Bæjarráð Grindavíkur - 1647. fundur
- 20.06.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1647
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá þrjú mál með afbrigðum:
Sem 11. mál; 2106087 - Deiliskipulag íþróttasvæðis (ÍÞ1), sem 12. mál; 2306046 - Aðalskipulagsbreyting íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggð (ÍB7)
og sem 13. mál; 2306068 - Forkaupsréttur vegna sölu á Víkurbraut 36.
Samþykkt samhljóða.
1. Gestastofa Reykjanes jarðvangs
Lagðar fram uppfærðar tillögur hönnunarfyrirtækisins Gagarín að gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni. Stefnt er að því að gestastofan opni fyrir almenningi vorið 2024.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Lagðar fram uppfærðar tillögur hönnunarfyrirtækisins Gagarín að gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni. Stefnt er að því að gestastofan opni fyrir almenningi vorið 2024.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa undir samning um hönnun og uppbyggingu gestastofunnar.
Bæjarráð samþykkir viðauka á fjárfestingaáætlun 2023 vegna uppbyggingar gestastofunnar að fjárhæð 50.000.000 kr. sem fjármagnaður verður með styrkjum.2. Stefnumótun Reykjanes Geopark
Fyrir liggur stefnumótunarskýrsla ásamt aðgerðaáætlun og forgangsröðun fyrir Reykjanes Geopark.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Stefnumótunarskýrsla ásamt aðgerðaáætlun og forgangsröðun fyrir Reykjanes Geopark lögð fram.3. Úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og frístundastarfi í Grindavík
Jafnréttisúttekt á íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík sem unnin var vorið 2023 lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Jafnréttisúttekt á íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík sem unnin var af RHA Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri vorið 2023 er lögð fram.4. Umsókn um styrk vegna Sjómannaballsins 2023
Lagður fram tölvupóstur frá UMFG, dags. 23.05.2023 þar sem óskað er eftir styrk vegna sjómannadagsballs körfuknattleiksdeildar UMFG.
Bæjarráð frestaði málinu á 1645. fundi.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Lagður fram tölvupóstur frá UMFG, dags. 23.05.2023 þar sem óskað er eftir styrk vegna sjómannadagsballs körfuknattleiksdeildar UMFG.
Sævar Þór vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.5. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2023
Farið yfir umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði og umræður í frístunda- og menningarnefnd um úthlutun styrkja.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Farið yfir umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði og umræður í frístunda- og menningarnefnd um úthlutun styrkja vegna ársins 2024.6. Starfsemi Kvikunnar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir umræðu í bæjarráði um stöðu Kvikunnar í skipuriti Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagkrárlið.
Rætt var um stöðu Kvikunnar í skipuriti Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.7. Fjárfesting 2023 - Stúka, veggur o.fl. í nýjan íþróttasal
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið óska eftir umræðu í bæjarráði um stöðuna á nýja íþróttasalnum.
Minnisblað lagt fram ásamt tölvupósti frá körfuknattleiksdeild UMFG.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sævar Þór vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Lagður fram tölvupóstur frá körfuknattleiksdeild UMFG, dags. 23.05.2023.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárfestingaráætlun 2023 vegna aðgerða í nýja íþróttasalnum að fjárhæð 7.251.000 kr. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á verkefninu 32-11231 Félagsaðstaða eldri borgara.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.8. Félagsaðstaða eldri borgara - framkvæmd
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra vegna framkvæmda Grindavíkurbæjar við félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram. Þá er framvinduskýrsla verkeftirlits nr. 1 lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra vegna framkvæmda Grindavíkurbæjar við félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram. Jafnframt er framvinduskýrsla verkeftirlits nr. 1 lögð fram.9. Beiðni um viðauka - Lekaleit veitukerfis
Sótt er um viðauka við fjárhagsáætlun veitna Grindavíkur vegna átaks um að stöðva leka í kerfinu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Borið hefur á því að óútskýrt næturrennsli vatnsveitu Grindavíkur hafi aukist á síðustu misserum. Ráðast þarf í umfangsmikla lekaleit til að ráða bót á þessum málum.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 11.760.000 kr. vegna neðangreindra lykla vatnsveitunnar:
Lykill 2853. Hækkun um 1.200.000 kr.
Lykill 2062. Hækkun um 60.000 kr.
Lykill 4344. Hækkun um 500.000 kr.
Lykill 4976. Hækkun um 10.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023 að fjárhæð 11.760.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.10. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulag- og þjónustugjöld
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir breytta gjaldskrá og felur sviðstjóra að senda í birtingu í Stjórnartíðindum.11. Deiliskipulag íþróttasvæðis (ÍÞ1)
Deiliskipulagstillaga fyrir íþróttasvæðið lögð fram.
Bókun skipulagsnefndar var vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Deiliskipulagstillaga fyrir íþróttasvæðið lögð fram.
Á fundi skipulagsnefndar nr. 122 þann 19. júní 2023 var eftirfarandi bókun vísað til afgreiðslu bæjarráðs:
"Uppfærð deiliskipulagstillaga fyrir íþróttasvæði ÍÞ1 lögð fram í kjölfar breytinga á tillögunni eftir fund nefndarinnar nr. 121.
