Bæjarráð Grindavíkur - 1509. fundur
- 05.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1509
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs ásamt forstöðumanni íþróttamannvirkja upplýsa um stöðu framkvæmda.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs ásamt forstöðumanni íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og upplýstu um stöðu framkvæmda.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fá kostnaðaráætlun á þá þætti sem eftir er að vinna svo taka megi húsið í notkun í haust.2. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Kjósa þarf fulltrúa Grindavíkurbæjar í öldungaráð.
Málinu er frestað til næsta fundar.
3. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Isavia leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum vinni að samfélagslegum verkefnum í samvinnu við atvinnulífið og hagsmunasamtök út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Isavia leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum vinni að samfélagslegum verkefnum í samvinnu við atvinnulífið og hagsmunasamtök út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með verkefnið.4. Breyting á rekstrarleyfi veitinastaðar - Cactus ehf.
Umsækjandi sækir um að veitingastaðurinn fari úr flokki 2 í flokk 3.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Cactus veitinga ehf að rekstrarleyfi Salthússins fari úr flokki 2 í flokk 3.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.5. Leikskólinn Laut - beiðni um viðauka 2019 vegna Karellen
Skólastjóri Leikskólans Lautar óskar eftir viðauka vegna ársins 2019 til að kaupa og reka viðbót við leikskólakerfið Karellen til að halda utanum leikskólagjöld.
Skólastjóri Leikskólans Lautar óskar eftir viðauka vegna ársins 2019 að fjárhæð 250.000 kr. á lykilinn 04111-4012 til að kaupa og reka viðbót við leikskólakerfið Karellen til að halda utanum leikskólagjöld.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Upptökur á bæjarstjórnarfudum
Málið er lagt fyrir af forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs.
Málið er lagt fyrir af forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eingöngu verði um útsendingu að ræða á meðan á fundi stendur en ekki að upptaka verði geymd á veraldarvefnum.
Bókun
Fulltrúi U-listans telur að upptaka ætti að lifa að minnsta kosti að næsta bæjarstjórnarfundi til þess að fleiri hefðu tök á að sjá útsendinguna.7. Vinnuskólinn - Starfsáætlun 2019
Verkefni og forsjá vinnuskólans til umræðu.
Verkefni og skipulag Vinnuskólans lögð fram.
8. Lionsklúbbur Grindavíkur Ósk um styrk
Óskað er eftir styrk sem jafngildir leigugjaldi vegna kútmagakvölds í íþróttahúsinu.
Óskað er eftir styrk sem jafngildir leigugjaldi vegna kútmagakvölds í íþróttahúsinu.
Bæjarráð samþykkir að taka af styrktarlið bæjarráðs til að styrkja Lions vegna húsaleigu kútmagakvöldsins.9. Styrkbeiðni vegna þorrablóts
Þær íþróttadeildir sem stóðu fyrir þorrablóti 2019 í íþróttahúsinu óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Þær íþróttadeildir sem stóðu fyrir þorrablóti 2019 í íþróttahúsinu óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 400.000 kr. sem tekinn verði af styrktarlið bæjarráðs.