Bæjarráð Grindavíkur - 1623. fundur
- 04.10.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1623
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Niðurstöður úr ástandsskoðun og kostnaðargreiningu vegna Víkurbrautar 27 og Hafnargötu 12a (Kvikunni) lagðar fram. Gögn koma undir dagskrárliðin á mánudaginn 3. október.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Einnig mætti á fundinn Óli Þór Magnússon frá OMR verkfræðistofu og kynnti hann niðurstöður skýrslunnar.
Niðurstöður úr ástandsskoðun og kostnaðargreiningu vegna Víkurbrautar 27 og Hafnargötu 12a (Kvikunni) lagðar fram.2. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Útboðs- og hönnunargögn vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram til samþykktar fyrir útboð. Gögn munu koma undir dagskrárliðinn eigi síðar en sunnudaginn 2.okt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Útboðs- og hönnunargögn vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram til samþykktar fyrir útboð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að bjóða verkið út.3. Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Auglýst er eftir umsóknum í síðari úthlutun fyrir árið 2022 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum.
Lögð fram tilkynning um umsóknarfrest í síðari úthlutun fyrir árið 2022 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Umsóknarfrestur er til 16. október 2022.
4. Samningur um nýtingar á gistiskýlum
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar skorar á Grindavíkurbæ ganga til samninga um tiltekið úrræði.
Sviðssstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf, dags. 18. ágúst 2022, varðandi greiðslu gistináttagjalds í neyðarskýlum á vegum Reykjavíkurborgar.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að afla frekari gagna fyrir næsta bæjarráðsfund.5. Björgunarsveitin Þorbjörn leitar eftir styrk
Borist hefur styrkbeiðni vegna stækkunar á húsnæði björgunarsveitarinnar.
Lögð fram beiðni, dags. 16. sept. 2022, um styrk vegna stækkunar á húsnæði Björgunarsveitarinnar að Seljabót 10 í Grindavík.
Bæjarráð vísar erindinu í vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2026.6. Stytting vinnuviku kennara hjá grunnskóla Grindavíkur
Lagt fram samkomulag um styttingu vinnuviku hjá kennurum í grunnskóla Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir vinnufyrirkomulagið.Lagt fram samkomulag um styttingu vinnuviku hjá kennurum í grunnskóla Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir vinnufyrirkomulagið.7. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gögn forstöðumanna lögð fram.
Gögn forstöðumanna lögð fram.