Bæjarráð Grindavíkur - 1588. fundur
- 20.07.2021
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 15:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1588
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Hleðslustöðvar í Grindavík
Samningur við Hleðsluvaktina lagður fram til samþykktar.
Samningur við Hleðsluvaktina lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir saminginn og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita samninginn.2. Fasteignagjöld 2022
Lögð fram áætlun fasteignagjalda 2022 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
Lögð fram áætlun fasteignagjalda 2022 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
3. Styrkur til fráveituframkvæmda
Bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags 9. júlí 2021, lagt fram.
Samþykktur styrkur er 30% af heildarkostnaði framkvæmda á árunum 2020 og 2021.Bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags 9. júlí 2021, lagt fram.
Samþykktur styrkur er 30% af heildarkostnaði framkvæmda á árunum 2020 og 2021.4. Raunkostnaður málefna fatlaðra 2018-2020
Lagt fram yfirlit yfir raunkostnað Grindavíkurbæjar vegna málefna fatlaðra.
Lagt fram yfirlit yfir raunkostnað Grindavíkurbæjar vegna málefna fatlaðra árin 2018-2020.
5. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest ákvörðun bæjarstjórnar um örnefnið "Fagradalshraun".
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur með vísan til 2. mgr. 7. gr. laga nr. 22/2015 um örnefni ákveðið að staðfesta ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um nýtt örnefni, "Fagradalshraun" við Fagradalsfjall.