Bæjarráð Grindavíkur - 1510. fundur
- 19.03.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1510
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskað formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 14. mál:
1808023 - Vinnuumhverfi á bæjarskrifstofunni
Samþykkt samhljóða.
1. HS Orka ehf - Eldvarpavirkjun staðarvalsgreining
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs upplýsir og kynnir vinnu vegna staðarvalsgreiningar á Eldvarpavirkjun.
HS Orka hefur á undanförnum árum unnið að undirbúningi virkjunar jarðvarma í Eldvörpum. Í ár er fyrirhugað að bora þar djúpa rannsóknarholu en áður, árið 1983, var boruð þar grunn rannsóknarhola.
Til að undirbúa sem best virkjun jarðvarmans stendur til að skoða nokkra valkosti fyrir staðsetningu orkumannvirkja. Er ætlunin að setja saman vinnuhóp til að koma að úrvinnslu og gefa valkostum einkunn sem síðar verður nýtt í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og gerð aðalskipulags fyrir uppbygginguna þar sem henni verður valinn staður.
Þátttakendur í vinnuhópi verða fulltrúar frá eftirtöldum aðilum:
? HS Orka
? Grindavíkurbær
? Bláa Lónið
? VSÓ ráðgjöf, sem ráðgjafi verkkaupaSviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann vinnu vegna staðarvalsgreiningar á Eldvarpavirkjun.
2. Kvikan - Greinargerð um starfsemi og stöðu
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkur leggur fram gögn vegna málsins.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram greinargerð upplýsinga- og markaðsfulltrúa Grindavíkurbæjar um starfsemi og stöðu Kvikunnar.
Bæjarráð samþykkir að Kvikan verði opin til áramóta og gerður verði tímabundinn ráðningarsamningur við starfsmenn til þess tíma. Á meðan verði unnið að framtíðarstefnumótun fyrir Kvikuna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og upplýsinga- og markaðsfulltrúa að leita eftir tilboðum í stefnumótunarvinnuna.3. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Óskað er eftir umræðu um samstarfssamning milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og áherslur í samningagerð.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.4. Samstarfssamningur um umhirðu á félagssvæði 2019
Frístunda- og menningarnefnd samþykkti samstarfssamning við Knattspyrnudeild UMFG á fundi sínum 6. mars sl. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.500.000.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.5. Aðstaða til tónleikahalds í Grindavík
Frístunda- og menningarnefnd ræddi um aðstöðuleysi til tónleikahalds í Grindavík á fundi sínum 6. mars í kjölfar fundar með stjórnendum Tónlistarskóla Grindavíkur. Rætt var um að hægt væri að nýta betur efri hæð Kvikunnar fyrir smærri viðburði. Nefndinni þótti rétt að vísa málinu til bæjarráðs áður en það færi fyrir stjórn Kvikunnar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð vísar málinu til stefnumótunarvinnu Kvikunnar.6. Tónleikar fyrir sjómannadagshelgina
Körfuknattleiksdeild UMFG og Golfklúbbur Grindavíkur óska eftir stuðningi við viðburðinn.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Körfuknattleiksdeild UMFG og Golfklúbbur Grindavíkur óska eftir stuðningi vegna tónleika fyrir sjómannadagshelgina.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari upplýsinga um kostnað.7. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar
Kjósa þarf fulltrúa Grindavíkurbæjar í öldungaráð. Málinu var frestað á 1509. fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi nr. 493 breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sem fólu í sér að við 47. gr. B bættist við 3. töluliður um öldungaráð.
Kjósa þarf fulltrúa Grindavíkurbæjar í öldungaráð en málinu var frestað á 1509. fundi bæjarráðs.
Bæjarráð tilnefndir eftirtalda í öldungaráð:
Sæmundur Halldórsson
Friðrik Björnsson og
Hallfríður Hólmgrímsdóttir.8. Grindavíkurbær - Reglur, samþykktir og stefnur
Yfirfara þarf reglur og samþykktir bæjarfélagsins m.t.t. samræmingar og endurskoðunar.
Lagt fram yfirlitsskjal um samþykktir, reglur og stefnur Grindavíkurbæjar.
9. Bólusetningar barna gegn alvarlegum smitsjúkdómum
Fulltrúi Framsóknarflokksins minnir á að bólusetningum barna er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Öllum börnum með lögheimili hér á landi stendur til boða bólusetning gjaldfrjálst. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur til að frá haustinu 2019 verði samþykki fyrir dagvistun í leikskólum Grindavíkur háð því að foreldrar eða forráðamenn framvísi skírteini sem staðfestir að börn hafi verið bólusett samkvæmt því skipulagi sem sóttvarnarlæknir leggur fram.
Fulltrúi Framsóknarflokksins minnir á að bólusetningum barna er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Öllum börnum með lögheimili hér á landi stendur til boða bólusetning gjaldfrjálst. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur til að frá haustinu 2019 verði samþykki fyrir dagvistun í leikskólum Grindavíkur háð því að foreldrar eða forráðamenn framvísi skírteini sem staðfestir að börn hafi verið bólusett samkvæmt því skipulagi sem sóttvarnarlæknir leggur fram.
Bæjarráð vísar málinu til fræðslunefndar til frekari útfærslu.10. Útlendingastofnun - Þjónustusamningur
Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til þess að gera þjónustusamning við stofnunina vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til þess að gera þjónustusamning við stofnunina vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.11. Suðurstrandarvegur - Vegstæði og þróun byggðar
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um vegstæði Suðurstrandarvegar.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um vegstæði Suðurstrandarvegar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til frekari umræðu.12. Tillaga til þingsályktunar um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. 187. mál.
Flutningsmenn tillögunnar eru þingmenn Suðurkjördæmis.
Bæjarráð Grindavíkur fagnar fram kominni þingsályktunartillögu og tekur jafnframt undir rökstuðning og skýringar í umsögn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. mars sl. um tillöguna. Það er löngu tímabært að leggja fram aðgerðaáætlun um hvernig efla megi þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum og mæta fordæmalausri fólksfjölgun á svæðinu.
13. Íbúasamráð í sveitarfélögum og þátttaka íbúa
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.