Bæjarráð Grindavíkur - 1539. fundur
- 11.02.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1539
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Verkalýðsfélag Grindavíkur - ósk um fund
Fulltrúar félagsins munu mæta á bæjarráðsfundinn til að ræða ýmis málefni sem varða hagsmuni félagsmanna. Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Fulltrúar verkalýðsfélags Grindavíkur, Hörður Guðbrandsson formaður og Birkir Freyr Hrafnsson varaformaður mættu á fundinn.
Áherslupunktar félagsins lagðir fram.3. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Fyrir liggur skýrsla Guðmundar Kjartanssonar endurskoðanda. Þar koma fram niðurstöður einfaldrar áreiðanleikakönnunar á áætlanagerð Keilis.
Lögð fram skýrsla Guðmundar Kjartanssonar endurskoðanda. Þar koma fram niðurstöður einfaldrar áreiðanleikakönnunar á áætlanagerð Keilis.
4. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Rætt um stöðu mála.
Stöðuskýrsla lögð fram.
Samþykkt að kaupa aðra varaaflstöð til að hafa í íþróttamannvirkjum.5. Fasteignagjöld 2020
Niðurstaða álagningar fasteignagjalda fyrir árið 2020 lögð fram.
Niðurstaða álagningar fasteignagjalda fyrir árið 2020 lögð fram.
6. Innsiglingabauja í ytri rennu
Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna kaupa á innsiglingabauju fyrir Grindavíkurhöfn
Beiðni um viðauka við fjárfestingaáætlun hafnarinnar fyrir árið 2020 að fjárhæð 5.000.000 kr. vegna kaupa á innsiglingabauju fyrir Grindavíkurhöfn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.7. Fjárframlag úr framkvæmdasjóði aldraðra
Stjórn öldungaráðs Grindavíkurbæjar óskar eftir því að sótt verði um fjárframlag til uppbyggingar fleiri hjúkrunarrýma við hjúkrunarheimilið Víðihlíð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Stjórn öldungaráðs Grindavíkurbæjar óskar eftir því að sótt verði um fjárframlag til uppbyggingar fleiri hjúkrunarrýma við hjúkrunarheimilið Víðihlíð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að fylgja málinu eftir.8. Stuðningsfulltrúar í leik- og grunnskóla
Stuðningsfulltrúar í leikskóla:
Lagt fram Excel-skjal vegna útreiknings á mun launaflokks 126 og 128. Mun á 126 og 131. Auk þess mögulega hækkun þeirra sem nú þegar eru í 129.
Farið nánar yfir skjalið á fundinum.Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað lagt fram.9. Ytra mat á skólaþjónustu
Fræðslunefnd er með drög að samningi um úttekt á skólaþjónustunni. Samningurinn hljóðar upp á hærri upphæð en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun og því er beðið um viðauka frá bæjarráði.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og formaður fræðslunefndar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samningi vegna úttektar á skólaþjónustu Grindavíkurbæjar.
Jafnframt er lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 1.200.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samninginn og leggur jafnframt til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.10. Starfsmannamál - Trúnaðarmál
Niðurstaða málsins er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs og bæjarstjórnar.