Bæjarráð Grindavíkur - 1584. fundur
- 15.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1584
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Málavog í barnavernd
Niðurstaða málavogar barnaverndar kynnt ásamt nauðsynlegu viðbragði.
Málinu er frestað.
2. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Uppfærð tillaga að félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð tillaga að félagsaðstöðu eldri borgara lögð fram. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.3. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Fyrir liggja drög að viljayfirlýsingu um þátttöku í hringrásargarði á Suðurnesjum.
Viljayfirlýsing um þátttöku í hringrásargarði á Suðurnesjum lögð fram til kynningar.
4. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Fyrir liggur að kjósa nýjan aðalmann og varamann í skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar.
Tillaga er um að Björgvin Björgvinsson verði aðalmaður í stað Antons Kristins Guðmundssonar og að varamaður verði Ásrún Helga Kristinsdóttir í stað Björgvins.