Bæjarráð Grindavíkur - 1709. fundur
- 21.04.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1709
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Bæjarráð vísar málinu til ákvörðunar í bæjarstjórn.2. Starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram drög að starfslýsingum forstöðumanns frístundastarfs og forstöðumanns bókasafns.
Framhald umræðu um starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026.
Bæjarráð vísar málinu til ákvörðunar í bæjarstjórn.3. Rekstur líkamsræktar í íþróttamannvirkjum
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Samningur við Gym heilsu lagður fram að nýju með viðbótum.
Bæjarráð samþykkir samninginn.4. Reglur um rafræna vöktun
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram drög að reglum um rafræna vöktun.
Bæjarráð vísar reglunum til bæjarstjórnar.5. Meðferð áfengis í íþróttamannvirkjum
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram fyrstu drög að reglum um meðferð áfengis í íþróttamannvirkjum.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.6. Styrkbeiðni vegna heimildarmyndar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Sótt er um styrkbeiðni vegna heimildarmyndar um bridge sem tekin verður að hluta til upp í Grindavík.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.7. Fyrirspurn um æfingaaðstöðu fyrir tónlistarfólk
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram erindi frá Sigurbirni Daða Dagbjartssyni þar sem óskað er eftir æfingaaðstöðu fyrir tónlistarfólk og styrk til kaupa á hljóðfærum.
Bæjarráð samþykkir að veita aðstöðu í Kvikunni en getur ekki orðið við styrkbeiðninni.8. Fasteignagjöld 2026 - Vörðusund 5, beiðni um niðurfellingu
Fallist er á ósk lóðarhafa um niðurfellingu fasteignagjalda vegna Vörðusunds 5, sökum þess að eignin er afgirt og umgengni er óheimil um lóð og mannvirki af öryggisástæðum. Bæjarráð áréttar að niðurfelling fasteignagjalda gildir eingöngu vegna ársins 2026.
Hvetur bæjarráð lóðarhafa til þess að heimila viðgerð á lóðinni sem fyrst þannig að unnt verði að tryggja öruggt aðgengi að fasteigninni.9. Fasteignagjöld 2026 - Fálkahlíð 4 og 6, Beiðni um niðurfellingu
Lagnaþjónusta Þorsteins óskar eftir niðurfellingu fasteignagjalda af Fálkahlíð 4-6, sbr. erindi dags. 15. apríl 2026.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.10. Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram bréf frá umboðsmanni barna varðandi sveitastjórnarkosningar 16. maí nk.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að svara bréfinu.11. Ársuppgjör 2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur 2025 er lagður fram.
Bæjarráð vísar ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.