Vinnslutillaga deiliskipulagsins var kynnt á vel sóttum íbúafundi þann 14. febrúar 2023, á heimsíðu Grindavíkurbæjar þann 2. mars og í Víkurfréttum þann 8. mars. Íbúar og umsagnaraðilar fengu tækifæri til að gera athugasemd við vinnslutillöguna til og með 19. mars 2023. Frá því að vinnslutillagan var kynnt hafa verið gerðar eftirfarandi breytingar á skipulagstillögunni:
- Fjölbýlishús norðan sundlaugar örlítið fært til.
- Kjallara undir sundlaugarbyggingu (B1) stækkaður.
- Skerpt á skilmálum um byggingar á svæðinu.
- Skipulag svæðis austan við Austurveg 3c ( Hópið) gert skýrara. Tveir knattspyrnuvellir settir fram á uppdrátt ásamt því að golfvöllur sem er á svæðinu í dag er settur inn.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og að hún verði auglýst, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br., samhliða aðalskipulagsbreytingu fyrir íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggðar(ÍB7)."
Bæjarráð samþykkir bókun skipulagsnefndar.12. Aðalskipulagsbreyting íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggð (ÍB7)
Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu. Breytingin felst í því að smá hluti af íþróttasvæðinu breytist í íbúðarsvæði, þ.e. verði hluti af ÍB9. Íbúðarbyggð ÍB7 er stækkuð til suðurs meðfram íþróttasvæði IÞ1 að miðsvæði M1. Breytingin er lögð samhliða breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis (ÍÞ1) og verður málsmeðferð skipulagtillögu samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun skipulagsnefndar var vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu íþróttasvæðis (ÍÞ1) og íbúðarbyggðar (ÍB7).
Á fundi skipulagsnefndar nr. 122 þann 19. júní 2023 var eftirfarandi bókun vísað til afgreiðslu bæjarráðs:
"Breytingin felst í að íbúðarbyggð ÍB7 er stækkuð til suðurs meðfram íþróttasvæði ÍÞ1 að miðsvæði M1, núverandi svæði sem fellur undir breytingu aðalskipulags er skilgreint sem opið svæði (OP) og íþróttasvæði (IÞ1). Núverandi Íbúðarbyggð (ÍB7) er 11,7 ha og gerir ráð fyrir blöndun fjölbýlis og sérbýlis. Svæði stækkunar ÍB7 er áætlað fyrir fjölbýlishús, í samræmi við byggðamynstur í nágrenni.
Tillagan er samkvæmt meginstefnu aðalskipulags Grindavíkur 2018-2032 og víkur ekki í neinum grundvallaratriðum frá þeirri landnotkunarstefnu sem sett er á svæðinu. Engin vernd byggðar eða náttúru er skilgreind á svæðinu. Breytingin hefur áhrif á svæði um 5750m2 að stærð, en opna svæðið sem fellt verður inn i íbúðarbyggð (ÍB7)er um 2.350m2 að stærð og íþróttasvæðið (ÍÞ1) er 3400m2 að stærð. Breytingin felur ekki í sér neina umtalsverða aukningu á byggingarmagni.
Tillagan er í samræmi við fyrirhugaðar deiliskipulagsbreytingar innan íþróttasvæðis Grindavíkur. Vinnslutillaga breytingar á deiliskipulagi íþróttasvæðisins var kynnt á vel sóttum íbúafundi þann 14. febrúar 2023, á heimsíðu Grindavíkurbæjar þann 2. mars og í Víkurfréttum þann 8. mars. Íbúar og umsagnaraðilar fengu tækifæri til að gera athugasemd við vinnslutillöguna til og með 19. mars 2023.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar að kynna aðalskipulagstillöguna í samræmi við 1. og 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br."
Bæjarráð samþykkir bókun skipulagsnefndar.13. Forkaupsréttur vegna sölu á Víkurbraut 36
Gerður hefur verið kaupsamningur um íbúð í húsinu nr. 36 við Víkurbraut í Grindavík (F209-2538). Sem þinglýstur landeigandi á Grindavíkurbær forkaupsrétt að eigninni.
Gerður hefur verið kaupsamningur um íbúð í húsinu nr. 36 við Víkurbraut í Grindavík (F209-2538). Sem þinglýstur landeigandi á Grindavíkurbær forkaupsrétt að eigninni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.14. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 38. fundar svæðisskipulags Suðurnesja þann 12.05.23 lögð fram til kynningar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerð 38. fundar svæðisskipulags Suðurnesja þann 12.05.23 er lögð fram til kynningar.15. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 73
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.16. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023
789. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 16.05.23 lögð fram til kynningar.
789. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 16.05.23 er lögð fram til kynningar.
17. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023
790. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 22.05.23 lögð fram til kynningar.
790. fundargerð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 22.05.23 er lögð fram til kynningar.
18. 2023 Fundargerðir stjórnarfunda Keilis
Fundargerð aðalfundar Keilis ehf. þann 23.05.2023 lögð fram til kynningar.
Fundargerð aðalfundar Keilis ehf. þann 23.05.2023 er lögð fram til kynningar.
19. Frístunda- og menningarnefnd - 126
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.