Bæjarráð Grindavíkur - 1699. fundur
- 13.01.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1699
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram fjárhagsáætlun 2026 eins og hún stendur núna.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana 2026-2029 er lögð fram.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að gera breytingar á áætluninni í samræmi við athugasemdir sem komu fram á fundinum.2. Styrkbeiðni vegna heimildarmyndar
Lögð fram styrkbeiðni vegna heimildarmyndar um Grindavík að upphæð kr. 300.000.
Lögð fram styrkbeiðni vegna heimildarmyndar um Grindavík að upphæð kr. 300.000.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.3. Tilboð í frágang á pappírsskjölum
Þjóðskjalasafn Íslands sótti skjöl í fyrstu rýmingu bæjarins og hefur síðan geymt þau, ófrágengin, í geymslu sinni. Skjölin eru frá bæjarskrifstofum, Grunnskóla Grindavíkur og Slökkviliði Grindavíkur.
Nú er komið tilboð í frágang á hluta af skjölunum frá Þjóðaskjalasafni Íslands.Þjóðskjalasafn Íslands sótti skjöl í fyrstu rýmingu bæjarins og hefur síðan geymt þau, ófrágengin, í geymslu sinni. Skjölin eru frá bæjarskrifstofum, Grunnskóla Grindavíkur og Slökkviliði Grindavíkur.
Lagt fram tilboð í frágang á hluta af skjölunum frá Þjóðaskjalasafni Íslands.
Bæjarráð samþykkir að taka ekki tilboðinu og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.