Bæjarráð Grindavíkur - 1567. fundur
- 15.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1567
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til afgreiðslu. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.2. Gjaldskrá Kvikunnar 2021
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Kvikunnar 2021.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Kvikunnar árið 2021.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til bæjarstjórnar.3. Áhrif kórónuveirufaraldursins á 16-18 ára
Rætt um stöðu 16-18 ára ungmenna og áhrif kórónuveirufaraldursins á þennan aldurshóp.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sigurður Óli vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, dags. 10.12.2020.
Bæjaráð samþykkir að ungmenni 16-18 ára fái sundkort sem gildir út mars 2021. Jafnframt að Kvikan verði opin á morgnana fyrir þennan hóp. Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leita til FS um að námsráðgjafi verði staðsettur að hluta í Grindavík.4. Samstarf við Samtökin ´78
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, félagsmiðstöðva og stjórnenda auk ráðgjafar. Lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að efla fræðslu um hinsegin málefni meðal starfsfólks og nemenda og leggur til að samningurinn verði samþykktur. Frístunda- og menningarnefnd tók undir bókun lýðheilsuteymisins. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samstarfssamningi við Samtökin 78 um fræðslu til starfsfólks og nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, félagsmiðstöðva og stjórnenda auk ráðgjafar. Lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að efla fræðslu um hinsegin málefni meðal starfsfólks og nemenda og leggur til að samningurinn verði samþykktur. Frístunda- og menningarnefnd tók undir bókun lýðheilsuteymisins.
Bæjarráð samþykkir samninginn við Samtökin 78 með þeirri breytingu að í samninginn verði sett uppsagnarákvæði.5. Ósk um niðurfellingu leigu 2020
Hluti gagna vegna tjaldsvæðisins sem óskað var eftir hefur borist.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir með 2 atkvæðum að lækka leigu fyrir árið 2020 um 20% og heimilar greiðslufrest á því sem eftir stendur. Upplýsinga- og markaðsfulltrúa falið að útfæra þetta í samráði við rekstraraðilann.
Hallfríður greiðir atkvæði á móti.6. Suðurnesjalína 2 - umsókn um framkvæmdaleyfi
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 220 kV Suðurnesjalínu 2 í lögsögu Grindavíkur.
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 220 kV Suðurnesjalínu 2 í lögsögu Grindavíkur.
Lagt fram til kynningar.7. Smáhýsi vestan við Sjónarhól
Erindi hefur borist frá lögmanni þeirra er eiga fasteignina Sjónarhól. Um er að ræða smáhýsi vestan við lóðina sem samkvæmt bréfi lögmanns eru utan lóðar og byggingarreits.
Lagt fram til kynningar erindi frá lögmanni þeirra er eiga fasteignina Sjónarhól.
8. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Fyrir liggur erindi um fjárhagslega aðkomu Grindavíkurbæjar að rekstri Keilis.
Bókun
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa ávallt studd dyggilega við rekstur og uppbyggingu á sviði menntamála á Suðurnesjum. Fjölbreytt námsframboð og gott aðgengi að námsleiðum og námskeiðum fyrir alla aldurshópa stuðlar að hærra menntunarstigi og eflingu atvinnulífs í landshlutanum. Því er mikilvægt að ríki og sveitarfélög styrki til framtíðar allar þær menntastofnanir sem halda úti framhaldsfræðslu og símenntun á Suðurnesjum.
Stjórnendur Keilis hafa leitað til ríkisins og sveitarfélaganna á Suðurnesjum um stuðning við að leysa þann gríðarlega fjárhagsvanda sem skólinn býr við. Áformað er að færa núverandi hlutafé í félaginu niður í 500 þús.kr. og að hlutafé verði síðan aukið um 370 m.kr. Hlutur ríkissjóðs verði 190 m.kr. og sveitarfélaganna á Suðurnesjum 180 m.kr. Þar af er gert ráð fyrir að hlutur Grindavíkurbæjar verði 22.806 þús.kr. eða 6,155% af heildarhlutafé.
Verði ekkert aðhafst varðandi fjárhagslega endurskipulagningu Keilis er allt útlit fyrir að rekstrargrundvöllur skólans sé brostinn. Við þessar aðstæður samþykkir bæjarráð að Grindavíkurbær kaupi hlut í Keili að fjárhæð 22.806 þús.kr. og styðja þannig við órofið skólahald sem að öðrum kosti hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir nemendur og starfsfólk Keilis. Þessi samþykkt er gerð í trausti þess að mennta- og menningarmálaráðuneytið og sveitarfélögin á Suðurnesjum sameinist einnig um að tryggja starfsaðstöðu og langtímasamning um rekstur Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Skólinn gegnir lykilhlutverki á sviði framhaldsskóla og símenntunar í einni af stærstu atvinnugreinum svæðisins og landsins alls og hefur lengi þurft að búa við skammtímaúrræði og óvissu um framtíð þessarar mikilvægu menntastofnunar.
Fulltrúar B- og D-lista.
Bókun
Miðflokkurinn í Grindavík hafnar því að leggja til aukið fé í hlutafjáraukningu til handa Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Greinargerð
Tæpar 23 milljónir eru veruleg fjárhæð af sameiginlegum sjóði bæjarbúa og slíkar fjárhæðir á ekki að reiða fram nema að vel ígrunduðu máli. Ábyrgð okkar bæjarfulltrúa er töluverð þegar kemur að þessum sameiginlega sjóði og á þeim forsendum byggjum við ákvörðun okkar. Þau gögn sem lögð hafa verið fram máli þessu til stuðnings gefa ekki tilefni til að ætla að rekstur skólans geti orðið sjálfbær og af þeim sökum getur fulltrúi M-lista ekki stutt þetta.
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir
Bæjarfulltrúi Miðflokksins
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra fjárhagsáætlun 2021 um 22,806 milljónir áður en hún kemur til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóra er falið að mæta fyrir hönd Grindavíkurbæjar á hluthafafund Keilis sem haldinn er miðvikudaginn 16. desember.9. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Lagt fram samkomulag vegna grunnskóla, íþróttamannvirkja, slökkviliðs og Miðgarðs.
Lagt fram samkomulag vegna grunnskóla, íþróttamannvirkja, slökkviliðs og Miðgarðs um styttingu vinnuviku.
Bæjarráð samþykkir samkomulag um styttingu vinnuviku grunnskóla, íþróttamannvirkja og slökkviliðs, en hafnar útfærslu um vinnutímastyttingu deildarstjóra í Miðgarði þar sem ekki er sýnt nægjanlega fram á að slíkt skerði ekki þjónustu við eldri borgara en samþykkir annað vegna Miðgarðs.10. Manntal og húsnæðistal Hagstofu Íslands
Hagstofan undirbýr nú töku manntals og húsnæðistals 1. janúar 2021. Þess er farið á leit að sveitarfélögin veiti tilteknar upplýsingar til að hægt sé að ákvarða búsetu allra einstaklinga.
Lagt fram bréf frá Hagstofu Íslands, dags. 27. nóvember 2020 vegna undirbúnings á töku manntals og húsnæðistals 1. janúar 2021.