Bæjarráð Grindavíkur - 1610. fundur
- 03.05.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1610
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Alexander Veigar Þórarinssonvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Túngata 15-17 - viðaukabeiðni
Viðaukabeiðni lögð fram vegna framkvæmda við Túngötu 15-17.
Viðaukabeiðni lögð fram vegna framkvæmda við Túngötu 15-17 að fjárhæð 15.360.000 kr.
Jafnframt er óskað heimildar að ganga til samninga við lægstbjóðanda, HG Trésmiðju.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.2. Framtíð sundlaugarsvæðis
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 7.000.000 til forhönnunar sundlaugarsvæðis.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 7.000.000 til forhönnunar sundlaugarsvæðis.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks
17. maí er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks. Lagt er til að vekja athygli stofnana á deginum og flagga regnbogafánanum.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
17. maí er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks.
Bæjarráð hvetur stofnanir og fyrirtæki í Grindavík að flagga regnbogafánanum þennan dag.4. Vegna grunnskólagöngu
Umsókn um skólavist í einkareknum sérskóla.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Umsókn um skólavist í einkareknum sérskóla lögð fram.
Bæjarráð samþykkir erindið.5. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Farið verður yfir stöðuna hvað varðar húsnæðið að Víkurbraut 27.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðuna hvað varðar húsnæðið að Víkurbraut 27.6. Gamla kirkjan í Grindavík
Farið verður yfir stöðu málsins gagnvart starfsemi í húsinu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð styður það að starfsemi í gömlu kirkjunni verði í óbreyttu formi og engin áform eru um sölu hússins.7. Þjónusta Kölku-sorpeyðingarstöðvar sf.
Opnunartími á móttökustöð Kölku í Grindavík tekinn til umræðu.
Opnunartími á móttökustöð Kölku í Grindavík tekinn til umræðu.
Bæjarráð skorar á Kölku að auka opnunartíma móttökustöðvarinnar í Grindavík.8. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Málinu var áður frestað á fundi bæjarráðs.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir heimgreiðslur og vísar málinu í vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.9. Beiðni um viðauka - Loftræstikerfi leikskólans Laut
Málið var tekið fyrir á 1606. fundi bæjarráðs Grindavíkur þann 8. mars sl. og þá var erindinu vísað í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs. Að beiðni Hallfríðar G. Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa er málið lagt fyrir að nýju.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið var tekið fyrir á 1606. fundi bæjarráðs Grindavíkur þann 8. mars sl. og þá var erindinu vísað í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á fjárhagsáætlun ársins 2022 að fjárhæð 5.000.000 kr. svo hægt verði að fara í framkvæmdir í haust.
Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.10. Ungmennaráð Grindavíkur - Fundur með bæjarstjórn
Ungmennaráð kemur til fundar kl. 17:00 og fundar með bæjarstjórn.
Á fundinn mættu Friðrik Þór Sigurðsson, Una Rós Unnarsdóttir og Vignir Berg Pálsson, fulltrúar í ungmennaráði. Einnig sátu fundinn sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar og Melkorka Ýr Magnúsdóttir starfsmaður í félagsmiðstöðinni Þrumunni og Birgitta Ramsey Káradóttir bæjarfulltrúi.
Rætt var m.a. um stöðu ungmennaráðs, félagsmiðstöðina Þrumuna, ungmennahús, ungmennagarðinn og íþróttasvæðið.11. Beiðni um launalaust leyfi
Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi í eitt ár. Skólastjóri samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti. Samrýmist reglum sveitarfélagsins, sbr. https://www.grindavik.is/launalaustleyfi
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi í eitt ár. Skólastjóri samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti. Samrýmist reglum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir erindið.12. Tónlistarskólinn - Umsókn um launalaust leyfi
Starfsmaður Tónlistarskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi til eins árs. Fyrir liggur jákvæð umsögn tónlistarskólastjóra.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Starfsmaður Tónlistarskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi til eins árs. Fyrir liggur jákvæð umsögn tónlistarskólastjóra.
Bæjarráð samþykkir erindið.13. Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II - Tjald ehf.
Tjald ehf. hefur sótt um rekstrarleyfi í flokki II F til sýslumanns. Byggingarfulltrúi vísar málinu til bæjarráðs þar sem ekki liggur fyrir leyfi sveitarfélagsins.
Tjald ehf. hefur sótt um rekstrarleyfi í flokki II F til sýslumanns. Byggingarfulltrúi vísar málinu til bæjarráðs þar sem ekki liggur fyrir leyfi sveitarfélagsins.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.14. Styrkbeiðni vegna fjáröflunar fyrir skaðaminnkunarverkefni
Þess er farið á leit að bæjarfélagið styrki fjáröflunarverkefni vegna kaupa á nýrri bifreið fyrir skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður á Suðurnesjum.
Lögð fram beiðni um styrk vegna kaupa á nýrri bifreið fyrir skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður á Suðurnesjum sem rekið er af Suðurnesjadeild Rauða krossins.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.