Bæjarráð Grindavíkur - 1550. fundur
- 09.06.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1550
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Leikskólastjórarar Lautar og Króks mæta á fundinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og leikskólastjórar Lautar og Króks, auk trúnaðarmanna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir tillögur frá skólastjórnendum og málin rædd.2. Leiguverð á íbúðum í Víðihlíð
Hallfríður Hólmgrímsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Forstöðumaður öldrunarþjónustu sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Bæjarráð samþykkir að skipa í vinnuhóp Sigurð Óla, Birgittu og Hallfríði. Vinnuhópurinn skal fara yfir leiguverð á íbúðum í Víðihlíð og skila tillögum eigi síðar en 1. október 2020.3. Túngata 15-17 - ósk um viðauka
Lögð fram ósk um viðauka vegna starfsemi Túngötu 15-17, að upphæð 2.932.298 kr. sbr. minnisblöð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 á launalykla hjá sambýlinu við Túngötu að fjárhæð 2.932.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.4. Hjóla- og gönguvika í Grindavík
Hjóla- og gönguvika í Grindavík mun fara fram 24. - 27. júní nk.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Hjólafærni á Íslandi um samvinnu við Grindavíkurbæ vegna þróunarverkefnisins Hjóla- og gönguvika.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita alþjóðlega göngusáttmálann.5. Hátíðarhöld 17. júní 2020
Rætt um hátíðadagskrá 17. júní.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð leggur til að meira verði gert á 17. júní en gert hafði verið ráð fyrir og með áherslu á skemmtun fyrir börnin.6. Ósk um svæði fyrir kofabyggð
Hópur barna hefur óskað eftir svæði fyrir kofabyggð. Lagt er til að þau fái hluta af leiksvæðinu við Hraunbraut eða gamla leiksvæðið í Laut. Gæta þarf að öryggismálum, s.s. nöglum og flísum.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Hópur barna hefur óskað eftir svæði fyrir kofabyggð. Lagt er til að þau fái hluta af leiksvæðinu við Hraunbraut eða gamla leiksvæðið í Laut.
Bæjarráð heimilar notkun á svæði gamla leikskólans í Laut undir kofabyggð. Gæta þarf að öryggismálum, s.s. nöglum og flísum og að kofar geti ekki fokið.
Byggingafulltrúa er falið að vinna málið áfram.7. Átak í fráveituframkvæmdum
Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi frumvarp til breytinga á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. júní sl. varðandi frumvarp til breytinga á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna um tímabundið átak í fráveituframkvæmdum.
8. Suðurnesjalína 2: Álit Skipulagsstofnunar
Óskað er eftir afstöðu bæjaryfirvalda í Grindavík til þeirra valkosta sem fyrir liggja vegna Suðurnesjalínu 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í landi Grindavíkur.
Óskað er eftir afstöðu bæjaryfirvalda í Grindavík til þeirra valkosta sem fyrir liggja vegna Suðurnesjalínu 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í landi Grindavíkur.
Bæjarráð leggur höfuðáherslu á að bæta afhendingaröryggi og auka flutningsgetu raforku á Suðurnesjum svo fljótt sem við verður komið. Ekki er gert upp á milli valkosta B og C að svo komnu máli, en beðið frekari upplýsinga um þann tíma sem ætla má að framkvæmdin taki fyrir hvorn valkost fyrir sig.9. Ábending um plastmengun og flutning jarðvegs
Umhverfisstofnun hefur sent erindi vegan uppgræðslu lands innan marka Reykjanesfólkvangs.
Lagður fram tölvupóstur frá Umhverfisstofnun með ábendingum um plastmengun og beiðni um upplýsingar um uppgræðslu lands í landi Grindavíkurbæjar meðfram landsvegi 428.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna málið áfram.10. Félagsaðstaða eldri borgara
Skipan starfshóps vegna þarfagreiningar fyrir félagsaðstöðuna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í starfshóp um byggingu félagsheimilis fyrir aldraða: Stefanía S Jónsdóttir og Hjálmar Hallgrímsson. Öldungaráð skipi þriðja fulltrúann.
Jafnframt leggur bæjarráð til að greitt verði fyrir setu í starfshópnum.11. Samstarfsverkefni með vinabænum Uniejów
Óskað er eftir samstarfi vegna verkefnis sem snýr að vitund nemenda um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra.
Óskað er eftir samstarfi vegna verkefnis sem snýr að vitund nemenda um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti viljayfirlýsinguna.