Bæjarráð Grindavíkur - 1655. fundur
- 10.10.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:30 - 16:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1655
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Sverrir Auðunssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka mál á dagskrá með afbrigðum sem 2. mál: 2310047 - Beiðni um viðauka - Félagsmiðstöðin Þruman
Samþykkt samhljóða.
1. Ný ásýnd Grindavíkurbæjar
Fyrstu drög að nýrri ásýnd Grindavíkurbæjar lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu dagskrárlið.
Fyrstu drög að nýrri ásýnd Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndirnar og felur sviðstjóra frístunda- og menningarsviðs og upplýsinga- og markaðsfulltrúa að vinna málið áfram.2. Beiðni um viðauka - Félagsmiðstöðin Þruman
Óskað er eftir viðauka vegna veikindaleyfis og ferðar erlendis með ungmennaráð.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka á árið 2023 á launaliði Þrumunnar vegna veikindaleyfis og ferðar erlendis með ungmennaráð að fjárhæð 2.547.000. Óskað er eftir að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.3. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gögn frá forstöðumönnum eru lögð fram.
Gögn frá forstöðumönnum eru lögð fram.
Framlagðar dagsetningar á vinnufundum bæjarfulltrúa eru samþykktar.4. Kirkjugarðinn á Stað - framkvæmdir
Borist hefur styrkbeiðni frá sóknarnefnd Grindavíkurkirkju vegna framkvæmda við kirkjugarðinn.
Lögð fram styrkbeiðni frá sóknarnefnd Grindavíkurkirkju vegna framkvæmda við kirkjugarðinn.
Bæjarráð samþykkir 500.000 kr. styrk í verkefnið.5. Beiðni um námsvist í grunnskóla
Sótt er um námsvist í Skólanum í skýjunum. Erindreki hefur hvorki heimild né fjármagn til að afgreiða slíkar umsóknir og er málið því lagt fyrir bæjarráð til þóknanlegrar meðferðar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir umsóknina.