Bæjarráð Grindavíkur - 1675. fundur
- 21.01.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1675
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Almannavarnanefndir á Suðurnesjum
Málið er tekið fyrir að nýju í framhaldi af síðasta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð Grindavíkur telur það ekki þjóna hagsmunum Grindavíkur að svo stöddu að sameina almannavarnanefnd Grindavíkur og almannavarnanefnd Suðurnesja utan Grindavíkur. Fyrir liggur að verkefni almannavarnanefndar Grindavíkur hafa mikið til verið falin Grindavíkurnefndinni, að minnsta kosti tímabundið, sbr. lög 40/2024.
Grindavíkurbær mun fylgjast með vinnu við gerð lagafrumvarps til nýrra heildarlaga um almannavarnir og endurmeta afstöðuna þegar betri upplýsingar liggja fyrir um efni frumvarpsins.2. Samantekt til nýrrar ríkisstjórnar um málefni Grindavíkur
Fyrir liggur samantekt til nýrrar ríkisstjórnar um málefni Grindavíkur vegna yfirstandandi jarðhræringa og afleiðinga þeirra.
Lagt fram sameiginlegt minnisblað Grindavíkurbæjar og Grindavíkurnefndar til nýrrar ríkisstjórnar um málefni Grindavíkur.
3. Breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Lagt fram minnisblað til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis vegna breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga vegna Grindavíkurbæjar.
Lagt fram minnisblað til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis vegna breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga vegna Grindavíkurbæjar.
4. Þróunarverkefni og styrkjatækifæri í Grindavík
Farið yfir samantekt fyrir Grindavíkurbæ um helstu alþjóðlega styrktarsjóði og mögulega fjármögnun þróunarverkefna.
Lagður fram tölvupóstur frá Arnbirni Ólafssyni, GeoCamp Iceland ehf. um möguleg þróunarverkefni og styrkjatækifæri í Grindavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.5. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Grindavíkurbær og stofnanir
Áætlun fyrir árin 2025-2028 er lögð fram.
Vísa þarf áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.Fjárhagsáætlun Grindvíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2025-2028 er lögð fram.
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.