Bæjarráð Grindavíkur - 1515. fundur
- 14.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1515
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Ungmennaráð Grindavíkur - Fundur með bæjarstjórn
Ungmennaráð mætir á fundinn.
Ungmennaráð mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið. Einnig sátu fundinn sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Melkorka Ýr Magnúsdóttir, frístundaleiðbeinandi og bæjarfulltrúarnir Guðmundur L Pálsson og Birgitta Ramsey Káradóttir.
Ungmennaráðsfulltrúar kynntu hvað þau hafa verið að gera á starfsárinu sem nú er að ljúka.
Lögð fram tillaga um að aukna aðkomu ungmennaráðs að málum sem tengjast ungmennum.
Lögð fram tillaga um fleiri samráðsfundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð tekur vel í tillögurnar og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarnefndar að vinna áfram með tillögurnar.2. Stefnumótun fyrir Kvikuna
Guðrún Ragnarsdóttir frá Strategíu mætir á fundinn og kynnir þá vinnu sem framundan er í tengslum við stefnumótun fyrir Kvikuna. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og upplýsinga- og markaðsfulltrúi sitja fundinn undir þessum lið.
Guðrún Ragnarsdóttir frá Strategíu mætti á fundinn og kynnti þá vinnu sem framundan er í tengslum við stefnumótun fyrir Kvikuna.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og upplýsinga- og markaðsfulltrúi sátu einnig fundinn undir þessum lið.3. Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Grindavík 2020-2021
Drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík lögð fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Grindavík lögð fram.
Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.4. Samstarfssamningur á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju
Drög að samstarfssamningi Grindavíkurkirkju lögð fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Grindavíkurkirkju lögð fram.
Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.5. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
Drög að samstarfssamningi við KFUM og KFUK á Íslandi lögð fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við KFUM og KFUK á Íslandi lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að afla frekari gagna fyrir næsta fund bæjarráðs.6. Verklagsreglur vegna kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur
Drög að verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur lögð fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að verklagsreglum vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð samþykkir reglurnar.7. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar 2024
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að hugað verði sem fyrst að 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar árið 2024, m.a. með ritun sögu bæjarins í huga. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að hugað verði sem fyrst að 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar árið 2024, m.a. með ritun sögu bæjarins í huga.8. Fyrirspurn um geymsluhúsnæði
Málið tekið fyrir að nýju. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrirspurn frá Minja- og sögufélagi Grindavíkur um geymsluhúsnæði fyrir gamla muni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.9. Suðurnesjarall Aífs 2019
Akstursíþróttafélag Suðurnesja óskar eftir heimild til þess að fram fari rall um Hópsnesið 31. maí eða 1. júní. Frístunda- og menningarnefnd hefur þegar fjallað um málið. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Akstursíþróttafélag Suðurnesja óskar eftir heimild til þess að fram fari rall um Hópsnesið 31. maí eða 1. júní. Frístunda- og menningarnefnd hefur þegar fjallað um málið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að keppnin sé haldin en leggur áherslu á að veginum sé skilað eins og þeir tóku við honum. Helga Dís situr hjá.10. Gjafir til starfsmanna Grindavíkurbæjar
Í ljósi góðrar afkomu Grindavíkurbæjar á árinu 2018 og þess hve forstöðumenn stofnana Grindavíkurbæjar gerðu almennt vel í því að virða fjárhagsáætlun ársins 2018 er lagt til að starfsmönnum bæjarins verði umbunað fyrir það.
Í ljósi góðrar afkomu Grindavíkurbæjar á árinu 2018 og þess hve forstöðumenn stofnana Grindavíkurbæjar gerðu almennt vel í því að virða fjárhagsáætlun ársins 2018 er lagt til að starfsmönnum bæjarins verði umbunað fyrir það.
Bæjarráð samþykkir að gefa starfsmönnum sumargjöf í formi gjafabréfs að fjárhæð 10.000 kr. og fyrirkomulagið verði með sama sniði og jólagjöf til starfsmanna hefur verið undanfarin ár.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.400.000 kr. á lykilinn 21611-4926 sem fjármagnaður verði með lækkun liðar 09521-4349 um sömu fjárhæð.12. Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að senda inn umsagnir til fjárlaganefndar og Alþingis.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um nærri 3,3 milljarða á árunum 2020 og 2021.
Einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi er í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem þróast hefur á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingu á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu.
Þess er krafist að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað og hvetur til eðlilegs samráðs ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um þetta mál sem og öll önnur sem varða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga.13. Tækifærisleyfi - Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna sjómannaballs í íþróttahúsinu í Grindavík 1. júní 2019.
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna sjómannaballs í íþróttahúsinu í Grindavík 1. júní 2019.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.