Bæjarráð Grindavíkur - 1523. fundur
- 20.08.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1523
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. og 5. mál:
Umsókn um námsvist utan lögheimilis - 1908077
Leiguíbúðir aldraðra - Umsókn um ívilnun - 1908086
Samþykkt samhljóða.
1. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Farið verður í skoðunarferð í nýja íþróttahúsið.
Farið var í skoðunarferð í nýja íþróttahúsið. Forstöðumaður íþróttamiðstöðvar sýndi húsið.
2. Símenntun - Fagleg forysta
Óskað eftir sjálfbærum viðauka við fjárhagsáætlun 2019 í þágu stjórnenda skólastofnana og skólaþjónustu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 1.150.000 kr. á lykil 04011-4923 sem fjármagnaður verði með lækkun liðar 21611-4922.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.3. Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Sótt um námsvist utan lögheimilissveitarfélags. Vísað er til vandræðagangs varðandi samskonar umsóknir í fortíðinni. Mun íhlutun ráðuneytisins í eldra mál hafa áhrif?
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Í ljósi þess hvernig þetta tiltekna mál er vaxið hafnar bæjarráð erindinu.4. Umsókn um námsvist utan lögheimilis
Sótt er um námsvist utan lögheimilissveitarfélags. Erindið hefur mikla sérstöðu í samanburði við önnur sambærileg erindi þar sem um er að ræða barn í varanlegu fóstri sem lýtur forsjá félagsmálanefndar Grindavíkur.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Í ljósi þess hvernig þetta tiltekna mál er vaxið hafnar bæjarráð erindinu.5. Leiguíbúðir aldraðra - Umsókn um ívilnun
Óskað er eftir eftirgjöf af íbúðarrétti vegna úthlutunar íbúðar í Víðhlíð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Bæjarráð samþykkir erindið.6. Búsetuþjónusta - Beiðni um viðuaka
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019. Rekstur heimilis við Túngötu. Einstaklingur með verulegar þjónustuþarfir.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna launaliða sambýlis við Túngötu að fjárhæð 1.480.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnina.7. Sjóarinn síkáti 2019
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um framkvæmd hátíðarinnar 2019 lagt fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um Sjóarann síkáta 2019 sem og minnisblað um framtíðarsýn fyrir Sjóarann síkáta.8. Samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið GG 2020-2021
Drög að samstarfssamningi við Knattspyrnufélagið GG lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Knattspyrnufélagið GG lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn.9. Samstarfssamningur við Unglingadeildina Hafbjörgu 2020-2021
Drög að samstarfssamningi við Unglingadeildina Hafbjörgu lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samstarfssamningi við Unglingadeildina Hafbjörgu lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn.10. Verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði
Lögð fram drög að verklagsreglum vegna úthlutana starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að verklagsreglum vegna úthlutana starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir reglurnar.11. Umsókn um styrk
Lögð fram drög að samningi við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samningi við Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn.12. Heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum
Fyrir liggur undirrituð viljayfirlýsing um samstarf vegna Heilsueflandi samfélags á Suðurnesjum. Að samstarfinu standa sveitarfélögin á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, SSS og Embætti landlæknis.
Lögð fram undirrituð viljayfirlýsing um samstarf vegna Heilsueflandi samfélags á Suðurnesjum. Að samstarfinu standa sveitarfélögin á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, SSS og Embætti landlæknis.
Bæjarráð samþykkir að Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarnefnfdar, verði fulltrúi Grindavíkurbæjar í samstarfshópnum.13. Ósk um styrk frá Grindavíkurb
Samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs óska eftir fjárstuðningi til uppgræðslu.
Samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs óska eftir fjárstuðningi til uppgræðslu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að gerða styrktarsamning við félagið. Bæjarráð samþykkir 200.000 kr. fyrir árið 2020.14. Frágangur við Hópið - sandfok af plani
Í samræmi við bókun frá 1517. fundi bæjarráðs þá eru lögð fram hönnunargögn og kostnaðaráætlun vegna bílastæðis framan við Hópið.
Óskað er eftir heimild til að hefja framkvæmdir á þessu ári.Í samræmi við bókun frá 1517. fundi bæjarráðs þá eru lögð fram hönnunargögn og kostnaðaráætlun vegna bílastæðis framan við Hópið.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina á árinu 2019.15. Malbikun gatna mm
Framkvæmdir við malbikun gatna í Grindavik fara að hefjast. Íbúar verða upplýstir um tímasetningar og götur í tíma.
Verklok samkvæmt útboðsgögnum eru 1.október 2019.Framkvæmdir við malbikun gatna í Grindavik fara að hefjast. Íbúar verða upplýstir um tímasetningar og götur í tíma.
Verklok samkvæmt útboðsgögnum eru 1. október 2019.16. Hreystigarður
Málið er á dagskrá að beiðni Hallfríðar G Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann stöðu málsins.
Málinu er frestað.17. Rekstraryfirlit janúar - júní 2019
Rekstraryfirlit janúar - júní 2019 lagt fram ásamt skýringum sviðsstjóra á frávikum.
Lagt fram rekstraryfirlit janúar - júní 2019 ásamt skýringum á helstu frávikum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir frávik með öðrum sviðsstjórum.18. Fjárhagsáætlun 2020 - Grindavíkurbær og stofnanir
Drög að tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunarvinnu 2020-2023 lögð fram.
Drög að tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunarvinnu 2020-2023 lögð fram.
19. Fasteignagjöld 2020
Útreiknuð fasteignagjöld 2020 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
Lögð fram áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2020 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
20. Viðaukabeiðni - Slökkvilið Grindavíkur
Óskað er eftir viðaukum vegna eftirfarandi frá slökkviliði Grindavíkur.
Óskað er eftir viðauka á lykil 07221 / 4961 vegna ófyrirséðra bilana sem hafa komið upp á árinu á slökkvibílum. Upphæð viðaukabeiðnar er 930.000 kr.
Óskað er eftir viðauka að lykli 07221 / 4961 vegna bilunar á búnaði. Upphæð viðaukabeiðnar er 195.746 kr.Óskað er eftir viðaukum vegna eftirfarandi frá slökkviliði Grindavíkur.
Óskað er eftir viðauka á lykil 07221-4961 vegna ófyrirséðra bilana sem hafa komið upp á árinu á slökkvibílum. Upphæð viðaukabeiðnar er 930.000 kr.
Óskað er eftir viðauka að lykli 07221-4961 vegna bilunar á búnaði. Upphæð viðaukabeiðnar er 196.000 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukabeiðnirnar og að fjármögnun þeirra verði með lækkun á handbæru fé.21. Kosning í nefndir samkvæmt C-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur að kjósa nýjan fulltrúa í Samstarfsnefnd um svæðisskipulag Suðurnesja.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.