Bæjarráð Grindavíkur - 1705. fundur
- 10.03.2026
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1705
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem mál 2:
26002018 Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2026.
Samþykkt samhljóða.
1. Rekstur íþróttamannvirkja og tjaldsvæðis 2026
Forstöðumaður íþróttamannvirkja mætir á fundinn og fer yfir starfsemi íþróttamannvirkja og tjaldsvæðis 2026.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður íþróttamannvirkja, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og launafulltrúi.
Lögð fram greinargerð um starfsemi íþróttamannvirkja og tjaldsvæðis árið 2026.2. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2026
Farið yfir drög að samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði 2026.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Farið yfir drög að samstarfssamningum á frístunda- og menningarsviði 2026.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram i samræmi við umræður á fundinum.3. Styrkbeiðni vegna heimildarmyndar
Steinbogi kvikmyndagerð sækir um styrk vegna heimildamyndar um daglegar göngur upp að Garðskagavita í tvö ár samfleytt.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Steinbogi kvikmyndagerð sækir um styrk vegna heimildamyndar um daglegar göngur upp að Garðskagavita í tvö ár samfleytt.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.4. Stefnur Grindavíkurbæjar
Rætt um stefnur og stefnumótun sveitarfélagsins.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Rætt um stefnur og stefnumótun sveitarfélagsins.5. Salthúsið Stamphólsvegi 2 - framtíðarhorfur
Lögð fram drög að tveimur samningum vegna Stamphólsvegar 2: a) Kaupsamningur og afsal b) Uppgjör vegna afsalsgreiðslu
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Umsjónarmaður eigna og veitustjóri.
Lögð fram drög að tveimur samningum vegna Stamphólsvegar 2: a) Kaupsamningur og afsal b) Uppgjör vegna afsalsgreiðslu.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.6. Járngerður, félagasamtök - áskorun á íbúafundi 11. feb. 2026
Lögð fram áskorun íbúafundar Járngerðar þann 11. febrúar 2026
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Umsjónarmaður eigna og veitustjóri.
Lögð fram áskorun íbúafundar Járngerðar þann 11. febrúar 2026.
Verið er að vinna að skipulagi að fundarröð um mál sem snerta Grindavík og Grindvíkinga.7. Fjárhólf í Krísuvík, endurnýjun samnings frá 2004
Farið yfir samskipti við Hafnarfjarðarbæ vegna fjárhólfsins í Krísuvík.
Farið yfir samskipti við Hafnarfjarðarbæ vegna fjárhólfsins í Krísuvík.
Beit verður leyfð í fjárhólfinu sumar 2026.8. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif
Í tengslum við fyrirhugað niðurrif altjónshúsa við Víkurbraut er tilefni til umræðu um möguleika á að skilja eftir veggstubba eða aðrar leifar til að minna á að þar hafi staðið hús. Mikilvægt er að huga að þessum atriðum áður en niðurrif fer fram og að litið verði til hugmynda um skipulag miðbæjarins og áhugaverða staði fyrir ferðamenn. Stefnt er að fundi með Batteríinu og í framhaldi verði útfært í útboðsgögnum hvaða kröfur eru gerðar um frágang að loknu niðurrifi. Hugmyndum er nánar lýst í tölvupósti frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar dags. 6. mars 2026.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Umsjónarmaður eigna og veitustjóri.
Í tengslum við fyrirhugað niðurrif altjónshúsa við Víkurbraut er tilefni til umræðu um möguleika á að skilja eftir veggstubba eða aðrar leifar til að minna á að þar hafi staðið hús. Mikilvægt er að huga að þessum atriðum áður en niðurrif fer fram og að litið verði til hugmynda um skipulag miðbæjarins og áhugaverða staði fyrir ferðamenn. Stefnt er að fundi með Batteríinu og í framhaldi verði útfært í útboðsgögnum hvaða kröfur eru gerðar um frágang að loknu niðurrifi. Hugmyndum er nánar lýst í tölvupósti frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar dags. 6. mars 2026.
Bæjarráð samþykkir þessar tillögur að minjavörslu húshluta við Víkurbraut þar sem því verður við komið.9. Fasteignaskattur á orkumannvirki
Lögð fram til kynningar og umræðu umsögn Grindavíkurbæjar um drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, sem er til umsagnar í samráðsgátt.
Mál: S-51/2026Lögð fram til kynningar og umræðu umsögn Grindavíkurbæjar um drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, sem er til umsagnar í samráðsgátt.
10. Heimild til stofnunar og breytinga á náttúruhamfaratryggingum á áhrifasvæði jarðhræringa á Reykjanesi
Bent er á að eigendum opinberra mannvirkja er nú heimilt að stofna nýjar náttúruhamfaratryggingar og/eða gera breytingar á eldri tryggingum eigna á svæðum sem hafa orðið fyrir áhrifum af jarðhræringum og eldgosum á Reykjanesi þrátt fyrir yfirstandandi atburðarás á svæðinu.
Hlekkur á frétt NTÍ varðandi málið: https://island.is/s/nti/frett/stjorn-nti-hefur-samthykkt-ad-heimila-vatryggingafeloegum-ad-stofna-nyjar-ogGestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Umsjónarmaður eigna og veitustjóri.
Eigendum opinberra mannvirkja er nú heimilt að stofna nýjar náttúruhamfaratryggingar og/eða gera breytingar á eldri tryggingum eigna á svæðum sem hafa orðið fyrir áhrifum af jarðhræringum og eldgosum á Reykjanesi þrátt fyrir yfirstandandi atburðarás á svæðinu.
Bæjarráð felur veitustjóra Grindavíkurbæjar og hafnarstjóra að fylgja málinu eftir.