Bæjarráð Grindavíkur - 1536. fundur
- 14.01.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1536
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður heimildar til að taka á dagskrá með afbrigðum kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis sem dagskrárlið nr. 9.
Samþykkt samhljóða.
1. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Til umræðu er staðarval á hreinsistöð og lega útrásar utan hafnargarða. Hönnuður (EFLA) mætir á fundinn. Fulltrúum úr bæjarstjórn sem ekki sitja í bæjarráði er boðið að mæta á fundinn ásamt fulltrúum hafnarstjórnar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, umsjónarmaður fasteigna og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Einnig mættu á fundinn hönnuðir frá Eflu, Anna Heiður Eydísardóttir og Reynir Sævarsson, bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir, auk hafnarstjóra og fulltrúa frá hafnarstjórn, Páls Jóhanns Pálssonar og Ómars Davíðs Ólafssonar.
Til umræðu er staðarval á hreinsistöð og lega útrásar utan hafnargarða.2. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Káradóttir og Guðmundur Pálsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað lagt fram.3. Skipulag og umhverfi hafnarsvæðis og sjómannagarðs
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Í samræmi við bókun bæjarráðs á fundi nr. 1533 þann 3.12.2019 er tillaga lögð fyrir bæjarráð ásamt hugmynd að áfangaskiptingu kostnaðar.Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Frumdrög skipulags Hafnargötu lögð fram.4. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Frumkostnaðaráætlun heildarverks liggur fyrir. Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir á fundinn til að fara yfir stöðuna með tillögu að næstu skrefum, áfangaskiptingu o.fl.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.5. Bílastæði við suðurhlið íþróttahúss
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Verkið var boðið út það seint á síðasta ári að ekki náðist að hefja vinnu fyrir áramót. Gert var ráð fyrir þessu verki á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2019 en ekki 2020. Því er óskað viðauka upp á kr. 16.000.000 kr.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Gert var ráð fyrir framkvæmdinni í áætlun 2019 en ekki náðist að vinna verkið á því ári.
Lögð fram beiðni um viðauka á fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 16.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkta viðauka á fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 16.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.6. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62 Stækkun og breytingar frh
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Farið yfir lokaskýrslu eftirlits og uppgjör á framkvæmdum.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lokaskýrsla verksins lögð fram.7. Stamphólsvegur 1 - framkvæmdir við nýja deild
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Farið yfir stöðu framkvæmda við nýja deild við leikskólann Krók. Uppgjör fyrir árið 2019 lagt fram og næstu skref rædd.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit framkvæmda við nýja deild við leikskólann Krók og kostnaðaryfirlit fyrir árið 2019.8. Grunnskóli - Beiðni um launalaust leyfi
Beiðni um launalaust leyfi frá janúar 2020 til loka skólaársins.
Starfsmaður grunnskóla Grindavíkur óskar eftir launalausu leyfi frá ársbyrjun til loka skólaárs.
Jákvæð umsögn skólastjóra grunnskólans liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir leyfið.9. Tækifærisleyfi - FebG
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Félags eldri borgara í Grindavík um tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í Sjómannastofunni Vör 7. febrúar 2020.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Félags eldri borgara í Grindavík um tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í Sjómannastofunni Vör 7. febrúar 2020.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.