Bæjarráð Grindavíkur - 1695. fundur
- 18.11.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1695
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka inn tvö mál með afbrigðum:
2402011 AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
2511027 Mávahlíð 13 - 15; erindi frá Novum lögfræðiþjónustu.
Ásrún sat fundinn í Teams.
Samþykkt samhljóða.
1. AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Lögð fram til samþykktar auglýsing um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar óskar eftir því að innviðaráðherra gefi út auglýsingu með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um eftirfarandi frávik frá skilyrðum 1. mgr.14. gr. og 4. mgr. 17. gr. sömu laga:
Til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins, verði bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér eftirfarandi frávik frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins:
1. Að fundir bæjarstjórnar verði haldnir á öðrum stað en mælt er fyrir í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda verði haldnir fyrir utan sveitarfélagið.
2. Að nefndarmenn taki þátt í fundum sveitarfélagsins með rafrænum hætti þrátt fyrir að vera ekki staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess.
Þess er vinsamlega óskað að auglýsingin taki gildi sem fyrst og að hún gildi í allt að sex mánuði. Heimildi fellur þó úr gildi fyrr ef ríkislögreglustjóri aflýsir almannavarnastigi í sveitarfélaginu fyrir þann tíma.2. Mávahlíð 13 - 15; erindi frá Novum lögfræðiþjónustu
Borist hefur erindi frá Novum lögfræðiþjónustu þar sem krafist er afstöðu Grindavíkurbæjar til bótaskyldu vegna Mávahlíðar 13 - 15.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og hafnarstjóri.
Lagt fram erindi frá Novum lögfræðiþjónustu, dags. 17. nóvember 2025, þar sem krafist er afstöðu Grindavíkurbæjar til bótaskyldu vegna Mávahlíðar 13 - 15.
Málinu er vísað til næsta bæjarstjórnarfundar. Bæjarstjóra er falið að leita ráðgjafar lögmanna vegna málsins.3. Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík
Lögð fram til kynningar og umræðu drög að samningi við húseigendur um framkvæmd niðurrifs ásamt samningi við Consensa.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og hafnarstjóri.
Lögð fram drög að samningi við húseigendur um framkvæmd niðurrifs ásamt samningi við Consensa.4. Skil á lóð - Lóuhlíð 1-3
Lögð fram tillaga að svarbréfi vegna kröfu um endurgreiðslu gatnagerðargjalda.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og Hafnarstjóri.
Lögð fram tillaga að svarbréfi vegna kröfu um endurgreiðslu gatnagerðargjalda.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og felur bæjarstjóra að svara erindinu.5. Framkvæmdir við reiðleiðir í Grindavík 2026
Lagður fram tölvupóstur frá formanni Hestamannafélagsins Brimfaxa þar sem óskað er eftir því að ráðist verði í framkvæmdir og lagfæringar á reiðleiðum í Grindavík.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, hafnarstjóri og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagður fram tölvupóstur frá formanni Hestamannafélagsins Brimfaxa þar sem óskað er eftir því að ráðist verði í framkvæmdir og lagfæringar á reiðleiðum í Grindavík.
Bæjarráð bendir á að verið er að vinna heildstætt að legu göngu- og hjólastíga, reiðstíga og akstursslóða í þeirri skipulagsvinnu sem nú er í gangi.6. Gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur
Lögð fram uppfærð gjaldská Slökkviliðs Grindavíkur.
Lögð fram uppfærð gjaldská Slökkviliðs Grindavíkur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrána.