Bæjarráð Grindavíkur - 1658. fundur
- 07.11.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:30 - 17:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1658
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Rafrænar undirritanir - Fundargerðir
Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar þannig að mögulegt sé að undirrita fundargerðir rafrænt.
Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykkt Grindavíkurbæjar þannig að mögulegt sé að undirrita fundargerðir rafrænt.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingarnar.2. Aflið, samtök fyrir þolendur ofbeldis - Styrkumsókn
Samtökin leitar eftir fjárstuðningi frá Grindavíkurbæ.
Lögð fram beiðni um styrk frá Aflinu, samtökum fyrir þolendur ofbeldis, að fjárhæð 150.000 kr.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.3. Endurnýjun á samstarfssamningi við Samtökin ´78
Drög að samstarfssamningi við Samtökin ´78 lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd og fræðslunefnd hafa samþykkt drögin fyrir sitt leyti.
Málinu er frestað til næsta fundar.
4. Styrktarsamningur við Björgunarsveitina Þorbjörn
Staða mála kynnt.
Lögð fram drög að samningi við Björgunarsveitina Þorbjörn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.5. 100 ára afmæli Kvenfélags Grindavíkur
Kvenfélag Grindavíkur fagnar 100 ára afmæli sínu þann 24. nóvember nk.
Málinu er frestað til næsta fundar.
6. Samningar vegna snjómokstur 2023-2025
Samningar vegna snjómokstur í Grindavík til 1. maí 2023 lagðir fram til samþykktar ásamt yfirlitsmyndum yfir hverfaskiptingu og forgangsröðun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samningar vegna snjómokstur í Grindavík til 1. maí 2025 lagðir fram til samþykktar ásamt yfirlitsmyndum yfir hverfaskiptingu og forgangsröðun.
Bæjarráð samþykkir samningana.7. Beiðni um viðauka - snjómokstur
Óskað er viðauka vegna snjómoksturs á árinu 2023. Meðfylgjandi er greinargerð frá yfirmanni þjónustumiðstöðvar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna snjómoksturs á árinu 2023 að fjárhæð 14.750.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 10.250.000 kr. og með hækkun tekna þjónustumiðstöðvar að fjárhæð 4.500.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Jarðskjálftar og landris í Grindavík 2023
Farið yfir stöðu mála.