnar til að styðja enn frekar við rekstur Fisktækniskólans og aðra starfsemi sem tengist nýsköpun og menningu.9. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram áætlunin eins og hún stendur í dag.
Vísa þarf henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana 2022-2025.
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundinum.10. Fasteignagjöld 2022
Álagningarreglur fasteignagjalda 2022 lagðar fram.
Vísa þarf reglunum til samþykktar í bæjarstjórn.Álagningarreglur fasteignagjalda 2022 lagðar fram.
Bæjarráð vísar reglunum til samþykktar í bæjarstjórn.11. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2022
Tekjuviðmið fyrir árið 2022 eru lögð fram.
Bæjarráð þarf að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar.Tekjuviðmið fyrir árið 2022 eru lögð fram.
Bæjarráð vísar tekjuviðmiðunum til bæjarstjórnar til samþykktar.12. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar fyrir árið 2022
Lögð fram þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar fyrir árið 2022.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til bæjarstjórnar til samþykktar.13. Rekstraryfirlit janúar til september 2021
Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til september 2021.
14. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Tilnefna þarf þrjá fulltrúa í jafn marga verkefnahópa sem falið er að vinna að forgangsverkefnum Suðurnesjavettvangs.
Tilnefna þarf þrjá fulltrúa í jafn marga verkefnahópa sem falið er að vinna að forgangsverkefnum Suðurnesjavettvangs.
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi:
Verkefnahópur 1 ? Hringrásarhagkerfið/loftslagsmál: Atli Geir Júlíusson
Verkefnahópur 2 ? Menntun á sviði sjálfbærni: Ásrún Helga Kristinsdóttir
Verkefnahópur 3 ? Lýðheilsa: Eggert Sólberg Jónsson sem er þegar í sérstökum lýðheilsuhóp á Suðurnesjum og var það tillaga að sá hópur tæki við þessu verkefni en hefði með í ráðum fulltrúa frá Isavia og Kadeco
15. Yfirlýsing vegna nýsköpunarláns
Borist hefur beiðni um stuðningsyfirlýsingu ásamt uppkasti að erindi til Byggðastofnunar vegna fyrirgreiðslu.
Borist hefur beiðni um stuðningsyfirlýsingu vegna framleiðslu á lífsalti.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.16. Styrkbeiðni - Sjónarhóll
Samtökin leita eftir stuðningi bæjarfélagsins.
Lögð fram styrkbeiðni frá Sjónarhóli - ráðgjafarmiðstöð ses.
Bæjarráð getur ekki orðið fyrir erindinu.