Bæjarráð Grindavíkur - 1636. fundur
- 21.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1636
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Opnunarfundargerð útboðs vegna klæðningar á grunnskólanum við Ásabraut 2 lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Opnunarfundargerð útboðs vegna klæðningar á grunnskólanum við Ásabraut 2 lögð fram.2. Umsókn um lóð nr. 2 á iðnaðarsvæði, i5.
Matorka hefur sótt um að fá svæði nr. 2 úthlutað á iðnaðarsvæði i5 til áframhaldandi uppbyggingar fiskeldis á svæðinu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Matorka hefur sótt um að fá svæði nr. 2 úthlutað á iðnaðarsvæði i5 til áframhaldandi uppbyggingar fiskeldis á svæðinu. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.3. Húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023
Drög að húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023 sett á dagskrá til upplýsinga og umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023 lögð fram til upplýsinga og umræðu.4. Ferðaþjónustubílar í þjónustumiðstöð - viðaukabeiðni
Óskað er viðauka að upphæð 7,5 milljónum króna vegna kaupa á bíl sem nýtist ferðaþjónustu sem þjónustumiðstöðin sinnir fyrir félagsþjónustu- og fræðslusvið sveitarfélagsins. Viðaukinn verður fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er viðauka að upphæð 7,5 milljónum króna vegna kaupa á bíl sem nýtist ferðaþjónustu sem þjónustumiðstöðin sinnir fyrir félagsþjónustu- og fræðslusvið sveitarfélagsins. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Drög að erindisbréfi 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að erindisbréfi 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram.6. Beiðni um aukið stöðugildi í félagsþjónustu
Óskað er eftir heimild til að ráða í stöðugildi félagsráðgjafa hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild til að ráða í stöðugildi í barnavernd og félagsþjónustu hjá bæjarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fram viðaukabeiðni fyrir bæjarstjórn.7. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Farið verður yfir stöðu málsins.
Farið yfir stöðu málsins.
8. Undanþágur frá verkfalli
Vegna mögulegra verkfalla vill kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga koma því á framfæri við sveitarfélög að sækja um undanþágu fyrir starfsemi sem varðar almannaöryggi.
Auk þess hefur sambandið vakið athygli á því að sveitarstjórnir hugi vel að viðbúnaði og áfallaþoli til að tryggja að ekki skapist hættuástand.Vegna mögulegra verkfalla vill kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga koma því á framfæri við sveitarfélög að sækja um undanþágu fyrir starfsemi sem varðar almannaöryggi.
Auk þess hefur sambandið vakið athygli á því að sveitarstjórnir hugi vel að viðbúnaði og áfallaþoli til að tryggja að ekki skapist hættuástand.9. Hjartastuðtæki á stofnunum bæjarins
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 1.140.000 vegna hjartastuðtækja á stofnunum bæjarins.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 1.140.000 vegna hjartastuðtækja á stofnunum bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.10. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar
Kjörnefnd Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.
Lagt fram erindi dags. 10. febrúar sl. frá kjörnefnd Lánasjóðsins þar sem auglýst eftir framboðum til stjórnarsetu.