Bæjarráð Grindavíkur - 1617. fundur
- 26.07.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1617
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027
Hafnarstjóri mætir á fundinn.
Taka þarf afstöðu og slípa til umsóknargagna áður en umsóknarfresturinn rennur út þ. 31. júlí 2022Hafnarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar á fundi 483 þann 11. júlí sl. og felur hafnarstjóra að leggja fram beiðni um framlög inn í samgönguáætlun 2023 til 2027 til hafnarbóta og sjóvarna í landi Grindavíkur samkvæmt fyrirliggjandi verkefnalista.2. Niðurgreiðsla til foreldrar barna yngri en 18 mánaða sem nýta sér þjónustu dagforeldra
Málinu var frestað á bæjarráðsfundi 21. júní sl.
Nökkvi Már situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hann mun setja gögn inn á málið í síðasta lagi á mánudag.Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um niðurgreiðslur til dagforeldra nokkurra sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að frá og með 1. ágúst verði niðurgreiðsla vegna þjónustu dagforeldra 76.800 kr. mv 8 tíma vistun hjá einstæðum foreldrum og 64.000 fyrir hjón mv. 8 tíma vistun. Fyrir styttri vistun er niðurgreiðslan hlutfallsleg.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leggja viðauka fyrir bæjarráð vegna málsins.3. Sóknaráætlun Suðurnesja - tilnefning í Uppbyggingasjóð Suðurnesja
Máli var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram bréf frá SSS, dags 6. júlí 2022 þar sem óskað er eftir tilnefningum í sjóðinn. Tilnefna þarf 4 aðila, tvo karla og tvær konur.Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi:
Guðmundur Grétar Karlsson
Hávarður Gunnarsson
Birgitta Ramsey Káradóttir
Sunna Jónína Sigurðardóttir4. Fasteignagjöld 2023
Lagt fram minnisblað vegna útreiknings fasteignagjalda mv óbreyttar álagningarforsendur, auk yfirlits yfir matsbreytingar allra eigna í Grindavík.
Lagt fram minnisblað vegna útreiknings fasteignagjalda mv óbreyttar álagningarforsendur, auk yfirlits yfir matsbreytingar allra eigna í Grindavík.
Grindavíkurbær mun lækka álagningarhlutföll fasteignagjalda fyrir árið 2023 til að koma til móts við mikla hækkun fasteignamats.5. 2022-025190 Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað
Fyrri umsögn ekki fullnægjandi skv. sýslumanninum á Suðurlandi.
Í meginmáli bókunar verður að vera tekin afstaða til töluliða 1-5, sbr. skilyrði 6. gr. a í áfengislögum.
Grindavíkurbæ er auk þess heimilt að skilyrða veitingu leyfis til smásölu á áfengi á framleiðslustað um afgreiðslutíma.Lögð fram beiðni um umsögn vegna umsóknar 22.10. ehf um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað að Hafnargötu 11.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir byggingafulltrúa í Grindavík, Slökkviliðs og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina að fengnum umsögnum frá ofangreindum aðilum sem sýna fram á að skilyrði sem gerð eru fyrir útgáfu leyfisins eru uppfyllt.
Starfsemin er í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála.
Lokaúttekt hefur farið fram í húsnæðinu.
Starfsemin samrýmist fyrirliggjandi deiliskipulagi og skipulagsskilmálum svæðisins.
Starfsemin er í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli.
Kröfum um brunavarnir eru uppfylltar.6. Tölvubúnaður 2018, stefna frá Endor
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 8.385.000 kr. sem fjármagnaður verði með hækkun á tekjuliðnum 00010-0021 Staðgreiðsla.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 8.385.000 kr. sem fjármagnaður verði með hækkun á tekjuliðnum 00010-0021 Staðgreiðsla.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.7. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Skipa þarf í verkefnahóp vegna endurskoðunar skipurits bæjarins.
Félags- og skólaþjónusta hefur skipað í hóp vegna innleiðingar laga um farsæld barna.Bæjarráð samþykkir að það verði bæjarráð og bæjarstjóri í vinnuhóp vegna endurskoðunar á skipuriti Grindavíkurbæjar.
8. Rekstraryfirlit janúar - júní 2022
Rekstraryfirlit janúar til júní 2022 er lagt fram.
Rekstraryfirlit janúar til júní 2022 er lagt fram.
Niðurstaða rekstrar Grindavíkurbæjar í heild er innan fjárheimilda. Þó eru nokkrar rekstraeiningar sem stefna í framúrkeyrslu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir málið með sviðsstjórum.9. Skrifstofa sýslumannsins á Suðurnesjum í Grindavík
Mál sett á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur.
Svar frá Ásdísi Ármannsdóttur, sýslumanni vegna fyrirspurnar um lokunina:
sæll Jón
Því miður hefur lokun útibúsins í Grindavík staðið lengur en á horfðist í upphafi.
Það er flókið að þjálfa upp afleysingastarfsmann, enda um fjölþætt verkefni að ræða á skrifstofunni og því miður er ekki unnt að sjá af starfsmanni af aðalskrifstofu yfir sumartímann, vegna leyfa starfsfólks. Málið verður því skoðað í lok ágúst og verður þá vonandi unnt að opna skrifstofuna að nýju.
Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður
EN í samráðsgátt er hægt að koma með umsagnir um fyrirhugaða sameiningu sýslumannsembætta og þar er Grindavík (og Dalvík) ekki talin upp með fyrirhugaða skrifstofu/útibú.
Hér er hlekkur á samráðsgátt, frumvarpið um sameiningu sýslumanna og umsagnir þar:
mál nr. 122/2022 sjá hér: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3235Fyrir liggur í samráðsgátt frumvarp til laga um sýslumann með það að markmiði að sameina öll sýslumannsembætti landsins í eitt.
Bæjaryfirvöld í Grindavík gagnrýna þá stefnu dómsmálaráðherra að leggja niður útibú sýslumanns í bænum. Gagnrýnin er óháð sameiningu embættanna í eitt embætti til að tryggja samræmda og góða þjónustu um allt land líkt og frumvarpið leggur til. Það vekur þó furðu að samhliða sameiningu embætta eigi að skerða þjónustu í Grindavík og mótmæla bæjaryfirvöld harðlega lokun útibúsins og um leið skerðingu á þjónustu við bæjarbúa, þvert á markmið frumvarpsins.
Í umsögn um frumvarpið er þess getið að samráð var haft við ákveðin sveitarfélög en óskiljanlegt er að ekki var haft samráð við Grindavík sem er það sveitarfélag ásamt Dalvík sem eiga að missa starfstöðvar sínar.
Í dag er sýslumaður með starfmann í 68% starfshlutfalli í bæjarfélaginu en frá byrjun desember hefur útibúinu verið lokað og hefur það valdið miklum óþægindum fyrir íbúa Grindavíkur.
Bæjaryfirvöld í Grindavík telja þetta vera gríðarlega mikla þjónustuskerðingu og lýsa andstöðu sinni við þessar fyrirhuguðu breytingar en í sumar hefur ríkið ákveðið að loka bæði útbúi Póstsins og útibúi sýslumannsins og er staðan því orðin sú að ríkið er með nánast enga þjónustu hér í Grindavík í ört stækkandi samfélagi.10. Íslandspóstur - breyting á póstafgreiðslu í Grindavík
Lögð fram beiðni frá Byggðastofnun, dags. 18. júlí 2022 um umsögn bæjarins varðandi fyrirhugaða breytingu á póstafgreiðslu í Grindavík.
Lögð fram beiðni frá Byggðastofnun, dags. 18. júlí 2022 um umsögn bæjarins varðandi fyrirhugaða breytingu á póstafgreiðslu í Grindavík.
Bæjaryfirvöld í Grindavík fengu kynningu á fyrirhuguðum breytingum á afgreiðslu Íslandspóst í Grindavík þann 5. júlí sl. Mesta breytingin er fyrirhuguð lokun á afgreiðslu póstsins á Víkurbraut 56 sem er starfsstöð Landsbankans í Grindavík. Í staðinn á að fjölga póstboxum vegna pakkasendinga og nýta póstbíl til að afhenda heim að dyrum.
Fram kom í kynningu Íslandspóst að fyrirhugaðar breytingar væru þær sömu og innleiddar hafa verið á Hellu og Hvolsvelli en reynslan þar er þannig að íbúar eru afar ósáttir við þær breytingar og segja um mikla þjónustuskerðingu að ræða. Póstbíllinn þar er bara á ferðinni virka daga milli 09-14.
Nú um nokkurt skeið hefur verið póstbox við verslunina Nettó, Víkurbraut 60 í Grindavík. Reynsla af því póstboxi hefur verið misjöfn, iðulega er einhver bilun sem er þess valdandi að ekki er hægt að nálgast pakka sem þar eru. Auk þess eru margir íbúar sem ekki hafa tök á að nýta sér þessa tækni og fara í póstafgreiðsluna til að sinna sínum erindum vegna sendinga, kaupum á frímerkjum, umslögum og kössum undir pakka.
Hvað varðar aukna þjónustu póstbíls þá hefur bæjarráð Grindavíkur miklar efasemdir um skilvirkni þess að afhenda pakka heim. Almennt er fólk í vinnu á þeim tíma sem póstbíllinn er í útsendingum og því næst ekki að koma sendingum til skila. Þegar svo háttar til fara sendingar í afgreiðslu póstsins þar sem íbúar geta nálgast sendingar þegar þeim hentar, s.s. í hádeginu.
Bæjaryfirvöld í Grindavík telja þetta vera mikla þjónustuskerðingu og lýsa andstöðu sinni við þessar fyrirhuguðu breytingar sérstaklega í ljósi þess að Grindavík er 3.650 manna samfélag og er í örum vexti.11. Hafnarstjórn Grindavíkur - 483
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
12. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 62
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.